Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 6
6 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
Tebollur
með rúsínum og með súkkulaðibitum
Íslenskur gæðabakstur
ný
tt
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Bílavarahlutir
10% afsláttur
www.apotekarinn.is
UMHVERFI „Ég held að fólk taki vel í
þetta,“ segir Hilmar Jónsson, yfir-
maður hjá tæknideild Orkuveitu
Reykjavíkur, sem þessa vikuna
hefur sett upp ljósaseríur víða um
bæinn.
Ljósaseríurnar eru settar upp
mánuði fyrr en venja er til að sögn
Hilmars. „Þetta er ákvörðun sem
tekin er niðri í Ráðhúsi. Ósk um að
lífga upp á skammdegið.“
Auk þess sem áhersla er lögð á
miðborgina eru seríur settar upp nú
á öðrum völdum stöðum, til dæmis
við Seljahlíð í Breiðholti, Grímsbæ
í Fossvogi og Sundlaug Vesturbæj-
ar. Hilmar segir að þessi ljós fái að
loga út janúar. - gar
Ósk úr Ráðhúsinu til Orkuveitu Reykjavíkur um að lífga upp á skammdegið:
Jólaljósin mánuði á undan áætlun
LJÓSIR PUNKTAR Ekki er gert ráð fyrir því að aðrar og hefðbundnari jólaskreytingar
verði settar upp fyrr en á venjulegum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
frestað ákvörðun um refsingu
yfir manni, sem veist hafði að
fimmtán ára pilti, fært hann
nauðugan í bifreið sína og ekið
honum síðan á lögreglustöð.
Pilturinn hafði verið í hópi
pilta sem kastað höfðu skoteldi
inn í garð mannsins. Hæstiréttur
taldi að brot piltsins hefði ekki
verið nægilega alvarlegt til þess
að manninum hefði verið heimil
borgaraleg handtaka. Maðurinn
var dæmdur til að greiða pilt-
inum á þriðja hundrað þúsund
króna í skaðabætur. Ákvörðun
um refsingu var frestað skilorðs-
bundið í tvö ár. - jss
Borgaraleg handtaka:
Ákvörðun refs-
ingar frestað
ORKUMÁL Ef Evrópski fjárfest-
ingarbankinn (EIB) afgreiðir
ekki þrjátíu milljarða króna lán
til Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
setur það áætlanir fyrirtækis-
ins um virkjanauppbyggingu
í fullkomið uppnám. Ef lánið
fæst verður Hellisheiðarvirkj-
un kláruð en ákvarðanir um
byggingu Hverahlíðarvirkjunar
hafa hins vegar
verið settar á
salt þangað til
fjármögnun
verkefnisins er
að fullu lokið.
Þrátt fyrir
vi lyrði neit-
aði EIB um
m iðja n jú l í
að ganga frá
láninu til OR
vegna óvissu í
íslensku efnahagslífi. Lánið var
upphaflega eyrnamerkt síðasta
áfanga Hellisheiðarvirkjunar og
fyrri áfanga Hverahlíðarvirkj-
unar. Þessar áætlanir hafa nú
breyst.
„Þó svo að þetta lán komi frá
EIB munum við aðeins klára
stækkunina á Hellisheiðarvirkj-
un en við munum ekki fara af stað
með Hverahlíðarvirkjun fyrr en
búið er að fjármagna alla fram-
kvæmdina,“ segir Hjörleifur
Kvaran, forstjóri OR. Hann segir
að ef lánið frá EIB fáist verði mun
léttara en annars hefði verið að
sækja það lánsfé sem upp á vanti
til að klára framkvæmdir. „Ef
þeir hins vegar neita okkur um
lánið verður mun þyngra að reyna
að fjármagna þetta annars staðar.
Við eigum því mikið undir því að
við fáum þessa fyrirgreiðslu,“
segir Hjörleifur.
