Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 30
9. OKTÓBER 2009 FÖSTUDAGUR4 ● geðhjálp
Alþjóðageðheilbrigðis-
dagurinn er haldinn hátíðlegur
á morgun. Ragnheiður Jónína
Sverrisdóttir og Bergþór
Grétar Böðvarsson hafa ásamt
fjölmörgum öðrum staðið að
undirbúningi dagsins.
„Við viljum leggja áherslu á að al-
þjóðageðheilbrigðisdagur er dagur
allra, enda snerta geðheilbrigðis-
mál okkur öll með einhverjum
hætti,“ segir Ragnheiður, yfirleitt
kölluð Jonna, en þau Bergþór eru
sammála um að geðheilbrigðismál
eigi ekki að vera eitthvert feimnis-
mál. „Þetta á að vera eðlilegt um-
hugsunar- og umfjöllunarefni,“
segir Jonna, sem er verkefnisstjóri
fyrir skemmtidagskrá dagsins sem
verður haldinn í göngugötunni í
Mjódd og í húsakynnum Hugar-
afls að Álfabakka 16, á morgun frá
klukkan 13 til 16.30.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra flytur ávarp, Páll Matthí-
asson, framkvæmdastjóri geðsviðs
LSH, verður með erindi, Herdís
Benediktsdóttir kynnir bókina
Geðveikar batasögur og eru þá
óupptalin fjölbreytt skemmti-
atriði. „Meðal þeirra sem koma
fram má nefna unglingahljóm-
sveitina Gávu, Geir Ólafs og Ingó
úr Veðurguðunum,“ segir Bergþór,
sem flytur lokaávarp. „Nú svo
verður haldið skákmót Vinjar og
ekki má gleyma myndlistarsýn-
ingum, sölu á bolum og ýmsu hand-
verki, girnilegum veitingum, vöffl-
um, kaffi og gosi á geðveikt góðu
verði,“ segir hann stríðnislega og
hlær.
Alþjóðageðheilbrigðisdagur-
inn er haldinn hátíðlegur víða um
í heim hinn 10. október ár hvert.
Honum var fyrst hrundið af stað
árið 1992 af Alþjóðasamtökum um
geðheilsu (World Federation for
Mental Health) í þeim tilgangi að
vekja athygli á geðheilbrigðismál-
um, fræða almenning um geðrækt
og geðsjúkdóma og sporna gegn
fordómum í garð geðsjúkra. Al-
þjóðageðheilbrigðisdagurinn var
fyrst haldinn hátíðlegur á Íslandi
10. október 1996, en ári áður hafði
þáverandi heilbrigðisráðherra,
Ingibjörg Pálmadóttir, ákveðið
að helga hann geðheilbrigðismál-
um. Síðan þá hefur dagurinn verið
haldinn hátíðlegur með nokkrum
hléum hérlendis.
Ár hvert er alþjóðageðheil-
brigðisdagurinn helgaður sér-
stöku þema. Í fyrra var athygl-
inni beint að málefnum ungs fólks
með sérstakri áherslu á mikil-
vægi uppbyggjandi samveru. Að
þessu sinni er yfirskriftin Öflugri
og aðgengilegri geðheilbrigðis-
þjónusta.
„Við stöndum náttúrulega
frammi fyrir niðurskurði í heil-
brigðismálum á Íslandi og höfum
áhyggjur af því, enda hefur sjald-
an eða aldrei verið meiri þörf á
sýnilegri geðheilbrigðisþjónustu
og einmitt nú. Í yfirskriftinni er
ákveðin krafa um öflugri geðheil-
brigðisþjónustu auk þess sem við
viljum minna á að fjöldi úrræða
er í boði fyrir fólk sem líður illa,“
segir Jonna.
Hún vísar í því samhengi til
tuttugu úrræða í geðheilbrigðis-
málum sem verða kynnt á morg-
un. „Þarna verður fólk frá Hugar-
afli, Lýðheilsustöð, Rauða kross-
inum og fleirum,“ segir Jonna og
bætir svo við hress í bragði. „Ég
vil bara nota þetta tækifæri og
hvetja alla til að koma í Mjóddina
núna á morgun, skemmta sér og
kynnast nýjum úrræðum og tala
við fólk sem hefur reynslu á þessu
sviði.“
Nánari upplýsingar um daginn
má finna á heimasíðunni www
.10okt.com. - rve
Geðgóður dagur er allra dagur
Ragnheiður Jónína Sverrisdóttir, Jonna, og Bergþór Grétar Böðvarsson, fulltrúi notenda geðsviðs LSH, hafa ásamt fjölda aðila
haft veg og vanda af undirbúningi Alþjóðageðheilbrigðisdagsins sem verður haldinn hátíðlegur í Mjóddinni á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON