Fálkinn - 13.12.1961, Side 42
Döðlukonfekt.
Notið fallegar mjúkar döðl-
ur. Takið úr þeim steininn og
setið í hans stað marsipanbita.
Cornflakestoppar.
50 g smjörlíki
1 dl sykur
50 g plöntufeiti
1 lítið egg.
1 msk. vanillusykur
4 dl cornflakes
150 g hjúpsúkkulaði.
Smjörlíki og sykur hrært
saman í skál, plöntufeitin
brædd og kæld, hrært smátt
og smátt saman við. Nú er
egginu og vanillusykrinum
hrært saman við og að lokum
er cornflakesinu blandað var-
lega í.
Mótaðar litlar kúlur, annað-
hvort með 2 teskeiðum eða
milli handanna, en þess gætt
að fara varlega, svo að flög-
urnar brotni ekki. Þegar kúl-
urnar eru storknaðar, er þeim
dyfið í bráðið hjúpsúkkulaði,
sem aðeins má vera ylvolgt.
Nægilegt er að hylja aðeins
helming kúlunnar og því auð-
velt að dýfa þeim í með fingr-
unum. Látnar þorna, geymd-
ar í luktu íláti.
Kókósbollur.
21/2 dl kókósmjöl
50 g smjör
2 dl flórsykur, sáldr.
% dl rjómi
nál. 5 msk kakaó.
Allt sett í þykkan pott, hitað
við vægan eld, hrært stöðugt
í á meðan, þar til deigið slepp-
ir pott og sleif og er sam-
fellt. Kælt dálítið, mótaðar
kúlur með 2 teskeiðum. Velt
upp úr kakaó, áður en þær eru
alveg kaldar.
Appelsínutoppar.
125 g plöntufeiti
2 Y4 dl flórsykur, sáldraðuí
5 msk kakaó
Rifin börkur af appelsínu
4 dl cornflakes.
Plöntufeitin brædd við væg-
an hita, tekin af eldinum,
kakaó og flórsykri blandað
saman við, meðan feitin er
volg einnig appelsínuberkin-
um og flögunum seinast. Sett
með teskeið á smurða plötu,
geymdir í luktu íláti á köldum
stað með pappír milli laga.
Það borgar sig að kaupa beztu tegund af kertum, — þau renna
ekki niður og þad logar lengur á þeim.
Ef hvítu kertin hafa gulnað, hvítna þau á ný, séu þau þvegin
úr vægu sápuyatni.
Blakti Ijósið á kertinu, stendur kertið annaðhvort í dragsúg eða
kveikurinn er of langur, og ekkert er auðveldara en að stytta hann.
Sé kertið of stórt í kertastjakann, þarf aðeins að bregða því
augnablik ofan í sjóðandi vatn, svo auðvelt sé að koma því á til-
ætlaðan stað.
Auðvelt er að útbúa kertáhlífar úr málmpappír, en hlífarnar
eru mjög þarfar.
Haldið alltaf hendinni bak vxð logann, þegar blásið er á kertið,
annars er hœtt við að vaxblettir fari á dúkinn og kertastjakann.
Þurfi að bora gat á kerti til að festa því, er sjálfsagt að hita
nálina fyrst yfir loga, þá rennur hún auðveldlega inn í kertið.
40
FALKINN