Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1962, Qupperneq 10

Fálkinn - 07.11.1962, Qupperneq 10
Myndin. hér að ofan: Langþráðu tak- marki náð. Ríkharður tekur við bikar íslandsmótsins fyrir hönd Akurnes- inga. Fyrsta mynd til hægri: Rík- harður skorar eitt af sínum fallegu og óverjandi mörkum. Önnur mynd til vinstri: Ríkharður í Koblenz 1951, en þar dvaldist hann í þrjá mánuði og kynntist þar mörgum stórum í knattspymuheiminum. Þriðja mynd til vinstri: Dómari aðstoðar Ríkharð eftir meiðsli í leik. Myndin að ofan til hægri: Skemmtileg mynd af Rík- harði tekin af Willy Henrikssen, ljós- myndara hjá Billed-bladet. 10 FÁLKINN þetta sumar til Noregs og við Hermann Hermannsson vorum fengnir að láni, ef svo má segja. Þessi ferð var nokkuð gagnrýnd vegna þess, að K. R. átti marga í landsliðinu og fyrirhugaður var leikur í Árhus við Dani rétt í þann mund sem Noregsferðinni var að ljúka. En af ferðinni varð nú samt, og er einhver sú eftirminnilegasta sem ég hef farið. í þessari ferð kynntist ég fyrst K. R. og það var allt öðruvísi en ég hafði búizt við. Þetta var upphaf að mikilli samvinnu, sem ég hef verið mjög ánægður með, og vona að K. R.-ingar geti sagt það sama. Okkur gekk mjög vel í þessari för og við spiluðum marga leiki. í leik okkar við Valerengen kom fyrir nokkuð broslegt atvik. Ég var kominn vel inná vítateiginn með bolt- ann og skaut, en það fór heldur illa því boltinn lenti í brjósti markmanns- ins sem kom hlaupandi á móti. Ég hljóp áfram og markmaðurinn bar fyrir sig öxlina, en það er sá staður sem helzt má hrinda á, og þetta er í eina skiptið sem ég hef borið markmanninn í markið með boltann. Þetta var, eftir því sem mótspilararnir sögðu á eftir, löglegt mark. og markmaður hefði borið sig kjánalega að, en einhverra hluta vegna var þetta dæmt ógilt. Seinna í leiknum var Hörður Óskarsson að spyrna og vildi þá svo til að boltinn kom í bakhluta dómarans með þeim afleið- ingum að sá fyrri lak vindlaus niður. Þetta var hefndin hjá Herði. — Eitt sinn fórstu til Þýzkalands og dvaldir þar í nokkra mánuði? — Já árið 1950 kom hér á vegum Fram þýzkt lið TUS Neuendorf og þá buðu þeir einum manni frá Fram utan til þriggja mánaða dvalar næsta ár. Það sótti enginn um þetta nema ég, og í ársbyrjun 1951 fór ég utan með Detti- foss til Hamborgar. Það munaði minnstu að þessi ferð yrði ekki lengri því af ókunnugleika hafði ég ekki feng- ið nægilegar uppáskriftir á vegabréfið. Þarna í Hamborg var þá staddur Vil- hjálmur Finsen, en bróðir hans Ólafur hafði verið héraðslæknir heima í mörg ár og þekkti ég Ólaf vel. Gerði ég nú ferð á hendur Vilhjálmi og tók mér það bessaleyfi að skila kveðju frá bróð- ur hans um leið og ég tjáði honum vandræði mín. Tók hann mér mjög vel og greiddi götu mína þannig að fjór- um dögum síðar gat ég haldið ferðinni áfram til Koplenz. I Koplenz var ég rúma þrjá mánuði í góðu yfirlæti. Þai' kynntist ég ýmsum mönnum sem voru stór nöfn í knattspyrnuheiminum, og nokkrum sem áttu eftir að verða heimsmeistarar, svo sem Fritz Walter og bróður hans Othmar. Meðan ég dvaldi þarna kom lið frá Vínarborg sem hét Rabit Vin mjög gott lið og skemmti- legt. Það var ákveðið að ég fengi að leika á móti þeim, en á síðustu æfingu meiddist ég og gat því ekki verið með. Ég hef ekki í annan tíma orðið sárari. í þýzka liðinu voru fimm menn sem seinna áttu eftir að verða heimsmeistarar, en þeir töpuðu þarna fyrir Austurríkismönnum. — Og svo lá leiðin heim á Akranes? — Já ég lauk fyrst námi en fór upp- eftir um helgar og æfði. í byrjun júní flutti ég svo alfarinn uppeftir. Þetta ár vann Akranesliðið íslandsmótið í fyrsta sinn. — Þið voruð þá tveir bræður í liðinu. — Já eldri bróðir minn Jón S. Jóns- son var með í þessu móti en hann varð að víkja fyrir yngri bróður sínum Þórði, þó ekki fyrr en árið eftir. Það er enginn annars bróðir í leik. — Og uppúr þessu hófst frægðarferill Akranesliðsins? — Þarna uppfrá var um þetta leyti allstór hópur sem vildi spjara sig í þessum efnum, og sýndi mikinn áhuga, enda lét árangurinn ekki á sér standa. í þessu sambandi langar mig til að minnast á eitt atriði. Af þeim kjarna sem myndaði þetta lið vorum við níu eða tíu algjörlega bindindismenn á vín og tóbak, þrír eða fjórir sem eitthvað fitkuðu við þetta, og tveir sem í dag mundu alls ekki vera taldir óreglu- menn. Ég lít mjög stórt á þetta atriði. Nú er þetta breytt, ekki aðeins heima heldur alls staðar. Síðan þetta var höf- um við alltaf verið á toppinum, aldrei

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.