Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1958, Qupperneq 27

Fálkinn - 12.12.1958, Qupperneq 27
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1958 21 Þetta var heimili Eleanor Sveinbjörnsson frá 15 ára aldri til þess að hún giftist. Það heitir Bolfracks Cottage við Aberfeldy. Á myndinni sést móðir frú Eleanor, Williamina, og Winifred systir hennar. Þórður bróðir minn 1891, en ég fædd- ist 1892. Bróðir minn var heitinn eftir föðurafa sínum, Þórði Sveinbjörnsson, og ég eftir Helen frænku (frú Alex- ander Powell). Nokkru síðar keypti faðir minn slórt steinhús i Dick Place nr. 46, og þar áttum við vistlegt heimili í tíu ár, en fluttum svo í Morningside, sem var nýlegra borgarhverfi. Öll bernsku- og æskuár mín man ég eftir mörgum ánægjustundum er for- eldrar mínir áttu er landar föður míns sóttu þau heim, og sérstaklega eftir þvi hve faðir minn hafði gaman af að tala móðurmál sitt við frændur eða vini frá íslandi. Móðir mín hefir alitaf liaft mikinn áhuga fyrir því sem íslenskt er og'hefir dálæti á íslensku þjóðinni. Á árunum 1910 til 1913 ferðaðist faðir minn um Kanada og sum norð- urríki Bandarikjanna og hélt fyrir- lestra um norrænar þjóðvísur og þjóð- lög og lék sýnishorn af þeim í ýms- um hinna stærri bæja og í nýlendum íslendinga, og sumstaðar hélt hann hljómleika. Á þeim árum bjó sú hugmynd um sig lijá honum að yfirgefa Skotland og flytjast til Kanada, en svo hófst styrj- öldin 1914 og bróðir minn, sem þá var ungur læknir, fór í striðið sem herlæknir, svo að áforminu var slegið á frest þangað til styrjöldinni lyki. En 1919 fórum við til Winnipeg og nutum þar mikillar gestrisni íslend- inga meðan við dvöldum þar, og dvöldum í yndislegu sumarleyfi hjá löndum föður míns i Winnipegosis. Foreldrar mínir dvöldu i Winnipeg i þrjú ár, og eftir að ég giftist, 1921, stofnuðu nokkrir íslendingar þar sjóð til þess að gefa út verk föður míns. En árið 1922 settust foreldrar minir að i Reykjavík, eftir að rikisstjórnin þar hafði veitt föður mínum tón- skáldalaun til eflingar íslensku tón- listarlífi. Móðir mín er mjög þakklát íslendi fyrir hina niiklu stoð, sem hún og faðir minn nutu þaðan, og hún nýtur enn af opinberu fé. Foreldrum mínum leið vel á íslandi, en vegna heilsufars föður mins var honum ráðlagt að flytjast til Dan- merkur lil þess að njóta íæknishjálp- ar, og þess vegna fluttust þau þangað árið 1924. Hálfu þriðja ári seinna, 23. febrúar 1927, varð faðir minn bráð- kvaddur, sitjandi við liljóðfærið, sem hann hafði svo miklar mætur á. Móð- ir mín, sem verið hafði honum nær- gætinn förunautur frá upphafi, var með lionum til siðustu stundar. Jarðneskar leifar föður míns voru fluttar til Reykjavikur, og móðir min fór með honum þangað síðustu ferð- ina. Faðir minn hvílir í Reykjavik- urkirkjugarði. Eftir nokkurra mánaða viðdvöl yfirgaf móðir mín ísland i annað sinn og fór vestur yfir Atlantshaf til að setjast að hjá mér og manninum minum á búgarði okkar við Midna- pore í Alberta. Henni var inni- lega fagnað af okkur og barna- börnum hennar þremur. Ég gæti skrifað margt um hjálp- semi hennar og fórnfýsi, ástúð hennar og holl ráð, sem ég liefi orðið aðnjót- andi á liðnum árum, en læt nægja að segja að án liennar hefði ævin orð- ið önnur, og að ég met mikils sam- búðina við hana og dómgreind lienn- ar. Föður minum var hún elskuleg og nærgætin eiginkona, og gætti þess vel, að liann liefði jafnan þá kyrrð og næði, sem tónskáldum er nauðsyn- leg til að geta starfað. Þannig farast frú Helen orð um móður sína. En nú vikur