Fálkinn


Fálkinn - 17.04.1963, Qupperneq 8

Fálkinn - 17.04.1963, Qupperneq 8
Frá bæjarhólnum í Reykjanesi er út- sýni fagurt, nesið blasir þar vel við, úfið hraun og lábarðar klappir á yztu nefum; Valahnjúkur í suðvestri, hár og tignarlegur. Þar stóð gamli vit- inn á Reykjanesi áður. í austri sér í grænan blett umhverfis hverina. Og ljós reykurinn liðast til lofts; ber hann til okkar angan brennisteins. Að baki okkar gnæfir vitinn, há, hvít súla. Léttir í spori göngum við niður túnið. Það er sólskin og hiti himinninn heiður, Húllið er eins og spegill. Þar lóna nokkrir bátar. Þeir eru á línu. í fjarska rís Eldey úr hafi. — Þarna er Karlinn, segir Gamalíel Jónsson, títt nefndur Manni á Stað, hér um slóðir. Hann bendir okkur á drang einn mikinn, sem skagar upp úr sjónum. — Og þarna er Kerlingin og þarna er Strákurinn. Það er víða, sem nátttröllafjölskyldur hafa dagað uppi. Og áfram er haldið. Við erum í svolitlum dal í hrauninu. Það glittir á lítið lón innan við malar- kamb þann, sem liggur milli Vala- hnjúks og nessins. — Strákar, segir Tómas Þorvaldsson, formaður björgunarsveitar slysavarnar- félagsins Þorbjörns í Grindavík, — hérna í lóninu er einhver sú bezta laug frá náttúrunnar hendi, sem ég veit um. Hér er sjórinn heitur. Ég lærði að synda í þessari laug. Það þarf bara að hreinsa hana, þá verður hún ein bezta útilaug á landinu. Hugsið ykkur, heitur sjór. Við höfum nú gengið túnið á enda og klifrum yfir girðinguna. Stefnan er tekin fram á nesið. — Ætli það sé ekki bezt, að við för- um götuna, sem liggur þarna fram á klappirnar, segir Manni á Stað. Þetta er þröngur jeppavegur og brátt beygjum við frá honum og höld- um niður að sjónum. — Við verður fljótari að finna stað- inn, ef við förum meðfram ströndinni, segir hann. Aldan gefur klöppunum selbita öðru hverju og löðrið þeytist hátt í loft upp. — Þetta er nú ekkert, segir Tómas, þið ættuð að sjá brimið, þegar hann stendur á land. Torfærurnar eru margar, hraunið er erfitt yfirferðar hér, nema á sléttum klöppunum. — Heyrðu, Manni, spyr Tómas, áttu hnífinn enn? — Hvaða hníf? spyr ég. — Það var svona sveðja, segir Manni og teiknar fyrir okkur gripinn með fingrinum, — strákurinn minn tók hann af einum Kínverjanum á Clam. Ég veit ekkert um þennan hníf núna. Ég not- aði hann þegar strandið varð til þess að rista fötin af mönnunum. Þau voru olíuborin. — Og þegar ég ætlaði að skera utan af einum Kínverjanum fötin, varð Myndin hér að ofan er af þeim Gamaliel Jónssyni (til vinstri) og Tómasi Þor- valdssyni (til hægri) formanni björgunarsveitar Þorbjörns í Grindavík. Þeir standa skammt frá staðnum, þar sem Clam rak upp fyrir þrettán árum. Myndin hér til hægri er af Reykjanesvita og nánasta umhverfi. 8 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.