Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 8
8 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
1 Íslandsmeistarar FH í
knattspyrnu hafa fengið nýjan
markvörð. Hvað heitir hann?
2 Íslensk kona, ættuð frá
Miðbaugs-Gíneu, er ákærð fyrir
mansal og vændisstarfsemi.
Hvað heitir hún?
3. Hver fékk viðurkenningu
fyrir áhugaverðasta barnaefnið
í sjónvarpi í Cannes?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
HEILBRIGÐISMÁL Sóttvarnalæknir
bíður nú eftir niðurstöðu grein-
ingar erlendis á sýnum sem
tekin voru hér þegar fimm ein-
staklingar sýktust af bakterí-
unni E. coli.
Fjórir þeirra sem greindust
eru búsettir á höfuðborgarsvæð-
inu en einn á Suðurlandi. Engin
þekkt tengsl eru á milli fólksins
og allir smituðust hér á landi.
„Við erum að vona að þetta
hafi verið bundið við innflutt
salat eða eitthvað þess háttar
og sé nú búið,“ segir Harald-
ur Briem, sem hvetur fólk til að
skola vel af grænmeti og steikja
eða sjóða kjöt vel. - jss
Sóttvarnalæknir:
Bíður eftir rann-
sóknum á E. coli
EFNAHAGSMÁL Ríkissjóður tekur
alls 610 milljarða króna að láni á
þessu ári, að frátöldum skuldbind-
ingum Tryggingasjóðs innistæðu-
eigenda vegna Icesave. Þetta
kemur fram í frumvarpi til fjár-
aukalaga 2009, sem lagt var fram
á Alþingi í gær.
300 milljarðar af þessu lánsfé
verða nýttir til að endurfjármagna
bankakerfið eftir hrun.
Ríkið hefur skuldbundið sig
til að leggja fram 65 milljarða
í Íslandsbanka og 72 milljarða
í Nýja Kaupþing. Gangi samn-
ingar við kröfuhafa eftir þannig
að þeir eignist meirihluta í þeim
bönkum mun þorri þeirra 137
milljarða sem ríkið ætlar að taka
að láni vegna Íslandsbanka og
Nýja Kaupþings skila sér aftur til
ríkissjóðs.
Hins vegar er enn allt óljóst um
endurfjármögnun Landsbankans,
sem nú heitir NBI. Kröfuhafar
hafa til þessa ekki sýnt áhuga á að
taka þátt í endurreisn Landsbank-
ans. Í fjáraukalagafrumvarpinu
er miðað við að ríkið taki um 140
milljarða króna lán vegna Lands-
bankans.
Þá verða tuttugu milljarðar
króna teknir að láni til þess að
leggja nokkrum sparisjóðum til
nýtt eigið fé.
Þegar fjárlögin 2009 voru
samþykkt í desember 2008 var
ekki ætlunin að endurfjármagna
bankana með þessum lántökum
heldur með því að „leggja fjár-
málakerfinu til nýtt eigið fé með
eignum sem Seðlabankinn hafði
sem tryggingu á móti veð- og
daglánum bankans og ríkissjóð-
ur keypti af bankanum eftir hrun
stóru bankanna þriggja síðastlið-
ið haust,“ eins og segir í fjárauka-
lagafrumvarpinu. „Þessi bréf
hafa reynst verðminni en reikn-
að var með og hefðu ekki nægt til
að fjármagna kerfið. Er því gert
ráð fyrir að ríkissjóður leggi nýju
bönkunum til eigið fé í formi ríkis-
skuldabréfa.“ Vegna þess að verð-
mat eigna Seðlabankans stóðst
ekki áætlanir eykst lánsfjárþörf
ríkisins um 330 milljarða.
Af áætlaðri heildarlántöku upp
á 610 milljarða eru 520 milljarðar í
íslenskum krónum en níutíu millj-
arðar eru erlend lán. Inni í þeirri
tölu eru 75 milljarða lán frá Norð-
urlöndum og Póllandi, sem ríkis-
sjóður ætlar að taka fyrir áramót
og endurlána Seðlabankanum til
að styrkja gjaldeyrisforðann.
