Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 7geðhjálp ●
Sigríður Jónsdóttir, umsjónarmaður félagsmiðstöðvarinnar, segir starfið hafa gefið góða raun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Félagsmiðstöð Geðhjálpar
hefur aðsetur á horni Túngötu
og Garðastrætis. Sigríður
Jónsdóttir, umsjónarmaður
miðstöðvarinnar, segir helsta
markmið hennar vera að gefa
fólki færi á að rjúfa sig frá
félagslegri einangrun.
„Það er engin spurning að starf-
semin hér hefur gefið mjög góða
raun. Fólk kemur aftur og aftur
til að sækja í þennan góða anda
sem hér ríkir,“ segir Sigríður
Jónsdóttir umsjónarmaður fé-
lagsmiðstöðvar Geðhjálpar sem
hefur aðsetur að Túngötu 7 í
Reykjavík.
Að sögn Sigríðar er helsta
markmiðið með félagsmiðstöð-
inni að gefa fólki, sem glímir
við geðraskanir af ýmsu tagi,
tækifæri til að rjúfa sig frá fé-
lagslegri einangrun. „Það skipt-
ir afar miklu máli fyrir marga að
hafa eitthvað fyrir stafni. Það er
ekki ofmælt að líkja starfseminni
við lífsakkeri margra sem hingað
sækja,“ segir Sigríður.
Félagsmiðstöðin á horni Tún-
götu og Garðastrætis er opin alla
virka daga frá klukkan 10 til 14,
nema miðvikudaga, en þá er opið
frá klukkan 10 til 15.30. Starfs-
menn miðstöðvarinnar, sem eru
fimm í fastri vinnu auk þriggja
sem eru á eins konar endurhæf-
ingarsamningum, leitast eftir að
bjóða upp á ýmsa afþreyingu og
námskeið.
Nokkuð fastmótuð vikuleg dag-
skrá hefur verið skipulögð fyrir
veturinn, en auk þess geta gest-
ir nýtt sér aðstöðuna sem inni-
heldur meðal annars tölvuver,
billjarðborð og listasmiðju. Einn-
ig hefur verið staðið fyrir konu-
kvöldum, gönguferðum og ljós-
mynda-, myndlistar- og tölvunám-
skeiðum, svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrir hádegi á þriðjudögum
fer fram samsöngur undir
stjórn píanóleikarans Smára
Eiríkssonar. Eftir hádegi er efnt
til upplestrarstundar, þar sem
gestir skiptast á að lesa upp úr
bókum sem þeir velja í samein-
ingu og ræða svo saman um efni
bókanna.
Eins og áður
sagði eru svo-
kallaðir langir
miðvikudagar
í miðstöðinni,
Þeim geta gest-
ir eytt í lista-
smiðjunni og
snætt hádegis-
verð sem Ingi-
björg Gunnlaugs-
dóttir eldar. Eftir matinn
er svo boðið upp á kynningar á
tólfspora-meðferðinni, þar sem að-
ilar á vegum hinna ýmsa samtaka
sem berjast gegn fíkn og óreiðu af
ýmsu tagi kynna starfsemi sína.
Síðari part miðvikudaga býðst
gestum að fá sér kaffi og kökur
og ræða málin. Á föstudögum eru
haldnir húsfundir, þar sem dag-
skrá næstu viku er kynnt.
Á morgun, á Alþjóðaheilbrigð-
isdeginum, heldur Sigursteinn
Másson, nýr formaður Geðhjálp-
ar, fyrirlestur á Túngötunni.
Fyrirlesturinn ber heitið
Andleg sjálfsvörn. Sigríður hvet-
ur alla sem hafa áhuga á að kynna
sér starfsemi félagsmiðstöðvar
Geðhjálpar að hafa samband við
sig. - kg
Fólkið sækir í góða andann hér
Sýnishorn af verkum Jónu Svönu Jónsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Jóna Svana Jónsdóttir leggur grunninn að listaverki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Eyjólfur Kolbeins pakkar hér inn geisladiskum í hundraðatali. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM