Fálkinn


Fálkinn - 18.11.1963, Qupperneq 20

Fálkinn - 18.11.1963, Qupperneq 20
KONUNGIR K Elizabet Taylor lék Kleópötru í samnefndri kvikmynd, síðasta vogunar- spil Zanuck karlsins. Undir þeirri mynd verður það komið, hvort hann verður enn þá ríkari, eða beiningamaður, þessi gamli, en sígildi fjárhaettu- spilari kvikmyndaiðnaðarins. Sá sem bar hitann og þungann af kvikmyndinni Kleopötru heitir Darryl Francis Zanuck og er einn af stærstu hluthöfunum í kvikmynda- félaginu Twentieth Century-Fox. Þessi litli maður er einn sem til er í Hollywood. Zanuck er fæddur í borginni Nebraska 5. september 1902. Faðir hans Frank Zanuck á ættir sínar að rekja til Indiána, og vann sem næturvörð- ur á hóteli þar í borg, um það leyti sem Darryl fæddist. Móðir hans hét Loesie Tropin og var svissnesk. Þau eignuðust fjölda barna og var því oft mikið basl á heimilinu, svo þau ákváðu að flytjast til Los Angeles og leita gæfunnar þar, en fundu hana ekki þar. Svo þau ákváðu að koma Zanuck fyrir hjá afa sínum, Henry Tropin, þegar hann var um það bil 6 ára gamall. Karl hélt mikið upp á Zanuck, kostaði hann í dýrustu skóla og meira að segja til útlanda. Sem sagt, Zanuck ólst upp í góðu yfirlæti. Zanuck fékk snemma áhuga á kvikmyndagerð, og ekki leið á löngu þar til að hann hafði aflað sér svo mikilla peninga, að hann gat gerzt hluthafi f kvikmyndafélagi, og fyrir valinu varð Warner Brothers. Fyrsta kvikmyndin sem hann stjórnaði þar hét „The Jazz Singer“, í aðalhlutverki var sjálfur A1 Jolson. 20 FALKINN Zanuck varð brátt frægur kvikmyndafram- leiðbeinandi og stjórnandi, en svo lenti hann í rifrildi við Cy Feuer, sem var einn að- alframleiðandinn þá. Þá hætti hann hjá War- ner Brothers og fór til Twentieth Century-Fox, þar sem hann er nú búinn að stjórna mörgum kvikmyndum. Frægastar þeirra eru Ben-Hur, The Vikings, Spartacus, The Longest Day og nú sú nýjasta Cleopatra. Alls telur hann að hann sé búinn að stjórna um 50 kvikmyndum. Það sem einkennir Zanuck svo mjög er hinn ódrepandi kjarkur hans og vogun í peningamál- um. Til dæmis með Cleopötru. Nú hefur hann lagt alla sína peninga í hana og nú er það á valdi Elizabeth Taylors að bjarga milljónum Zanuck. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem hann leggur alla sína peninga í einhverja mynd, því það hefur hann oft gert áður og ekki hefur alltaf vel farið, því stundum hefur hann misst allar sínar miljón- ir. En ávallt er hann reiðubúinn að setja allt í » borð aftur. Þegar hann er spurður um það hvað hann haldi um sambandið milli Elizabeth og Richard Burton, verður hann umburðarlyndur á svipinn og segir; „Ég veit ekkert um hvað / þau hafa verið að gera, en hvaS sem það er, vona ég að þau geymi með að segja það þar til að byrj- að verður að sýna kvikmyndina. Zanuck er lítill maður aðeins rúmlega 170 cm, vegur 145 pund (þremur pundum minna en hann gerði fyrir 20 árum siðan) með stálgrátt hár, en yfirvaraskegg hans er enn þá ljósrautt, og bláu augun hans eru eins og þau séu gerð úr stáli. Og röddin, hún er sko ekkert smáræði, hún er svo sterk, að ef Sonny Liston myndi hlusta á hann, yrði hann ábyggilega tauga- óstyrkur. Hann á þrjú uppkomin börn, sem öll eru gift. Hann lifir mjög ströngu einkalífi; eyðir öllum sínum einkatímum með konu sinni og barnabörn- um, en þau eru alls tólf. Hann er mikill matmað- ur og eyðir gjarnan miklum tíma í að borða. Þegar hann var 18 ára gaf ahnn út sína fyrstu bók, hún hét „Mad Desire“. En síðan hafa komið út margar bækur eftir hann, og sú síðasta heitir; „Write a book“, skrifaðu bók. Hans uppáhalds orðtæki er: „Þú verður að eyða peningum til þess að græða peninga!"

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.