Þá þarf 115 milljarða lántöku til
að koma til móts við hallarekstur
ríkissjóðs þetta árið. Afborgan-
ir af lánum sem áður hafa verið
tekin verða 120 milljarðar króna
í ár þannig að lántökur umfram
afborganir verða 490 milljarðar
króna. peturg@frettabladid.is
140 milljarðar
áætlaðir í lán
vegna NBI
Ríkissjóður tekur 610 milljarða að láni í ár fyrir
utan skuldbindingar vegna Icesave. 300 milljarðar
fara í bankana. Eignir Seðlabankans áttu að fara í
verkefnið en verðmæti þeirra stóðst ekki áætlanir.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Í fjárlögum forvera Steingríms J. Sigfússonar var reiknað með
að Seðlabankinn ætti eignir að verðmæti 300 milljarðar, sem yrðu nýttar til að end-
urfjármagna bankana. Það verðmat stóðst ekki og í fjáraukalagafrumvarpi Steingríms
er gert ráð fyrir 300 milljarða lántökum til bankanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
BANDARÍKIN Bandarísku kven-
réttindasamtökin The National
Organization for Women (NOW)
gagnrýna þáttastjórnandann
David Letterman harðlega í yfir-
lýsingu sem þau sendu frá sér á
miðvikudag.
Samtökin saka Letterman um að
hlutgera konur og gera vinnuað-
stæður óbærilegar. Bandarískir
fjölmiðlar hafa fjallað mikið um
mál Lettermans, en stutt er síðan
hann viðurkenndi fyrir alþjóð
að hafa stundað kynlíf með sam-
starfskonum sínum. Það gerði
hann í herbergi við skrifstofu sína.
Í ljós kom að margir samstarfs-
manna hans vissu um bólfarir
Lettermans og á meðal þeirra var
herbergið kallað „byrgið“. - th
David Letterman gagnrýndur:
Sakaður um að
hlutgera konur
DAVID LETTERMAN
DÓMSMÁL Bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi ætla ekki að áfrýja til
Hæstaréttar bótamáli vegna
tjóns við byggingu íþrótta-
mannvirkja í Versölum á árun-
um 2002 til 2004. Bærinn hafði
stefnt byggingarstjóra vegna
tjóns og galla á mannvirkjunum
og krafðist 37 milljóna króna.
Héraðsdómur sýknaði bygging-
arstjórann í sumar.
„Telja verður að sönnunar-
byrði Kópavogsbæjar í máli
þessu sé verulega þung og ekki
er hægt að afla frekari gagna
til að bæta úr því. Þær kröfur
sem gerðar voru í dómsmál-
inu eru ítrustu kröfur og eru
verulegar líkur á að þær hefðu
ekki náð fram að ganga að fullu
þó að sök hefði verið sönnuð,“
segir í umsögn Gunnsteins
Sigurðssonar bæjarstjóra. - gar
Gallað íþróttahús í Versölum:
Kópavogsbær
áfrýjar ekki
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest dóm Héraðsdóms Suðurlands
yfir karlmanni réðst hrottalega
á og nauðgaði barnsmóður sinni.
Héraðsdómur dæmdi manninn
í febrúar á þessu ári í fjögurra
og hálfs árs fangelsi. Honum var
einnig gert að greiða konunni
miskabætur að upphæð 662 þúsund
krónur.
Fólkið sleit samvistir í desember
2007. Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa aðfaranótt 9. mars 2008
ráðist á konuna á heimili hennar.
Hann hrinti henni í stofugólfið og
sparkaði í hana. Þá veitti maður-
inn barnsmóður sinni fjölda hnefa-
högga í höfuð og líkama. Hann reif í
hár hennar, sló höfði hennar ítrekað
í gólfið og þvingaði hana að lokum
til samræðis og endaþarmsmaka.
Að morgni sama dags réðst
ofbeldismaðurinn aftur á konuna
og sló hana mörgum hnefahögg-
um, einkum í kvið, bak og höfuð.
Að auki trampaði hann á konunni,
þar sem hún var í hnipri á eldhús-
gólfi íbúðarinnar.
Árásin var harkaleg og var tekið
tillit til þess í dómnum en konan
hlaut mikla áverka. Við ákvörðun
refsingar var litið til þess að árás-
in stóð yfir í langan tíma á heimili
konunnar, þar sem henni var nánast
haldið í gíslingu með rétt ársgamalt
barn sitt. - jss
Hæstiréttur dæmir mann í fangelsi fyrir hrottaleg ofbeldisverk:
Misþyrmdi barnsmóður sinni
HÆSTIRÉTTUR Staðfesti dóm Héraðs-
dóms yfir ofbeldismanni.
VEISTU SVARIÐ?