Fálkinn - 11.07.1962, Blaðsíða 35
Ðial JDiat Ðial Ðiai
atíi dial
• Byrjið daginn með DIAL
# Endið dagiim með DIAL
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl).
Þér skuluð ekki hvika hið minnsta frá hugmyndum
yðar og stefnu í þessari viku, og láta ekki gagnrýni
annarra hafa áhrif á yður. Þér eruð á réttri braut.
og stjörnurnar eru yður hliðhollar.
Nautsmerlciö (21. apríl—21. maí).
Ef yður geðjast vel að eftirvæntingu og spenningi
þá mun yður ekki leiðast í þessari viku. Þér skuluð
ekki hika við að reyna nýjar leiðir og taka djarfar
ákvarðanir. Fyrir ungt fólk verður vikan rómantísk.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní).
Vikan verður erilsöm, en lífleg. Það eru miklar
breytingar að gerast í lífi yðar og þér æt.tuð um leið
að breyta viðhorfi yðar til ýmissa mála! Eftir helgina
mun gamall vinur leita á náðir yðar.
Krabbamerkiö (22. júní—22. júlí).
Þér hafið víst verið einum of örlátur í peninga-
málunum í seinni tíð og nú er tími reikningsskilanna
kominn. Þaö er þó ekki ástæða til að neita sér allt.
í einu um allt. Hinn gullni meðalvegur ræður úrslit-
unum.
Heildsölub.
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ
REYKJAVÍK
IJmboðsmenn: H.F. HAIVIAR, Reykjavík
Ljónsmerkiö (23. júlí—23. ágúst).
Eftir annir og erfiði undangenginna vikna, fáið þér
nú loksins betri tíma til að sinna hugðarefnum yðar.
Þér mættuð gjarna vera ögn ákveðnari á vinnustað.
Það mun veita yður aukna virðingu og traust.
Jómfrúarmerkiö (2U. ágúst—23. september).
Þér verðið fyrir miklu baktali, sem stafar af
einhverju sem þér hafið sagt eða gert í ógáti. Látið
það sem vind um eyru þjóta og sinnið því alls ekki.
Rógburðurinn þagnar smátt. og smátt ef þér látið
eins og ekkert hafi í skorizt.
VogarskálarmerkiÖ (2U. september—23. október).
Margvísleg vandamál verða á vegi yðar í þessari
viku, en yður mun takast að leysa þau öll á giftusam-
legan hátt. Þér skuluð ekki hika við að leita ráða
hjá öðrum, en vandið þó vel val trúnaðarmanna yðar.
Sporödrekamerkiö (2U. október—22. nóvember).
Þér skuluð ekki örvænta þótt persóna sem er yður
mjög kær hagi sér vægast sagt mjög einkennilega
þessa dagana. Þetta líður hjá fyrr en varir og um-
fram allt skuluð þér ekki grípa til neinna stórræða.
Bogamannsmerkiö (23. nóvember—21. desember).
Yður mun finnast vikan heldur hversdagsleg og
viðburðasnauð, en litlu atvikin geta líka haft sína
þýðingu og verið skemmtileg engu síður en hinir
stórfenglegu atburðir. í ástamálunum verður vikan
hagstæð.
Steingeitarmerkiö (22. desember—20. janúar).
Það birtir til í lífi yðar í ríkum mæli þessa viku.
Öllum erfiðleikum og hindrunum er skyndilega rutt
úr vegi. Þér fáið góð tilboð, en þér skuluð þó íhuga
vandlega hvort það hentar yður. Heimilislífið verður
erfitt.
VatnsberamerkiÖ 21. janúar—18. febrúar).
Yður hættir t.il að hafa ákveðnar skoðanir og setja
þær fram á þann hátt, að svo virðist sem þér álítið
engan vita betur en yður sjálfan.
Þetta hefur særandi og óþægileg áhrif á þá, sem
þurfa að umgangast yður.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20. marz).
Ef yður tekst að skilja hismið frá kjarnanum.
mun yður vel farnast. í þessari viku. Varið yður að
fara út á braut, sem þér hafið ekki nægilega þekkingu
á, en einbeitið yður að því, sem þér hafið gott vit á.
I—
FALKINN 35