Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 50
26 9. október 2009 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Finnst þér ég vera feit? Nei Elza! Þú ert fullkomin! LYGARI! Ég er vel yfir 150 kíló, auðvitað er ég FEIT! Ókei, þú ert feit! Er það? Finnst þér ég vera með falleg- ar tær? Hvernig gengur þér að deila skáp með Söru? Eftir að hún hengdi ilmpokann upp, þá varð þetta frekar undarlegt. Kannski er ég að ýkja, en mér finnst eins og ég sé að breytast í konu. Ýkja? Bakpokinn þinn lyktar eins og ilmvatnsglas! Ágætlega. Held ég. Ekki vel. Vá, þvílíkt drama! Spennan er að gera mig vitlausan! Tekur hann eða tekur hann ekki eftir skugganum sínum!?! Pabbi, sýndu mér hvernig maður skrifar „kleinuhringir“. Já, skrifaðu það þarna. Og „Kókó- mjólk“ þarna líka. Svo „múffur“ og „Appelsín“. Eitthvað fleira? Nei, þetta dugar. Takk pabbi! Af hverju varst þú að breyta innkaupalist- anum mínum? „Kleinuhringir“, ókei. Hafragrautur Hafragrautur Hafragrautur Hafragrautur Hafragrautur Hafragrautur HafragrauturH afragr autur Hafr agra uturHafragra utur Hafragr Lífið er eins og konfektkassi. Þú veist aldrei hvaða mola þú færð,“ sagði For-rest Gump í samnefndri kvikmynd. Mörgum þykir sem Forrest hafi þarna hitt naglann á höfuðið og leyst lífsgátuna í einni svipan. Þeir sömu virðast hafa gleymt því að Forrest Gump var bjáni. Langflestum konfektkössum sem ég hef keypt hafa fylgt nákvæmar lýsingar á inni- haldi hvers mola fyrir sig. Ef einhver er svo ævintýragjarn að vilja endilega láta koma sér á óvart með konfekt- kassa sem skortir slíkar upplýs- ingar (sem er væntanlega á skjön við allar reglugerðir um merk- ingar á matvælum) er líklegt að sá hafi náð svipuðu þroskastigi og Forrest. Ljóst er að trúarvellusöngtextinn um hygginn mann sem byggði hús á bjargi meðan sá heimski reisti sitt á sandi lítur viljandi og ófor- skammað fram hjá lykilbreytum. Hver veit nema aðstæður til húsbygginga hafi verið mun ákjósanlegri á sandinum og því óþarfi að eyða dýrmætum tíma í leit að heppilegu bjargi. Og hver veit nema hyggni gæinn hafi farist í hörmulegu rútuslysi strax að lokinni tímafrekri vinnunni á bjarginu. Á meðan nýtti sandmaðurinn eflaust tímann í að djamma, djúsa og njóta lífsins lystisemda. Hvor þeirra er eiginlega treggáfaðri? Þá telur fjöldinn allur af fólki að boð- skapurinn í dæmisögunni um strákinn sem gólaði úlfur, úlfur! sé sá að það borgi sig ekki að segja ósatt eða ýkja. Það gæti vart verið fjær sanni. Drengstaulinn klikkaði bara á því að finna ekki upp á nýrri lygi í hvert sinn í stað þess að tönglast sífellt á þessu úlfagríni sínu. Mórallinn í sögunni er sáraeinfaldur: Ekki fara með sömu lygina tvisvar. Fratmæli og dæmalausar sögur NOKKUR ORÐ Kjartan Guðmundsson Ósykrað Hollur barnamatur fyrir 12 mánaða og eldri www.barnamatur.is Fjölbreytt og gott veganesti fyrir lífið K a t t a s ý n i n g K y n j a k a t t a Kettir velja Sýningin verður haldin 10. og 11. október 2009 í Miðhrauni 2, Garðabæ Nánari uppl. á www.kynjakettir.is Ýmis tilboð á gæludýravörum Sýningin er opin frá kl.10 - 17.30 báða dagana Helgarblaðið: Ferðalög: Heimili og hönnun: Jarðarinnar dýrustu djásn. - Blóðug saga stærstu demanta heimsins. Fréttablaðið rýnir í jólabókaflóðið Allt um Airwaves 2009 Ævintýraleg sigling til Dubai. Malla fyrirsæta í New York. Aðallitur vetrarins. Grátt aftur í tísku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.