Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1962, Page 14

Fálkinn - 07.11.1962, Page 14
Mf«n WiT^Tff CSWTM AvACiSi JEM AvK Æ+ VI Æ"+ V^V w v vn V M VI wKSwltf ZlITliIiESi Allir sem búnir eru að slíta barns- skónum muna „ástandsárin“ þegar her- menn í mosagrænum búningum þrömm- uðu um stræti og torg og „landinn“ varð að fá bevís til þess að ferðast til vissra staða innanlands. Bílar sem óku fyrir Hvalfjörð voru stöðvaðir til rann- sóknar efst á Kjalarnesi og hjá Þyrli, Reykjavíkurflugvöllur var bannsvæði og þaðan flugu flugvélar seint og snemma til árása á kafbáta óvinanna er sátu fyrir skipalestum. Loft var lævi blandið, árekstrar milli hermanna og borgaranna og milli hermannanna innbyrðis. Allt bar vott um hverfulleik þessa lífs. Hinir ókunnu gestir, sem flestir dvöldu hér gegn vilja sínum leit- uðu skemmtana þegar færi gafst; her- lögreglan hafði í mörgu að snúast svo maður nú ekki tali um vora eigin lög- reglumenn en kvöld eftir kvöld fylltu hermenn danssalinn að Hótel ísland, Oddfellowhúsið og síðast en ekki sízt. Hótel Heklu. Þar var dansað og þar var líka slegist oftar og hraustlegar en á öðrum danshúsum í miðbænum. Og her- náminu fylgdi aukin atvinna og pen- ingar. Hver skussi var yfirborgaður og gerfimenn í flestum iðngreinum urðu til. „Sjoppur“ spruttu upp eins og gor- kúlur. Stríðsgróðinn setti margan mann- inn svo rækilega út af strikinu, að sennilega líða enn nokkur ár áður en þjóðin nær sér að fullu og vinnumórall og peningar halda innreið sína að nýju. 'k Árla morguns hinn 1. maí 1941 öslaði skipalest inn Faxaflóa. Gráir skips- skrokkar klufu hafflötinn, tveir tundur- spillar sem sigldu í hringi og kráku- stigum kringum stór skip með dýr- mætan farm. Skipin komu sunnan úr hafi, þar sem stóra skipið hafði orðið fyrir vélarbilun og orðið af skipalest- inni. Úlfgrárri næturþokunni létti þegar skipin þrjú sigldu inn eftir bugtinni og akkerum var kastáð á ytri höfninni, eftir sjóferðina frá Halifax í Kanada. Stóra skipið var SS. Cireassia, stórt farþegaskip, sem tekið hafði verið til herflutninga og hingað flutti það norska flugsveit, fyrstu norsku her- mennina sem stigu á land á íslandi í styrjöldinni, og meðal þeirra þrjú hundruð hermanna sem skipuðu þrjú hundruð og þrítugustu flugdeild norska flotans, var einn íslendingur. Norska flugdeildin gekk á land í Reykjavík og flutti í braggahverfi Nauthólsvíkur, sem brezki herinn rýmdi þá sömu dagana. Ekki var aðkoman glæsileg, niðurnýddir her- mannabraggar, götóttir og skítugir svo að vindar loftsins léku þar lausum hala ef hvessti og enginn þurfti að kvíða þorsta innan dyra í rigningu. Matarílátin fyrsta kastið voru sundur- skornir benzíndunkar, því matarílátin lágu í sokknu birgðaskipi einhvers staðar í Atlantshafinu. Norðmenn hófu strax endurbætur á húsakynnum í Efsta myndin er af Nirði Snæhólm í einkennisbúningi norska hersins. Þar fyr- ir neðan sést hann ásamt konu sinni, Magnhild Hopen. Og neðst stendur hann við eina af vélum norska sjóhersins. Til hægri: SS. Cireassia, farþegaskipið, sem tekið hafði verið til herflutninga og flutti fyrstu norsku hermennina til íslands, þar á meðal Njörð Snæhólm. Í smmíjþ.?| '5, . - 2

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.