sögunni að systkinunum tveimur, börnum frú Eleanor og Sveinbjarnar. Þau liafa bæði fengið listgáfuna að erfðum frá foreldrum sinum. Þórður liefir iðkað málaralist og tónsmíðar og Helen mál- ar og yrkir ljóð. Þórður John Wilhelm fæddist í Edinburgh 2. april 1891. Sem ungling- ur sýndi hann mikinn áhuga fyrir teilcningu og tónlist og fékk skóla- Heimili Sveinbjörnsson-fjölskyldunnar í 514 Avenue West í Calgary, Alberta. í þessir kirkju, Weem Church við Aberfeldy í Perthshire voru Eleanor Christie og Sveinbjörn Sveinbjörnsson gefin saman árið 1890. verðlaun fyrir dráttlist. Að stúdents- námi loknu gekk hann í háskólann i Edinburgh, tók próf í' undirbúnings- greinum og fékk námsverðlaun Carne- gies og lauk fullnaðarprófi í læknis- fræði 1914. Breytti hann þá um ætt- arnafn og nefnist Swinburne, því að Sveinbjörnsson var jafnan óþjált á enskri tungu. Gerðist svo aðstoðar- læknir á King Edward VII Hospital i Windsor næstu sex mánuði. í ágúst 1915 var hann kvaddur í herinn og var lierlæknir i fyrri heims- styrjöldinni næstu tvö ár í Frakklandi og Belgíu, en var þá leystur frá her- þjónustu vegna heilsubilunar. Var hann þá orðinn kapteinn. Hann flutt- ist til Kanada með foreldrum sínum 1919 og starfaði sem læknir í nokkur át í Saskatchewan og Alberta, en lieilsan leyfði honum ekki erfið ferða- lög, sem því starfi fylgdu, og lagði hann því öll læknisstörf á hilluna. En síðan hefir hann lagt meiri stund á tónsmíðar en áður og liggja margs konar verk eftir hann, m. a. sónata fyrir fiðlu og píanó og margar orgel- tónsmíðar. Tónsmíðar Þórðar munu ókunnar hér á landi, en liafa verið leiknar mikið bæði í Winnipeg og Calgary. — Þórður er meðlimur drátt- listarfélagsins í Calgary og befir oft sýnt myndir þar í borg, og einnig verið á umferðasýningum viðs vegar um Kanada. — Þórður er ógiftur og barnlaus. Hann er vel að sér i islensku og fylgist vel með i íslenskum bók- menntum. Helen McLeod, sent hún lieitir að skirnarnafni, er fædd 3. desembcr. Á unga aldri fór liún að yrkja sög- ur og kvæði, og þegar frá leið fór liún að iðka drátt- list. Hún gekk í tvo skóla í Edin- burgh, Strqtliearn College og Craig'- mount og fékk fjölda verðlauna fyrir námsafrek. 'Hún fór 18 ára í listaháskólann i Edinburgh og tók próf þaðan fjórum árum siðar og jafnframt kenn- arapróf. Jafnframt lagði hún stund á ýmsar hannyrðir og listiðn- að, svo sem skrautritun og teikn- ingu „lýstra stafa“, eins og forðum voru notaðir i vönduðum handrit- um. Varð siðan í 2—3 ár kennari list- skóla og hafði umsjón með teikni- kennslu fjögurra heimavistarskóla, en þá fastakennari við lýðháskóla í Kilwinning i Skotlandi. Eftir að hún fór vestur varð lnin listkennari í „Earl Grey Junior Higli School" og „Kelvin Iiigh School" í Winnipeg. En árið 1921 giftist hún Ralph E. A. Lloyd, óðalsbónda i Alberta, sem hafði verið í lierþjónustu í mörg ár og verið í fyrri heimsstyrjöldinni. Þau eignuðust fjögur börn; það fyrsta þeirra dó ungt, en hin eru uppkomin og öll gift. Þessi barnabörn Svein- bjarnar tónskálds eru: Benjamin Bertie Sveinbjörn (dó i bernsku). Francis Charles Sveinbjörn, kvænt- ist 1946 Iv. E. Campbell, Eleanor June, gift Dean Oltean 1948 og Jón Edric Slienstone Maclean, kv. A. E. Gibney 1950. Ralph Ernest Alwyne hafði gengið i herþjónustu 18 ára gamall, var orð- inn kapteinn er liann fór í heimsstyrj- öldina fyrri i lierdeildinni „12 th Canadian Mounted Rifles" og varð Framhald á bls. 43. Ralph Lloyd ofursti og frú Hclen.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.