Fálkinn


Fálkinn - 17.12.1953, Síða 23

Fálkinn - 17.12.1953, Síða 23
1 i Giftingarhringir Lúthers og Kathar- inu, sundurlausir og samansettir. NOKKRUM 1 dögum eftir gifting- una liélt Martin Lúther vinnm Og vandamönnum vcislu. Þar eru for- eldrar hans, hœði göniul, og Hans ganili, sem hafði tekið sér nærri er Martin fór i klaustur. leikur nú á als oddi og cr hinn ánægðasti með tengda- dótturina. Þetta er dýrðleg veisla, ])ví að kjörfurstinn hefir sent Lúíher bæði mat og vín í hrúðkaupsgjöf. En einn gestinn vantar, rneira að segja besta vin Lúthcrs, Philip Mel- ankton. Hann er deigur að eðlisfari og hcfir nú heyrt sögur, sem valda honum alvarlegúm kvíða. Torgau er. iítiil bær og gróusögurn- ar berast fijótt. Bæjarbúar liafa óspart hneykslast á Rvi að munkar og nunn- ur gifti sig. En að Lúther geri sig sekan um slikt atliæfi — maður sem þó var eitthvað ineira en algengur munkur — tók út yfir allan jíjófabálk. Fólkið réð sér ekki fyrir gremju. Og var skelkað um leið. Því hafði verið spáð að þegar Anti- Kristur fæddist mundu foreldrar hans verða munkur og nunna. Og nú vænti fóik komu Anti-Krists á næstunni. Það var æpt að nýju hjónunum, skömmunum rigndi yfir þau og þau voru ckki óhult um líf sitt. En Lúther var hvergi hræddur. Þegar Katliarina grét og hjúfraði sig að honum sagði hann rólega: „Þú ert kona mín fyrir guði og mönnum, og við skiljum ekki, hvað sem á dynur. Mundu það!“ En ólgan í fólkinu hjaðnaði von bráðar. Um næstu jól sendu borgar- arnir i bænum fallegan dúk að gjöf „til frú Katharinu Lútlier, konu doktor Martins". Nokkrum mánuðum eftir brúðkaup- ið gaf kjörfurstinn Lúther klaustur er stóð autt í Wittenberg. Þetta idaust- ur var í raun réttri gömul höll og stór og fagur garður í kring. Þangað fluttust þau hjónin og bjuggu þar í 21 ár, þangað til Lúther dó. Katharina var góð húsmóðir, ráð- deildarsöm og liafði góðan smekk. Hún kunni lika vel til matargerðar og það kunni Lúther að meta. Klaust- urlífið hafði sorfið að honum, liann var fölur og horaður. Hann hafði livorki neytt svefns né matar til liálfs meðan hann var að semja smárit sín og bækur og þýða Nýja-testanientið. Segist honum sjálf- um svo frá að þá hafi hann aldrei búið um rúmið sitt, og dýnan verið orðin svo hnúskótt að varla var hægt að liggj:. á henni. En nú var annað lagið á og hann var fljótur að ná sér eftir að lia'nn komst i hjónabandið. Nú réðst hann í mikið stórvirki: að þýða Gamla- testamentið. Og nú var öldin önnur. Nú gat hann etið malinn sinn við dúk- að borð og frú Katharina sá um að hann fengi þá livild sem hann þarfn- aðist. Og í frístundunum gat hann spjaliað við vini sína og ungu stúdent- ana sem hann kenndi. Melankton, Justus Jonas og Bugenhagen áttu allir heima i Wittenberg og skammt frá beimili Lúthers var stórhýsi Cranachs málara. IJann var nú orðinn horgar- stjóri í Wittenberg. Lúther og Katharina voru bæði tónelsk og var mikið sungið og spilað á beimilinu. Yfir borðum voru jafnan fjörugar samræður. En stundum brá til alvöru, svo sem hinar frægu borð- ræður Lúthers bera vott um. A þeim ólgutimum sem þá voru, hafði þeim hjónum tekist að koma sér upp heimili, sem var svo friðsælt og skemmtilegt að shks voru fá dæmi. Hvernig var Katharina Luther gerð, og hvernig leit hún út? Frið var hún ekki, þó að hinn frægi guðfræðingur Erasmus frá Rotterdam kallaði hana „fegurstu konu Evrópu". En hún hefir eflaust verið fríðari en Cranacli málari sýnir liana að jafn- aði. Honum liætti til að gera andlitin hörð og beinamikil. Katharina hafði að minnsta kosti falleg augu, fallegt liros og fingert hörund. Hún var bein i baki og virðuleg Qg