Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1962, Síða 19

Fálkinn - 07.11.1962, Síða 19
Svalan októberdag gerðust atburð- ir, sem vöktu ugg í brjóstum manna hvarvetna um beimsbyggðina. Það var óþyrmilega stuggað við okkur i störfum hversdagsins. Ríkisútvarp- ið framlengdi dagskrá sína til þess að bíða frekari fregna, en slíkt kem- ur sjaldan fyrir i þeirri stofnun. Menn biðu við útvarpstækin milli vonar og ótta. Gat átt sér stað, að þriðja lieimsstyrjöldin brytist út með öllum þeim ógnum og skelfingum, sem liún mundi leiða yfir heim- inn? — Lesendur vita án efa við livaða atburði hér er átt. Skyndilega syrti i álinn i bdmsmálunum í sam- bandi við Ivúbu. Kennedy flutti ræðu sína klukkan liálf tólf eftir íslenzk- um tíma þennan dag, og eftir henni að dæma mátti búast við hinu versta. Margir voru sannfærðir um, að inn- rás á Kúbu yrði gerð um nóttina, og þar með var styrjöld skollin á. — Hver skyldu viðbrögð almennings hér á landi hafa orðið við þessum tíðindum? FÁLKINN brá sér i leið- angur strax daginn eftir að þessi válegu tíðindi gerðust, og lagði þess- ar spurningar fyrir fólk á förnum vegi: Ilvernig leið þér í nótt? Varstu gagntekinn striðsótta? Svör átta manna úr ýmsum starfsgreinum þjóðfélagsins birtast á næstu tveim- ur siðum, og er fróðlegt að kynna sér þau. Þau leiða okkur þann sann- leika i ljós, að enda þótt við Is- lendingar þekkjum ekki stríð í þess orðs fyllstu merkingu nema af kvik- myndatjaldinu, virðast margir sem fylgjast með daglegum fréttum hafa verið órölegir og óttaslegnir. Flestir virðást hafa vonað, að málið yrði útkljáð með samningum, og þegar þessar línur eru hripaðar niður, er allt útlil fyrir, að svo verði. Þar mcð er hættan vonandi liðin lijá að sinni. En hvenær kemur sá dagur, að ótti við styrjöld er svo fráleitur, að mönn- um kemur liann ekki til Iiugar? í VPD 11 24 Hver eru viðbrögð þín við vaxandi striðshættu? — FÁLKINN spurði félk á förnum vegi um þetta daginn eftir að Kennedy flutti ræðu sína urn Kúbumálið

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.