Fálkinn


Fálkinn - 23.11.1964, Page 21

Fálkinn - 23.11.1964, Page 21
ÍKI RITHÖFUIMD sem er tólf ára, er þannig líka. Nú er hún að lesa Jón Trausta. Elzti sonur minn, sem er að verða ellefu ára, hefur mikinn áhuga á læknis- fræði og les allt, sem hann kemst yfir um það efni. Þetta hefur þó sagt svolítið til sín, því ég hef haft hann hér með hvítblæði, bólusótt og alla mögulega kvilla, sem hann hef- ur verið að lesa um. En um daginn sagði ég stopp við hann í eina skipt- ið. Hann hafði orðið sér úti um bók um geðsjúkdóma, og þá þótti mér nóg komið. Við gerðum þann samn- ing, að hann fær að lesa bókina eftir tvö ár. — Og nú munt þú vera búin að skrifa barnaleikrit? — Já, Þjóðleikhúsið er sennilega að hefja æfingar á Ferðin til Limbó. Limbó er svona nokkurs konar never, never land. Þar eru boltar, sem ganga um og muna aldrei hvað þeir heita og þess háttar. Þangað komast Maggi og Malli mús, og þau kynnast af eigin raun þessu ævintýralandi. Klemenz Jónsson verður leikstjóri, en Ingibjörg Þorbergs hefur gert íögin við söngvana. — Og hvað ertu svo með meira á prjónunum? — Ég er nýlega búin með eina skáldsögu, og hún fjallar um atóm- stríð á íslandi. Ég veit ekkert, hvað ég geri við þessa sögu hvort ég sýni hana nokkrum útgefanda eða ekki. En þetta er sú saga, sem ég hef lagt mesta vinnu í, og sem stend- ur finnst mér þetta raunverulega eina skáldsagan, sem ég hef skrifað. Annars get ég sagt þér það svona í lokin, að ég er að hugsa um að fara að skrifa fyrir börnin. Það er eins og ég sagði þér áðan skemmtilegt að skrifa fyrir börn. Ingibjörg Jónsdóttir ásamt Árna syni sýnum.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.