hefir sómt sér vel sem húsfreyja. En menntunin var af skornum skammti. Hún var ekki greindari en fólk er flest, og samkvæmt þeirra tíma hætti hafði hún litla menntun hlotið. Nú mætti spyrja: Ilvernig gat kona, sem var Lúther svo miklu síðri and- lega, orðið lionum svona mikils virði? Sumir sagnfræðingar halda því frám að hún hafi verið mesta skass — valdagjörn og ágjörn. Einn höf- undur hefir meira að segja skrifað um Klaustrið sem Lúther bjó í 21 ár. Það var gömul höll, og velunnari Lút- hers, Friðrik kjörfursti, gaf honum h ana. Þar réð Katharina húsum og hélt uppi mikilli rausn. Katharina von Bora er fædd 1499. Þessi mynd er máluð 1526, ári eftir að hún giftist Lúther. Katharina varð 53 ára. hana bók, sem heitir „Djöfullinn í Wittcnberg“. En Lútlier segir annað sjálfur. 1 bréfum til vina sinna talar liann oft um hve dugleg Katharina sé og hve ómissandi liún sé honum. Hann kallar hana „ástkæra rifið sitt“ — „Mín lilýðna og trygga þjónusta" og þvi um iíkt. Og á’einum stað segir hann: „Eg vildi ekki hafa skipti á henni og keis- aradæmi". Það er auðséð að góð sambúð hefir verið rnilli hjónanna. Og þó að liún tæki ekki virkan þátt í starfi lians l)á liughreysti hún hann og hvatti. Um Lúther stóðú mikil veður og hon- Om var ómetanleg stoð að þvl að eiga gott heimili. Hann var oft huggunar þurfi. Þessi andans jötunn, sem oft var hrókur alfs fagnaðar var stundum svo dapur að Iionum íá við sturlun. Og þá kom lil kasta Katharinu. Einn daginn var hún komin i sorg- arbúning. , Hvað á lae11a að ])ýða?“ spurði Lúther skelkaður. „Eg er i sorg af því að guð er dáinn,“ svaraði hún. Hann starði á hana og spurði hvert lnin væri að fara. „Guð hlýtur að vera dáinn úr þvi að svipurinn á þér er svona,“ svaraði luin. Og ])á var isinn brotinn. Liitlier fór að skellihlæja. Það var ekki vandalaust að vera húsmóðir í þessu stóra hiisi. Kathar- ina var önnum hlaðin frá morgni til kvölds. Hún hafði að vísu margt vinnufólk en þóttist þurfa að líta cftir ölln sjálf. Stofurnar urðu að vera hreinar og þrifalegar, lierbergin allt- af með uppbúnum rúmum, og til taks ef gesti bæri að garði, og það var oft. Þarna komu bæði háttsettir klerkar og furstar með frúr sínar. Og liún hafði veg' og vanda af fjármálunum. Því að Lútiier var óviti á peninga. Hann liafði að visu prófessorslaun og gera má ráð fyrir að oft liafi heimil- inu ltorist gjafir, en þó var oft þröngt i búi. Því að Lúther jós út peningum á báða bóga og lét engan synjandi frá sér fara. Svo að Katliarina var oft mædd. Og stundum kom hann heim með fjölmenni án þess að hugsa um hvort nokkur matarbiti væri til á lieimilinu. Katharina varð að sjá fyr- ir því. Hún eignaðist sex börn og umönn- unin fyrir þeim bættist ofan á allt annað. Og hún varð að sjá fyrir pen- ingunum lil að kosta börnin til náms. ög svo langaði hana til að þau hjónin létu eitthvað eftir sig. Hún fór að rækta grænmeti til að afla sér auka- tekna og rak að lokum stóra garð- yrkjustöð. Henni tókst að eignast tvær jarðir í nánd við Wittenberg og rak þar fyrirmyndarbú. Lútlicr dáðist að þessu og kallaði liana oft „óðalsfrúna á Lulsdorf", en svo hél önnur jörðin. Annað barn þeirra hjóna, telpa, dó fárra mánaða gamalt, og aðra dóttur, Magdalenu, misstu þau 13 árum síðar. Tóku þau sér þann missi mjög nærri. Lúther (ló 1546 og var þá staddur í Eisleben, fæðingarbæ sinum. Yngstu börnin voru svo lilit að Katharina gat ekki farið að heiman lil að stunda hann í banalegunni. Eftir að hann hafði verið jarðaður í Wittenberg skrifaði hún vinkonu sinni: „Þó að ég Framh. á næstu bls. \

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.