Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 38
9. OKTÓBER 2009 FÖSTUDAGUR12 ● geðhjálp
Teflt verður í tilefni Alþjóðlega geðheil-
brigðisdagsins.
Eins og svo margt annað í vest-
rænni menningu koma orðin panik
og fóbía úr grísku. Í gegnum sög-
una hafa iðulega komið upp sagn-
ir um að venjulegar manneskj-
ur verði skyndilega gripnar af
geðveikislegum og óraunhæfum
ótta.
Orðið panik eða ofsakvíði kemur
frá gríska guðinum Pan, en hann
á að hafa hrellt fólk með brjálæð-
islegum öskrum sem ollu fólki
yfirþyrmandi ótta sem á stundum
leiddi það til dauða.
Orðið fóbía eða ótti kemur
einnig úr grísku. Sagt var frá
guðinum Phobos, syni stríðs-
guðsins Ares og ástargyðjunnar
Afródítu, og var hann tákngerv-
ingur óttans. Phobos fylgdi föður
sínum inn á vígvellina ásamt syst-
kinum sínum Deimos og Enyo en
þau voru tákngervingar hryllings
og styrjaldar. - kdk
Grísk goðafræði
og geðraskanir
Áhugavert er að skoða tákngervinga
geðsjúkdóma í grískum goðsögum.
Skákmót verður haldið í göngu-
götunni í Mjódd á morgun í til-
efni alþjóðlega geðheilbrigðis-
dagsins. Skráning hefst klukkan
15 en mótið byrjar klukkan 15.30.
Skákfélag Vinjar, Hrókurinn og
Taflfélagið Hellir sameinast um
mótshald að þessu sinni og stefnt
er á metþátttöku en 39 skráðu
sig til leiks í fyrra er mótið var í
Perlunni.
Er þetta í fimmta sinn sem
mót þetta er haldið og mun For-
lagið gefa glæsilega vinninga á
mótið sem fyrr. Glæsilegir bóka-
vinningar eru fyrir þrjú fyrstu
sætin, 12 ára og yngri, 13 til 18
ára, 60 og eldri og bestan ár-
angur kvenna. Þar að auki eru
happdrættisvinningar.
Tefldar verða sjö umferðir með
sjö mínútna umhugsunartíma.
Skákstjórar eru Hrannar Jóns-
son og Vigfús Ó. Vigfússon en
yfirdómari er Róbert Lagerman.
Allt skákáhugafólk er velkomið
og það kostar ekki krónu að vera
með. - kdk
Geðheilbrigði
og skák í Mjódd
Sigurður H. Ingimarsson, tónlistar-
maður að norðan, sem vakti mikla
athygli fyrir góðan söng í þáttunum
X-factor á sínum tíma, hefur sungið
lag og samið texta sem hann tileink-
ar Geðhjálp.
Segir Sigursteinn Másson text-
ann minna hlustendur á þá sem lát-
ist hafa vegna geðraskana og að geð-
sjúkdómar séu dauðans alvara. Þar
með sé þó ekki öll sagan sögð því
textinn lýsi líka von og trú á betri
tíð. Hvort tveggja sé mjög mik-
ilvægt að hafa í huga um þessar
mundir.
Lagið verður titillag á geisla-
disknum Geðveikt 4 sem von er á
fljótlega og Geðhjálp gefur út. Hægt
verður að nálgast diskinn á síðunni
gedhjalp.is en auk þess verður lagið
í spilun á Bylgjunni. - kdk
Minnist sorgarinnar
og vonarinnar í senn
Sigurður H. Ingimarsson samdi texta og
syngur lag sem tileinkað er Geðhjálp.
Sílfell ehf
Arnarhrauni 19
240 Grindavík
Sími : 8927959