Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1962, Blaðsíða 36

Fálkinn - 07.11.1962, Blaðsíða 36
PANDA □□ SAFNARINN MIKLI Goggi horfði á, þegar Ho Hum og hinn lipri en digri þjónn hans voru dregnir niður í göturæsisopið af hinum reiða verkamanni. Hann neri saman lófunum af ánægju. Nú heyrði hann, að þeir voru farnir að slást niður í holunni. „Ég held, að það væri bezt fyrir mig að hypja mig.“ En það var erfitt að ganga með fæturna bundna um hálsinn á sér. En brátt fann Goggi, að hendurnar komu honum að jafnmiklu liði og fæturnir gerðu áður. Ekki hafði hann farið langt, er hann mætti þeim Eggert safnara og Panda. „Sæll, félagi“, hrópaði Eggert, „má ég ónáða þig í leikfimis- æfingunum." Panda og Eggert leystu hnútinn. „Þetta var samt dálítið hættulegt mínum mjúka skrokk,“ sagði Goggi og andvarpaði. „Corpus delicti" eins og vér latínu- menn orðum það. Ég þakka ykkur kærlega fyrir vinir mínir“. „Hvað kom fyrir?“ spurði Panda. „O, ég mætti nokkrum Austurlandabúum, sem tóku dálítið óvenju- lega í hendurnar á manni, höfðu óvenjulegar handa- bandskveðjur.“ Á meðan þetta gerðist á götunni var barizt í holunni, en brátt hafði Mo, þjónn Ho Hums algerlega yfirbugað hinn reiða verkamann. Hann hafði tekið hann óvenjulegum Judo tökum, sem verkamað- urinn gat ekki varizt. Þeir Ho Hum og Mo flýttu sér því næst upp úr holunni og komu fljótlega auga á Gogga, þar sem hann var að fara fyrir horn ásamt þeim Panda og Eggerti safnara. „Þjófurinn, sem stal vasanum hans afa sáluga, má ekki komast undan“, hvæsti Ho Hum. „Náðu í hann.“ „Komið inn og látið fara vel um ykkur, vinir mínir“, sagði Eggert og bauð þeim inn. „Ég skal gefa ykkur gott te.“ Goggi tók Eggert á orðinu og var ekki seinn á sér að leggjast upp í dívan. Þar saup hann á teinu. En Eggert safnari gerði ekkert annað en þakka honum fyrir vasann. „Meðal annarra orða“, sagði Panda, „hvernig náðirðu í vasann?“ „Uss, uss, vinur minn“, svaraði Goggi valdsmannslega, við safnarar spyrjum aldrei slíkra spurninga“. „Alveg rétt“, svaraði Eggert, „við ættum frekar að vera glaðir yfir því að hafa náð í vasann“ . . . En um leið og hann ætlaði að fara segja eitthvað meira, var gluggarúða brotin og inn skriðu Ho Hum og Judo-kappinn Mo. 36 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.