Fálkinn


Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 4

Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 4
GJAFAVÖRUR Sendum heim og í póstkröfu. VALVER hf. Laugavegi 48 — sími 1-5692 Um Bítia og unglinga. Háttvirta blað! Ég hélt að það ætti ekki eftir fyrir mér að liggja að skrifa í blöðin. En nú er svo komið að ég get ekki orða bun- izt á prenti. Að vísu er mér lítið til þeirrar listar lagt að geta haldið á penna en þó vil ég festa niður hér nokkrum orðum að því er lýtur Bítlana oft nefndu og unglingana. Fyrir nokkru síðan var við- tal í stærsta dagblaði landsins við unglingspilt sem hafði gert sér það erindi þrjátíu sinnum að sjá kvikmynd þar sem Bítl- arnir fóru með aðalhlutverkin. Ég hef heyrt marga hneykslast á þessu viðtali og segja að svona nokkuð eigi ekki að birta í blöðunum. Þessu er ég algjör- lega ósammála. Mér þótti þetta viðtal bæði skemmtilegt og fróðlegt. Skemmtilegt vegna þess að það opnaði manni nýja innsýn í hugarheim fjölda ung- menna. Mér hafa sagt menn sem stundað hafa barnakennslu árum saman að orðaforði barna fari minnkandi með hverju árinu sem líður. Ég er nú að vísu ekki nema rúmlega þrí- tugur en mér finnst eins og flest það fólk sem er svona tíu árum yngra hafi miklu minni orðaforða heldur en ég og jafn- aldrar mínir. Þetta finnst mér koma berlega fram í öllu er lýtur að atvinnuvegum þjóðar- innar sjávarútveg og landbún- aði. Þetta kann að vera ofur eðlilegt. Það eru mörg börn borgarbúa sem ekki hafa að- stöðu til að komast í sveit á sumrin og þannig fara þau á mis við margt í málinu. Það er uppi á teningnum varðandi sjóvarútveginn. Þau börn sem alin eru upp í sjávarþorpum og bæjum hljóta í veganesti miklu fjölbreyttari orðaforða. Annars var það ekki orða- forði og málfar ungmenna sem ég ætlaði að gera að aðalum- ræðuefni í þessu bréfi heldur áhugamál þeirra. Þeir sem hug- leiða þetta mál hljóta að sjá að hverju stefnir þegar ungl- ingar fara þrem fjórum sinnum að sjá sömu mynd eins og þessa með Bítlunum. Látum það nú vera þótt þeir fari einu sinni en þegar ferðirnar fara að skipta tugum litur málið öðru- vísi út. Mér var um daginn sögð ágæt saga af átta ára gamalli stúlku sem gat ekki sofið eina nóttina og grét vegna þess að spáð hafði verið að Bítlarnir mundu farast daginn eftir. Slík er sefjun ungmenna. Þetta er mál sem allir uppal- endur þurfa að láta til sín taka. Með þökk fyrir ágætt efni af og tiL Sveinn. Svar: Þetta bréf þarfnast ef til vill ehlú svars en þaS er eins og feniO veröi svolítiö þvoglulegt og ekki alveg Ijóst hvaO þú ert aö fara, Sveinn minn. 1 Öskuhaugamir Iokaðir á kvöldin. Háttvirta blað! Hrein torg — fögur borg, stendur á fallegum ruslaköss- um sem festir eru upp á Ijósa- staurunum við aðalgötur mið- borgarinnar. Þetta er áminning til borgaranna að ganga hrein- lega um borgina sína og safna ekki saman óþarfa drasli og henda ekki bréfum og slíku í göturæsin heldur setja það í þessa þar til gerðu kassa. Já, og vissulega er þetta þörf áminning. Það er furðulegt hvað fólk getur gengið hirðú- leysislega um lóðir sínar og eigur. En um daginn varð ég fyrir dálitið eikennilegri reynslu í þessum efnum. Ég ætla ekki að segja dulrænni reynslu en dá- lítið var hún dularfull. Ég hafði um nokkurn tíma verið að fara gegnum mitt góss og taka það til sem á öskuhaugana mátti fara að skaðlausu og verða að nytsömum skarna til að bera á lóðir manna og til aukins gróðurs. Þegar ég hafði dund- að við þetta nokkur kvöld og hafði lokið gegnumferðinni var þetta orðið býsna mikið sem á haugana mátti fara. Þag var svo mikið að fyrirsjáanlegt var að hinar tvær ruslatunnur sem ég hef til umráða mundu enganveginn geta hesthúsað magnið. Ég hringdi því á sendi- ferðabíl og ásamt bílstjóranum bar ég dótið út í bílinn og ók- um við síðan sem leið liggur inn í Grafarvog þar sem ösku- haugarnir og sorpeyðingar- stöðin er. En þegar við áttum ófarna nokkra metra að þessu fyrirheitna landi kom í ljós að vegurinn var lokaður ramm- legagerðu hliði og lengra varð ekki komizt. Þá var klukkan hálftíu að kvöldL Bílstjórinn sem ók mér sagðist ekki hafa rekizt á svona nokkuð áður

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.