Fálkinn - 06.06.1966, Blaðsíða 41
• Strip-tease
Framh. aí bls. 39.
-r- Kemur hún oft í klúbb-
inn?
— Næstum á hverju kvöldi.
Hún skemmtir sér prýðilega
hérna.
— Þér lítið á þetta sem hvert
annað starf. Þér skammizt yðar
ekki fyrir það?
— Ef ég sýndi stúlkurnar
mínar á sama hátt og gert er
á Pigalle eða Reeperbahn, þá
mundi ég skammast mín En
með mínum aðferðum — þá er
iangt frá því
• Með rafreikna
Framh. af bls. 19.
hafði m. a. atvinnurekstur á
Sauðárkróki og Akranesi, sá
um að pilturinn fengi frítt far
heim enda var orðið lítið um
farareyri.
Þótt ekki væri hægt að segja
að Ottó Jiði skort í Þýzkalandi,
var þó spart á haldið og heim-
leiðin með Eldborg, í rjóma-
iogni alia leið og mikinn og
góðan mat, var sem ‘samfelld
veizla. Eftir tíu mánaða veru
erlendis var Ottó svo aftur
heima. Hann fór strax að vinna
ýmsa verkamannavlnnu en
hafði í hyggju 'að fara fil
Reykjavíkur um haustið og
stofnsetja verkstæði. Hann
taldi sig samt ekki hafa lært
nóg og hugði á aðra utanför og
á frekara nám.
í ágúst sumarið 1939 strand-
aði norskt flutningaskip við
Norðurland. Skipið, sem var
gamalt orðið, hét Lappen og
það lá á strandstaðnum og var
ekki annað fyrirsjáanlegt, en
að það myndi liðast þar í
sundur er haustaði og veður
herti. í september skall stríð-
ið á. Samtímis hækkuðu skip
í verði og litlu síðar lét ríkis-
stjórnin ná skipinu á flot og
gera það siglingahæft. Áhöfn
var ráðin á skipið hér á landi,
en yfirmenn voru norskir.
Meðal þeirra, sem ráðnir voru,
var Ottó, A. Michelsen, skráð-
ur kyndari.
Það þótti jaðra við fífldirfsku
að ætla í siglingar á þessum
tíma, þegar fréttir bárust af
kafbátaárásum og tundurdufl-
um, og þegar Lappen sigldi
frá Akureyri til þess að lesta
útflutningsvörur á Norður- og
Austurlandi, stóðu nokkrir
frændur Ottós á bryggjunni og
kvöddu hann, næsta vissir um
að sjá hann aldrei aftur.
Þeir létu í haf frá Hornafirði
og sigldu til Noregs. Vegna
kafbátahættunnar voru ekki
farnar venjulegar siglingaieið-
ir, og eftir níu daga siglingu
sáu þeir land. Það var Hammer-
fest. Lappen sigldi svo suður
með landi innan landhelgi og
komst um síðir til Bergen. Það
var síðast í september* íslenzki
hluti áhafnarinnar að Ottó
undanteknum fór síðan til ís-
lands. Hann ætlaði að verða
áfram á Lappen, sem nú átti
að sigla tií Japan og fara víða
um Kyrrahafið. Af þessu varð
þó ekki. Þegar þeir sigldu út
Bergensfjörðinn varð spreng-
ing í skipinu og það sökk. Sagt
var að það hefði rekizt á tund-
urdufl. Þetta gerðist í logni og
blíðviðri og allir mennirnir
fóru í skipsbátana og reru í
land. Þegar Kyrrahafssiglingin
var þannig að engu orðin, fór
Ottó til Kaupmannahafnar og
leitaði fyrir sér um vinnu. At-
vinna lá ekki á lausu, en hann
átti einhverja aura í vasanum
og gat dregið fram lífið. Hann
komst um síðir á verkstæði sem
gerði við lindarpenna. Um
þetta leyti hófst vetrarstríðið
milli Rússa og Finna. Margir
í Danmörku buðu sig fram sem
sjálfboðaliða í finnska herinn.
Ottó var ,. meðpl þeipra. Þeir
stóðu í biðröð frá því klukkan
fjögur að morgni til, klukkan
f jögur um daginn í sextán stiga
frosti. Eftir að hafa sótt um,
var beðið eftir svari í nokkrar
vikur hvort viðkomandi yrði
tekinn í herinn. Áður en svar
barst frá Finnum, hafði fyrir-
tæki það sem Ottó lærði hjá
áður, boðið honum vinnu og
framhaldsnám. Hann hélt því
suður á bóginn og settist að í
Erfurt í Thúringen. Sem ungur
maður og ókvæntur, var Ottó
mikið á ferðalögum á vegum
fyrirtækisins, oft vikum saman.
Síðla árs 1940 var hann svo
fluttur til Dresden og falin um-
sjón reiknivéladeildar fyrirtæk-
isins í Dresden, Leipzig og
fleiri borgum. Vinnan var mikil
og alltaf fækkaði mönnunum,
sem hann hafði yfir að ráða.
Þeir voru fyrst ellefu, en voru
teknir til annarra starfa og um
leið jókst álagið á þá sem eftir
voru.
Striðið hélt áfram og innrás-
in í Rússland hófst. Ottó hafði
í nokkurn tíma reynt að kom-
ast að hjá öðru fyrirtæki, í
þeim tilgangi, að fá viðtækari
reynslu og læra meira. Hann
var að búa sig undir starf á
Platan er á blaðsíðu
Nafn: .................................
Heimili: ..........................
Ég vel mér nr. ........... Til vara nr.
VerSlaun úr 16. tölublaði:
Rafn A. Jónsson, Lambhól.
Vinsælar plötur í dag:
1. A Sad Day — Rolling Stones
2. 007-11 — Ventures
3. I Look for You — Sonnie and Cher
4. I am sure gonna miss Her — Gary Louis
5. Time.for Love — Petulla Clark
VINNINGS MÁ VITJA Á SKRIFSTOFU FÁLKANS.
FOTIISI FRÁ
Donni gefur vinsælustu plötuna frá
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur
FOGOKID® ^ tMtð'u’ÖSIM
Galdurinn er sá að finna plötuna, sem er falin einþvers
staðar á síðum Fálkans. — Að verðlaunum fær sá fundvísi
níja plötu, sem liann vclur sér eftir listanum hér að neðan
og platan er auðvitað frá Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga-
dóttur í Vesturveri. —Dregið verður-úr réttum laúsnum.