Fálkinn - 06.06.1966, Blaðsíða 27
bhb
IHJR
IIVS OG JARÐAR
þessi halastjarna því kennd við hann. Saga þessarar hala-
stjörnu verður því rakin langt aítur í fornöld; en þá mun hún
hafa verið miklu efnismeiri og giæsilegri en nú. Fyrrum
voru halastjörnur yfirleitt álitnir fyrirboðar voveiflegra tíð-
inda.
Rómverski sagnaritarinn, Suetonius, segir frá síðhærðri
stjörnu, sem birtist á norðurhveli himins í sjö daga og var
mjög björt. Var það skömmu eftir morðið á 'Júlíusi Ceasar
árið 44 f. Kr. En þá útlagði almenningur fyrirboðann á þann
veg, að Caesar hefði verið tekinn í tölu hinna ódauðlegu guða.
Hin mikla Halley-stjarna mun og hafa verið á himni sumarið
451, þegar Attilla Húnakonungur barðist við vestrómverska
herforingjann Aetius á katalónsku völlunum. Þjóðsagan segir
að hinir föllnu hafi risið upp aftur og barizt áfram. Sögnin
segir ennfremur, að vofurnar og vopn þeirra hafi sézt greini-
lega á himni.
Árið 1066 birtist halastjarna Halleys um það leyti sem
Viihjálmur bastarður var að leggja upp til innrásar í Eng-
land. Enskur munkur, sem gerði sér ljóst, hvað í vændum
var, skrifaði um halastjörnuna á þessa lund: „í þér sé ég
uppsprettu tára hinna mörgu mæðra. Ég hef séð þig lengi,
en nú ert þú orðin enn hræðilegri. Þú ógnar landi mínu með
gjöreyðingu.“ Hinn hrollvekjandi grunur hans rættist. Vil-
hjálmur lagði undir sig England. Á hinu fræga Bayeux-teppi,
sem var ofið Vilhjálmi til lofs og dýrðar, má sjá flokk manna,
sem benda til hinnar hræðilegu stjörnu með ugg og kvíða.
En sjálfur kallaði Vilhjálmur stjörnuna góðs vita og tákn um
það, að ríki Engla æskti nýs konungs.
Árið 1453 tóku Tyrkir Konstantínópel. Þremur árum síðar
réðist soldáninn, Múhammeð II inn í Evrópu og staðnæmdist
ekki fyrr en við Beograd. Nú voru góð ráð dýr, því að félli
það virki var Tyrkjum opin leið til vesturs. En aðfaranótt 8.
júní varð á breyting. Á himni kom fram stjarna með hala
eins og dreki. Hún stefndi í átt til hálfs tungls. Hinn kristni
her var vakinn með lúðrablæstri. Eftir því sem sagnritarinn
Pontanus segir, var halastjarnan tekin sem tákn um að árás
skyldi hafin á Tyrkjaher þegar í stað. Bardagökjarkur Tyrkja
þvarr að sama skapi, þar sem halastjarnan ógnaði sjálfum
hálfmánanum — tákni Múhammeðs. — og biðu þeir mikinn
ósigur. Þannig bjargaðist Evrópa fyrir tiikomu halastjörnu.
Og enn einu sinni var það halastjama Halleys.
Ég minnist þess vel, er ég sem unglingur las mér til mikillar
skemmtunar sögu sem bar nafnið „Halastjarnan" í smásagna-
hefti Sigurðar Heiðdals, Stiklum, þar sem lýst er halastjörnu-
skeifingu kaupmanns nokkurs í íslenzku þorpi. Sú saga mun
einnig hafa stuðzt við forsögn um halastjörnu Halleys, sem
birtist síðast árið 1910
Næst fáum við að sjá hana árið 1986.
'ARLEYS
. RUSKS
with mi/k for weaningA
FARLEYS
FYRSTA
FASTA
FÆÐA
UNGBARNA
FARLEY'S kornkökur eru framleiddar úr korni, sykri og
fitu að viðbœttum ýmsum fjörefnum og steinefnum. Með
réttri notkun fullnœgir FARLEY'S öllum nœringaþörfum
ungbarna. FARLEY'S í heilum kökum eru einnig tilvalið
skólanesti fyrir börn.
FARLEY'S barnamatur inniheldur; í 100 grommum
Egqiahvítuefni .... 7,0g /itamín B1 0,28 mg
j Sykur og Dextrin 31,Og Vítamín B2 0,53 mg
önnur ko!vetni„, 48,2g Nikótinsýra 7,0 mg
Fitci. 6, Og Vítamín D
Steinefni 1,3g Jórn 21 mq
Votn 7,0g Kaik 350 mg
Kaloríur í 100 grömmum: 396
ATH. FYRiR ELDRA FÓLK EÐA LASBURÐA eru FARLEY'S
Kornkokur, EleyUar i mjólk, mjög holl og auðmelt (oe3a.
EKCO
SJÓNVARPSTÆKIÐ
SEM VEKUR ATHYGLI.
MJÖG
HAGSTÆÐIR
AFBORGUNARSKILMÁLAR
0[?[k<33
Laugavegi 178, sími 38000.
RAF-VAL
Lækjarg. 6 A, sími 11360,
FALKINN
27