Fálkinn - 24.10.1962, Side 9
Leit getur átt sér stað við mjög erf-
ið skilyrði, — í fárviðri og hríðarbyl
uppi á jökli, í svartaþoku og skamm-
degismyrkri langt inni á öræfum. Yfir
óvæð vötn getur orðið að fara, klífa
þverhnípta hamra og jökulveggi og yf-
ir jökulsprungur og kannski með slas-
aða menn. Að inna svona verk af hendi
er ekki á færi nema sérstaklega þjálf-
aðra manna með góðum útbúnaði,
manna sem þekkja þær hættur, sem við
er að etja, og hvernig skuli bregðast
við einstökum atvikum.
Við skulum til fróðleiks rifja upp
eina leit. Það var leit að vél af Neptun
gerð frá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli. Hún fórst á Mýrdalsjökli í
desember 1953. Við skulum vitna í
heimildir frá þessum tíma. í Morgun-
blaðinu 18. desember er svo sagt frá
m. a.:
„í gærdag týndist tveggja hreyfla her-
flugvél frá Keflavíkurflugvelli ein-
hvers staðar í námunda við Vest-
mannaeyjar. Þegar síðast var haft sam-
band við hina týndu flugvél var hún
á leið til Vestmannaeyja og kvaðst
mundu vera þar um kl. 1.30. Síðan
hafði flugumferðarstjórnin hér ekkert
samband við flugvélina, en í Vest-
mannaeyjum telja menn sig hafa heyrt
í flugvél yfir eyjunum um klukkan 2.“
Og 19. desember er þetta m. a.:
„Milli hádegis og nónbils í gær tókst
amerískri leitarflugvél frá varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli að finna hina
týndu flugvél. Hafði hún rekizt á Mýr-
dalsjökul.“
Og frá fréttaritara blaðsins í Vík í
Mýrdal er þetta m. a.:
Hingað til Víkur komu í dag um
klukkan hálf fjögur, fimm manna
leitarsveit undir stjórn Magnúsar Þór-
arinssonar. Þeir höfðu síðan samband
við Ragnar Þorsteinsson að Höfða-
brekku, formann Slysavarnadeildar-
innar og var ferðin uppá jökulinn ákveð-
in. Er skemmst frá því að segja, að
Ragnar í Höfðabrekku gerðist fylgdar-
maður leiðangursmanna Flugbjörgun-
arsveitarinnar upp á jökulinn, en með
Ragnari fóru tveir synir hans. Munu
þeir ekki létta ferðinni fyrr en þeir
koma á slysstaðinn, sem tæplega verð-
ur fyrr en milli 3—4 í nótt. Með þeim
félögum fóru og 7 menn úr Álftaveri
og var farið á fjórum bílum.
Ekið var austur að Hólmsárbrú í
Skaftártungu, þaðan út af þjóðveginum
sunnan árinnar í stefnu á Sandfell, sem
er austur undir jöklinum, þar átti að
leggja upp á jökulinn. Töldu mennirnir
úr Álftaveri sennilegt, að bílfært væri
alla leiðina, þótt ekki sé hún greiðfær
FÁLKINN
kynnir lesendum sínum Flug-
björgunarsveitina og starfsemi hennar
FÁLKINN
9