Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 12
12 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
Þú getur kryddað
kynlífið og margfaldað
nautnina
ÆSANDI
HRESSANDI
EGGJANDI
KITLANDI
LEIKANDI
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
KÖNGULÓARMAÐURINN ENN Á FERÐ
Klifurdýrið Alain Roberts, gjarnan
nefndur Köngulóarmaðurinn, gerði
sér lítið fyrir og klifraði upp Ariane-
bygginguna í París. Húsið er 230
metra hátt, en hann hefur klifrað upp
meira en sextíu háhýsi víðs vegar um
heiminn. NORDICPHOTOS/AFP
FRAKKLAND, AP Öll spjót standa nú
á Frederic Mitterand, menningar-
málaráðherra í ríkisstjórn Frakk-
lands, og er hann hvattur til að
segja af sér.
Eindreginn stuðningur Mitter-
ands við pólska kvikmyndaleik-
stjórann Roman Polanski varð til
þess að stjórnmálamenn lengst
á hægri vængnum fóru að grafa
upp sitthvað misjafnt úr fortíð
Mitterands sjálfs.
Í ljós kom að í sjálfsævisögu
sinni, sem kom út árið 2006, við-
urkennir Mitterand, sem er tví-
kynhneigður, að hafa átt erfitt á
yngri árum og meðal annars oft
borgað fyrir kynlíf með drengj-
um í Taílandi. Hann svarar því til
að hann noti orðið „drengur“ ekki
í bókstaflegum skilningi, og sé alls
ekki barnaníðingur.
Engu að síður hafa fleiri en
hægri menn tekið málið upp á
arma sína, og munar þar mestu um
raddir úr Sósíalistaflokknum.
Arnaud Montebourg, þingmað-
ur Sósíalistaflokksins, hvetur bæði
Nicolas Sarkozy forseta og Fran-
cois Fillon forsætisráðherra til að
reka Mitterand úr ríkisstjórninni,
því hann hafi vísvitandi brotið
lög.
„Það er ómögulegt að ráðherra,
sem er fulltrúi Frakklands, geti
hvatt fólk til þess að fara þvert
gegn baráttumáli gegn kynlífsferð-
um, sem hann sjálfur hefur tekið
að sér á alþjóðavettvangi,“ segir
Montebourg. - gb
Í vandræðum eftir stuðning við Roman Polanski:
Ráðherra hvattur
til að segja af sér
FREDERIC MITTERAND Uppljóstranir í sjálfsævisögu koma honum í koll.
NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Svínaflensan hefur
blossað upp á ný, eftir að hafa verið
í rénun, að sögn Haraldar Briem
sóttvarnalæknis. Á undanförnum
tveim vikum hafa níu einstakling-
ar verið lagðir inn á spítala og þar
af tveir á gjörgæslu. Annar þess-
ara tveggja er útskrifaður en hinn
er enn á gjörgæslu.
„Það kom okkur á óvart að tölu-
verð fjölgun flensutilfella varð á
höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem
leið,“ segir Haraldur. „Ef vikan sem
nú er að líða verður eins þá heldur
flensutilfellunum áfram að fjölga.
Okkur finnst þetta vera viðsnúning-
ur á höfuðborgarsvæðinu, en hann
nær ekki til landsbyggðarinnar.“
Haraldur segir athyglisvert að
70 til 80 prósent þeirar sýna sem
send eru til rannsóknar núna
staðfesti að um svínaflensu sé
að ræða. Sýnin séu að vísu ekki
mjög mörg, þar sem ákveðið hafi
verið að draga úr fjölda þeirra, en
hlutfallið segi sína sögu.
„Það eru því miklar líkur á því
að fólk sem er með inflúensulík
einkenni sé með svínaflensu.“
Varðandi bólusetningu segir
Haraldur að það komi í lok mán-
aðarins. Allir, sem ekki hafi feng-
ið staðfest að þeir hafi fengið
svínaflensu, eigi að láta bólusetja
sig.
- jss
Níu hafa verið lagðir inn á spítala á síðustu tveimur vikum:
Svínaflensan blossar upp á ný
HARALDUR BRIEM Sóttvarnalæknir segir
að allir sem ekki hafi fengið staðfest að
þeir hafi fengið svínaflensu eigi að láta
bólusetja sig.
FJÖLMIÐLAR Nemendur í fimmta
bekk Grunnskóla Borgarfjarðar á
Kleppjárnsreykjum eiga nú í sam-
starfi við Skessuhorn um útgáfu á
bekkjarblaði. Þetta kemur fram á
vef Borgarbyggðar.
„Eitt af verkefnum þeirra í
íslensku í vetur er að gera frétta-
blað. Nemendur hafa þegar hafist
handa við gerð blaðsins og mun
Magnús Magnússon, ritstjóri á
Skessuhorni, vera þeim sérlegur
ráðgjafi. Efni blaðsins mun einn-
ig birtast á síðum Skessuhorns.
Mikill áhugi er meðal krakkanna
á þessu verkefni og eru þau í óða-
önn að undirbúa greinar, viðtöl og
fleira,“ segir á borgarbyggd.is. - gar
Fjölmiðlun í Borgarfirði:
Nemar skrifa í
Skessuhorn