Fréttablaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 10
10 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
Með því að velja Svansmerkt getur þú
verið viss um að innkaupin séu betri fyrir
umhverfið og heilsuna. Norræna umhverfismerkið
Svanurinn setur strangar kröfur um framleiðslu
vöru og þjónustu, svo sem innihald og notkun hættulegra
efna, orku- og hráefnisnotkun og meðhöndlun úrgangs.
Gæðin eru tryggð þar sem virknin þarf að vera jafn
góð eða betri en í sambærilegum vörum og þjónustu.
Gæði sem þú getur treyst á
- Betra fyrir umhverfið og heilsuna
Umsjónaraðili Svansins á Íslandi
Ert þú í Svansmerkinu?
Svanurinn verður á Umhverfisþinginu
í dag og á morgun.
DÓMSMÁL Ákæra sem þingfest var
í gær á hendur tveimur Íslend-
ingum fyrir mansal og vændis-
starfsemi er merki um að mál
af því tagi séu tekin alvarlega á
Íslandi. Slík ákæra hefði þó átt
að líta dagsins ljós fyrr. Þetta
segir Guðrún Jónsdóttir, tals-
kona Stígamóta. Ákæran mark-
ar viss tímamót, segir Guðrún,
enda í fyrsta sinn sem ákært er
á Íslandi í málum af þessu tagi.
Tvennt er ákært í málinu:
Catalina Mikue Ncogo, 31 árs
kon a æt t uð
frá Miðbaugs-
Gíneu, og Finn-
ur Bergmanns-
son, 43 ára
hugbúnaðar-
smiður.
Catalinu er
gefið að sök
að hafa blekkt
aðra unga konu
frá Miðbaugs-
Gíneu til lands-
ins undir því yfirskini að hún
væri á leið í frí, en síðan hneppt
hana í kynlífsánauð, svipt hana
fatnaði og skilríkjum og neytt
hana með hótunum til að stunda
vændi. Hún hafi jafnframt haft
lifibrauð sitt af vændi fjölda
annarra kvenna.
Finnur er sakaður um að
hafa uppfært vændisauglýsing-
ar á vefnum og tekið ljósmynd-
ir af konunum gegn greiðslu frá
Catalinu.
Catalina játaði í viðtali við
Vikuna á sínum tíma að hafa gert
út tólf vændiskonur í borginni.
Bæði neituðu þó sök við þingfest-
ingu málsins í gær.
Guðrún segist vitanlega ekki
fagna því að glæpir séu framdir.
„En það er sannarlega tímabært
að staðfesta það fyrir dómi sem
við höfum vitað um lengi,“ segir
hún. Þetta hefði raunar átt að ger-
ast miklu fyrr, segir hún, og bend-
ir á nýja rannsóknarskýrslu Fríðu
Rósar Valdimarsdóttur, þar sem
fram kemur að á sjötta tug til-
fella um mansal hafi orðið vart á
Íslandi án þess að nokkurt þeirra
hafi komið til kasta dómstóla.
Björgvin Björgvinsson, yfir-
maður kynferðisbrotadeildar lög-
reglunnar, segir ákæruna fyrstu
afleiðingu átaks lögreglunnar í
þessum málaflokki. „Við viljum
láta reyna á þetta af því að við
vitum eða höfum hugmyndir um
að þetta viðgangist hér á landi
og viljum taka fast á þessum
málum,“ segir hann. Verið sé að
skoða vændisstarfsemi á Íslandi
almennt þótt ekkert annað mál af
þessu tagi sé fast í hendi.
stigur@frettabladid.is
Mansalsmál hefði átt að
rata mun fyrr í réttarsal
Talskona Stígamóta segir ákæru í mansals- og vændismáli merki um að slík mál séu tekin alvarlega. Slík
ákæra hefði þó átt að líta dagsins ljós mun fyrr. Báðir sakborningarnir neituðu sök við þingfestingu í gær.
GUÐRÚN
JÓNSDÓTTIR
VÉLMENNI Á HJÓLI Nýjasta vélmennið
frá Japan er þetta litla kríli sem hjólar á
einhjóli. Fyrirtækið Murata Electronics
kynnti þessa nýjung á vörusýningu í
einu af úthverfum Tókýó.
NORDICPHOTOS/AFP
NEITA SÖK Catalina og Finnur neituðu bæði öllum sakargiftum við þingfestingu
málsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EVRÓPUMÁL Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur ákveðið að öll helstu gögn
varðandi aðild-
arviðræður við
Evrópusam-
bandið, tengd
þeim mála-
flokkum sem
ráðuneytið ber
ábyrgð á, verði
þýdd. Jón hefur
áður tekið upp
í ríkisstjórn, að
hann sé sam-
mála þeim sem telja nauðsynlegt
að gögn sem lúta að umsókninni
um ESB-aðild, verði þýdd og birt
samhliða á íslensku. Þýðingarnar
verða unnar í góðu samkomulagi
við hagsmunaaðila og kannaðir
verða möguleikar á því að vinna
þær að hluta til úti á landi. - shá
Evrópusambandsaðild:
Jón lætur þýða
Evróputextana
JÓN BJARNASON
Það er sannarlega tíma-
bært að staðfesta það
fyrir dómi sem við höfum vitað
um lengi
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
TALSKONA STÍGAMÓTA.