Orkan frá virkjununum er
ætluð álverinu í Helguvík. Fjár-
mögnun þeirrar framkvæmd-
ar er ólokið. „Orkuveitan gerði
ráð fyrir því að fjármögnun við
framkvæmdina í Helguvík yrði
lokið. „Við erum því ekki með
skuldbindandi orkusamning í
höndunum. Þeir eru ekki tilbún-
ir að gefa okkur grænt ljós á að
þeir kaupi af okkur orkuna fyrr
en þeir hafa lokið sinni fjármögn-
un. Við eigum ekki von á svör-
um frá Norðuráli fyrr en á fyrri
hluta næsta árs.“
Á meðan beðið er fundar sendi-
nefndar Orkuveitunnar vegna
afhendingar á þremur vélasam-
stæðum af fimm frá fyrirtæk-
inu Mitsubishi í Japan. Afhend-
ingu vélasamstæðanna þriggja,
sem setja á niður í fyrrnefnd-
um virkjunum og kosta samtals
fimmtán milljarða, hefur verið
frestað áður. „Verið er að ræða
hvort seinkun á afhendingu
kemur til greina eða að hugs-
anlega verði hætt við móttöku
þeirra,“ segir Hjörleifur. „Það er
verið að fá viðbrögð okkar við-
semjenda við þessum kostum og
hvaða afleiðingar þeir hafi í för
með sér.“ svavar@frettabladid.is
Orkuveitan bíður í
ofvæni eftir svörum
Evrópski fjárfestingarbankinn svarar Orkuveitunni á næstu dögum hvort þrjá-
tíu milljarða lán verður veitt. Fáist lánið ekki gerir það fyrirtækinu erfitt um
vik með fjármögnun annars staðar. „Það er mikið undir,“ segir forstjóri OR.
HELLISHEIÐARVIRKJUN VIrkjunin verður kláruð ef lánið fæst. Hverahlíðarvirkjun
verður hins vegar ekki byggð fyrr en fjármögnun er að fullu lokið en hefja átti fram-
kvæmdir með hluta lánsfjárins frá EIB. Raforkan á að knýja álver í Helguvík eftir að
öðrum áfanga er lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HJÖRLEIFUR
KVARAN
DALABYGGÐ „Mér finnst gott að
hann svari,“ segir Grímur Atlason,
sveitarstjóri í Dalabyggð. Hann
fékk í fyrradag svar við tölvupósti
sem hann sendi Lars Lökke Rasm-
ussen, forsætisráðherra Danmerk-
ur. Þar gerði hann athugasemdir
við yfirlýsingar ráðherrans vegna
frétta um meðferð Dana á 22 græn-
lenskum börnum, sem voru tekin
af foreldrum sínum og flutt til
Danmerkur á sjötta áratugnum.
Í tölvupóstinum skammar Grím-
ur forsætisráðherrann fyrir yfir-
lýsingar í framhaldi af fréttum um
málið. Ráðherrann sagði að þetta
væri hluti af liðinni tíð; fortíðinni
væri ekki hægt að breyta og að
þeim sem tóku börnin af foreldrum
sínum hefði gengið gott eitt til.
Í bréfi Gríms sagði hann forsæt-
isráðherrann tala eins og hægri-
öfgamaður. Málflutningur hans
væri málflutningur nýlenduherra.
Danmörk skuldaði grænlensku
þjóðinni afsökunarbeiðni og
fjölskyldum barnanna skaða-
bætur.
Grímur segir það hneyksli
að meðferðin á grænlensku
börnunum hafi hvorki fengið
næga athygli hjá Dönum
né hér á landi. „Það er
dálítið síðan ég skrif-
aði þetta bréf og átti
ekki von á að fá
þetta svar,“ segir
Grímur.
En í fyrradag
barst honum
vestur í Dali tölvupóstur frá
danska forsætisráðuneyt-
inu með viðhengdu bréfi frá
ráðherranum sjálfum. Lars
Lökke segist hafa fengið bréf
Gríms og vísar í efni þess en
áréttar svo það sem varð Grími
tilefni skrifanna án þess að
lofa neinni afsökunar-
beiðni eða skaðabót-
um. Danski forsæt-
isráðherra klykkir
út með að fullvissa
Grím um allt sé
á réttri leið í átt
að sjálfbærara
og sjálfstæð-
ara samfélagi á
Grænlandi og að
aðferðir nýlendu-
veldanna séu víðs
fjarri við stjórn
mála í Grænlandi.
- pg
Grímur Atlason sendi Lars Lökke Rasmussen tölvupóst um grænlensk börn:
Fékk svar frá forsætisráðherra Dana
SVARAR Sjö vikur
liðu frá því að
Danski forsætis-
ráðherrann fékk
tölvupóst frá
sveitarstjóra
Dalabyggðar þar
til svarið barst.
Ætlar þú að sjá heimildar-
myndina Guð blessi Ísland?
Já 41,4
Nei 58,6
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú leitað eftir félagslegri
aðstoð í kreppunni?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN