Fálkinn


Fálkinn - 12.06.1963, Blaðsíða 34

Fálkinn - 12.06.1963, Blaðsíða 34
PANDA DG UPPFINNINGAMAÐURINN MIKLI Um líkt leyti og hattasalinn hljóp út úr búð sinni, kom Hugsuðurinn inn í þorpið með vélarnar sínar þrjár. ,,Hjálp“, hrópaði hattasalinn. „Hjálp, það er vélskrímsli. .„Það hlýtur að vera vélmaðurinn minn,“ sagði Hugsuðurinn við sjálfan sig. Hann stöðv- aði vélar sínar við dyrnar á búðinni og kíkti inn fyrir. Þar var vélmaðurinn önnum kafinn við að máta hatta á Panda. Mótmæli hans höfðu engin áhrif á vélmann- inn. „Hjálpin er að koma,“ hrópaði Hugsuðurinn, „vertu þolinmóður.“ Hann hljóp að vélunum sínum og setti þær í gang og stýrði þeim síðan inn í búðina. „Til árásar, mínar fögru,“ sagði hann sigri hrósandi, „náið í hann.“ Það var sama hvað Panda gerði eða sagði, hann gat ekki stöðvað vélþjóninn í að máta á hann hatta. „Hérna er ég,“ sagði Hugsuðurinn glaðhlakkalega, „ég er hérna með nokkrar dásamlegar vélar til þess að eyðileggja vélmanninn. Það væri betra fyrir þig að víkja svolítið svo að vélamar mínar geti hafizt handa.“ Og vélarnar hófust handa. Þær snertu aðeins það, sem þær áttu ekki að snerta. „Kallarðu þetta hjálp?“ hrópaði Panda. „Þetta er miklu verra.“ Auk vélmannsins þurfti hann nú að gæta sín á vélhamr- inum, vélsöginni og vélúðaranum, sem réðust á allt, sem varð á vegi þeirra. Þessar uppfinningar reyndust gjörsamlega gagnslaus- ar í að gera vélmanninn óvirkan. Vélarnar eyðilögðu nefnilega allt, nema vélmanninn. „Stöðvaðu þessar vélar,“ hrópaði Panda. En nú var ekki lengur hægt að stjórna vélunum. Vélmaðurinn hélt áfram að máta hatta og vélarnar söguðu, úðuðu og hömruðu allt, sem var inni í búðinni. Hávaðinn var ógurlegur og varð til þess að lögreglumaður þorpsins kom á vettvang. „Nújá“, sagði lögreglumaðurinn, „hér er hinn snar- vitlausi uppfinningamaður að verki. Það er kominn tími til að stanza þessa vitleysu, svo að ekki hljótist illt af.“ 34 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.