Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 26
4 föstudagur 9. október
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
Sara María í Nakta
apanum er á meðal
litríkustu fatahönnuða
Íslands. Í viðtali við
Föstudag segir hún frá
nýstofnaða fyrirtækinu
Vargi, óhefðbundnum
uppeldisaðferðum og
áralöngu ástarsambandi
við Airwaves.
Viðtal: Hólmfríður H. Sigurðardóttir
Ljósmyndir: Anton Brink
Á
rið 2005 varð skraut-
legt og neonklætt
f ó l k áb e ra n d i á
götum borgarinn-
ar. Það mátti þakka
Söru Maríu Júlíudóttur og Nakta
apanum hennar. „Þetta með lita-
dýrðina var ekki dýpra en svo að
ég hataði svart og vildi alls ekki
ganga í svörtu. Þegar ég fer í galla-
buxur og venjulegan stuttermabol
líður mér eins og ég sé í búningi,
miklu frekar en þegar ég er í ein-
hverju marglitu neondressi.“
Sara stofnaði nýverið fyrirtækið
Varg. „Upphafið á því er að bresk-
ur maður sem heitir Nicholas
Anthony Knowles hafði samband
við mig í janúar. Hann er brjálað-
ur Íslandsaðdáandi og hefur lengi
verið að spá í að stofna íslenskt
fatafyrirtæki. Þegar við hittumst
smullum við saman og stofnuð-
um fyrirtækið fljótlega upp úr
því. Við ætlum að styðjast við ís-
lenska sögu, norræna goðafræði
og ýmislegt annað sem tengist Ís-
landi. Þetta verður allt öðruvísi en
við höfum verið að gera í Nakta
apanum.“
Í Vargi ætlar Sara að einbeita sér
að hönnuninni og leyfa öðrum að
sjá um aðra þætti. „Þegar maður
er einyrki eins og ég hef verið sér
maður ekki bara um að hanna
heldur líka að þrífa búðina,
afgreiða, sauma og svo framveg-
is. En nú verður þetta allt öðru-
vísi, þetta er mest „pro“ verkefni
sem ég hef farið út í og ég er mjög
spennt fyrir því.“
HAMINGJURÍKT HJÓNABAND
Þessa dagana er allt á hvolfi hjá
Söru og samstarfsfólki hennar en
þau hanna meðal annars boli Air-
waves-tónlistarhátíðarinnar, sem
nú er að bresta á með látum.
Samstarf Airwaves við Nakta
apann er engin nýlunda en þau
hafa verið tengd tryggðaböndum
frá því Sara opnaði búðina árið
2005. „Sama ár kom Steini (Þor-
steinn Stephensen, eigandi Dest-
iny sem skipuleggur Airwaves)
til mín, einni eða tveimur vikum
fyrir Airwaves, og bað mig að gera
boli fyrir þá. Þetta var brjálæðis-
lega merkilegt þótti mér og algjört
stress. En samvinnan gekk vel og
skapaði ástarsamband milli Nakta
apans og Destiny, sem í dag er eig-
inlega orðið hjónaband. Ég geri allt
sem ég get fyrir þá og þeir gera
allt sem þeir geta fyrir mig.”
Sara fær stjörnur í augun þegar
hún talar um Airwaves. „Þetta
er bara svo merkileg hátíð og
mér finnst alveg ótrúlega gaman
að taka þátt í henni. Það er svo
magnað að sjá allt þetta unga tón-
listarfólk og finna orkuna frá því.
Airwaves er eins og jólin hjá mér.
Eða reyndar eitthvað meira en
það. Ég myndi miklu frekar vilja
missa af jólunum en Airwaves.
