Fálkinn - 13.12.1961, Síða 52
REVIMIÐ
HITUN
BIALADDIN GEISLAOFN
Gefur skjótan, öruggan og þægi-
legan hita.
Gljábrenndur í kaffibrúnum lit.
ALADDIN BORÐ-LAMPI
Mjög öruggur og gefur góða og
þægilega birtu.
Fallegt útlit. SILCROM*
húðaður.
Borð-, vegg- og hengilampar
fáanlegir.
* Vörumerki.
ALADDIN INDUSTRIES LTD., ALADDIN BUILDING,
GREENFORD, ENGLAND.
Frystihiís - Utgerðarmenn
Polygon ísvélar frá Brödrene Gram A/S.
Polygonís hefur ekki skarpar brúnir, og er
því sérlega hentugur til fiskkælingar.
AKURFELL
Hallveigarst. 9. Sími 24966.
JÓLIN HEIMA
honum, að koma mér á óvart.
Maður er of viðkvæmur ef til
vill er það úrkynjun. En jól-
in eru nú einu sinni hátíð for-
eldranna. Þau eru leynivopn
þeirra.
23. desember.
Húsþökin voru alsett snjó,
þykkum snjó, þegar ég- vakn-
aði í morgun. Skýin voru
dimmblá, en hvítur snjórinn
lýsti allt upp með sinni und-
ursamlegu birtu. Þetta var
mjög fallegt á að líta. Kerl-
ingarnar sögðu að minnsta
kosti hundrað sinnum, að þær
væru svo glaðar yfir því, að
það væru hvít jól.
Auðvitað lenti það á mér að
setja fót undir jólatréð. Það
er vanþakklátt verk. Fyrst
var ég skammaður fyrir að
hafa opnað dyrnar. Eins og
það væri hægt að koma ein-
hverju inn um dyr án þess að
opna þær. Og svo varð allt
vitlaust, af því að það kom
snjór á gólfið. Og svo datt
mynd niður af vegg. Það er
alls ekki svo auðvelt að draga
stórt jólatré gegnum heilan
hóp af litlum og þröngum
dyrum. Og svo seildist ein
greinin í vasa og hann féll á
gólfið, en það var ekki mér
að kenna, að vasinn stóð
þarna. Loksins komst tréð á
sinn stað. En ég var allur í
barrnálum. Auk þess sögðu
þau, að tréð hallaðist á stall-
inum. Ég rétti það. En þá
sögðu þau, að það hallaðist til
hinnar hliðarinnar. Og svo
voru barrnálar komnar á
borðið og í sófann. Magga
sagði, að ég væri bara helvít-
is klaufi. Ég sagði henni, að
hún skyldi bara reyna sjálf.
Það var allt og sumt sem ég
sagði. En samt sem áður
spurði mamma, hvað ég héldi,
að þeir þarna uppi hugsuðu,
ef við færum að rífast á að-
fangadagskvöld. Ég svaraði,
að ég ætlaði hvorki að láta
þá þarna uppi né hina niðri
hafa nein völd yfir mér. Ég
hafði að minnsta kosti rétt til
að segja svo mikið.
Þegar pabbi kom heim, vor-
um við nýbúin að taka jóla-
trésskrautið fram. í Ijós kom,
að nokkra poka vantaði.
Pabbi sagði að við gætum
bjargað því á augabragði með
einu handbragði. Enginn væri
of ungur eða of gamall til að
búa til jólatréspoka.
Magga og ég sögðumst ekki
geta það. Pabbi varð hræði-
lega sár.
— Getið þið ekki búið til
hjartapoka, hrópaði hann.
Þegar ég var strákur bjugg-
um við til jólatréspoka á
hverjum jólum. Náðu í skær-
in Jakob. Og þú Magga finndu
límið. Svo verðum við að hafa
dagblöð til þess að hlífa borð-
inu. Hvar eru gömul blöð,
Elsa? Nú skal ég sýna ykkur.
Þetta skal verða venja hér
um jólin. Það er ekkert heim-
ili. sem ekki hefur venjur.
Sæktu pappírskörfuna undir
ruslið, Jakob. Og Magga náðu
í reglustikuna. Þetta skal svo
sannarlega verða venja hér
um jólin, einmitt þetta.
— Á allt þetta snatt að
verða venja hér um jólin?
spurði ég.
— Já, er nauðsynlegt að
fara að róta öllu til einmitt
nú? sagði mamma. — Við höf-
um svo margt annað til þess
að hengja á tréð.
— Þetta gengur eins og í
sögu, sagði pabbi. Við skulum
nú taka rauða og silfurlitaða
til dæmis, það lítur ágætlega
út. Svo legg ég ræmurnar
hverja inn í aðra og klippi til
svona. Breið rönd yzt, báðum
megin, en tvær mjóar í miðj-
unni. Sjáið þið. Hver andskot-
inn, segið þið mér, eru þetta
skæri?
Mamma sagði, að þetta
væru ósköp venjuleg skæri.
— Þú hefur rétt fyrir þér,
sagði pabbi það er ósköp
venjulegt að hafa bitlaus
skæri. En við skulum nú
byrja á þessu. Nú byrja ég að
flétta renningana saman.
Hann verður kannski dálítið
skakkur þessi. Við hengjum
hann þá bara aftast á tréð,
svo að hann sjáist ekki. Hvers
konar glanspappír er þetta,
sem þið hafið náð í?
Mamma sagði, að þetta
væri ósköp venjulegur glans-
pappír.
Pabbi sagði, að þá væri
venjulegur glanspappír að
minnsta kosti óvenjulega
stökkur. Hann varð að líma
saman bútana. Þegar búið var
að því, áttu renningarnir alls
ekki saman, annaðhvort var
annar renningurinn of lítill,
eða hinn var alltof stór. Auk
þess rifnaði allt saman aftur.
50
FALKINN