Og ég er ekki viss um að fólk átti
sig almennt á því hvað Airwaves
gerir mikið fyrir miðbæinn. Sumar
verslanir fá meira út úr henni en
allri jólavertíðinni.“
ÓLÉTT SAUTJÁN ÁRA
Sara á tvö börn, Dóróteu Maríu,
sem er níu ára, og Natan Birni,
sem er ellefu ára. Bæði fæddust
þegar Sara bjó á Akureyri, þar
sem hún bjó í nokkur ár. Þá var
líf hennar allt annað en það er í
dag. „Á þessum tíma var ég á kafi í
húsmóðurpakkanum. Ég lagði mig
mikið fram við að hafa allt fínt til
að standast kröfur annarra. Var
oft að baka og búa til heita rétti
og svona.“
Hún skildi við barnsföður sinn
fyrir nokkrum árum, rétt áður en
hún flutti til höfuðborgarinnar.
„Við vorum saman í sjö og hálft
ár. En þótt það hafi slitnað upp úr
sambandinu hjá okkur erum við
ofboðslega góðir vinir og hann
er fullkominn pabbi. Samband-
ið á milli okkar er mjög sveigj-
anlegt og við höfum passað að
vera aldrei neitt sjálfselsk í okkar
samskiptum.“
Sjálf er Sara ekki nema 29 ára,
en hún var sautján ára þegar hún
varð ólétt af Natani. „Mér fannst
ég ekkert ung. Þegar ég varð ólétt
hugsaði ég „loksins!“. Ég var svo
rosalega tilbúin í þetta hlutverk.
Og ég var sjúklega hamingjusöm
og ánægð. En í dag þegar ég sé
sautján ára stelpur missi ég and-
litið og get varla séð þær fyrir mér
með börn.
LITLIR VINIR
Börnin sín lítur Sara á sem litla
vini sína, fyrst og fremst. „Ég
fékk sjálf frekar strangt uppeldi
en ég vil ekki vera ströng í mínu
uppeldi. Ég ákvað strax að koma
aldrei fram við börnin mín eins og
ég eigi þau. Ég sé okkur bara sem
þrjár verur, ekki sem móður og
börn. Við þrjú erum bara samferða
í þessu lífi og þó að ég sé nokkrum
árum á undan þeim í þessu lífi er
ég ekkert æðri þeim.“
Hún trúir þá á fyrra líf. Þetta
kallar á frekari sögur um upp-
lifun hennar og reynslu af yfir-
skilvitlegum hlutum. „Ég er ekki
skyggn en ég er næm á vissa hluti.
Ég held það sé ekki hægt að neita
því að það sé eitthvað „þarna“.
Þegar ég fer að sofa ferðast ég til
allra sem ég elska, svíf yfir þeim
og kyssi þau á ennið og gef þeim
ást og hlýju. Ég trúi því raunveru-
lega að ég geti gert það. Það er svo
mikil orka í kringum okkur sem
við sjáum ekki en getum fundið
fyrir ef við reynum.“
AIRWAVES BETRI EN JÓLIN
Iðin Sara María er kennd við
Nakta apann en hannar líka
undir merkjum Forynju og
hinu nýja merki Vargi, sem
byggir á norrænni goðafræði.
Besti tími dagsins:
Má finnast nóttin vera
besti tími dagsins?
Skemmtilegast að
gera:
Allt sem tengist
börnunum mínum
og dýrum er
skemmtileg-
ast í heimin-
um, og ekki
verra ef það
er í útlöndum.
Leiðinlegast að gera:
Vá, það er svo margt
leiðinlegt! Ég man
samt ekki eftir neinu
sérstöku nema
bara þeim klass-
ísku leiðindum að gera
skattskýrsluna.
Uppáhaldsstaðurinn:
Karlovy Vary í Tékk-
landi er uppáhalds
en Flórída er að detta
sterk inn.
Skemmtilegasti
skemmtistaðurinn:
Kaffibarinn er minn
staður, heimavöllur
Iceland Airwaves-há-
tíðarinnar og þar með
besti barinn í bænum
að mínu mati.
Uppáhaldshönnuð-
urinn:
Ég átti uppáhalds-
hönnuði þegar ég var
yngri en nú er það
enginn sérstakur þar
sem svo margir eru
að gera sína sérstöku
hluti.
Falin perla:
Nakti apinn.