Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
SOKKABÖNDIN snúa aftur ef marka má þann fjölda
tónlistar- og kvikmyndastjarna sem látið hafa glitta í slíkan
undir fatnað nýlega. Þar má nefna konur á borð við Lily Allen,
Katie Perry, Rihönnu og Ditu Von Teese.
„Maður verður alltaf glaður í þessum kjólum,“ segir listakon-an Brynhildur Guðmundsdóttir, um kjóla fatahönnuðarins HulduKarlottu Kristjá dó
gegnum Facebook-síðu fatalínunn-ar. „Það er mikil litadýrð í þess-um fötum og litasamó
tækið Nikita og hafa föt heneinnig fe i
Óvænt litasamsetning sem lífgar upp á lundina
Brynhildur Guðmundsdóttir er ávallt fallega klædd. Eftirlætiskjólar hennar eru frá fatahönnuðinum
Huldu Karlottu en föt hennar segir Brynhildur oft skarta óvæntum litasamsetningum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Brynhildur Guðmundsdóttir myndlistarmaður stendur hér fyrir framan eitt verka sinna í einum af eftirlætiskjólunum.
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
FYLGIRIT UM SÓFA • 15. OKTÓBER 2009
sófar
FIMMTUDAGUR
15. október 2009 — 244. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
BRYNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Klæðir sig í kjól sem
lífgar upp á lundina
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
SÓFAR
Notalegt og hlýlegt
nýtur mikilla vinsælda
Sérblað um sófa
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Opnar dyr að
auðlindum
Öld liðin frá útgáfu
fyrstu íslensku
kennslu-
bókarinnar
í esperanto.
TÍMAMÓT 36
VIÐSKIPTI Nýir eigendur Íslands-
banka taka ákvörðun um hugsan-
lega afskrift lána sem Glitnir veitti
starfsmönnum til hlutabréfakaupa
í bankanum á sínum tíma. Stjórn
Íslandsbanka hefur fram til þessa
látið málið vera og beðið eigenda-
skipta, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
Lán Glitnis til fyrrverandi og
núverandi starfsmanna bankans
hleypur á milljörðum króna. Frá
því hefur áður verið greint að þrír
framkvæmdastjórar bankans fengu
í maí í fyrra lán upp á átta hundruð
milljónir hver til kaupa á hlutabréf-
um í bankanum. Lán starfsmanna
bankans eru flest í einkahlutafé-
lögum sem standa illa í dag og telj-
ast því sem næst glötuð.
Vitað er að einhverjir starfs-
menn Íslandsbanka hafa í sam-
ræmi við samninga nýtt sér sölu-
réttarákvæði sem viðkomandi
höfðu. Í þeim tilvikum sem lántak-
ar áttu samningsbundinn rétt til að
falla frá kaupunum eða sölurétti
hafa þeir almennt nýtt sér hann
á gjalddaga lánanna, samkvæmt
upplýsingum frá Íslandsbanka.
Í dag skýrist hverjir eignast
Íslandsbanka en þá rennur út frest-
ur kröfuhafa Glitnis til að ákveða
hvort þeir vilja fá 95 prósenta hlut
í honum eða skuldabréf.
Verði seinni leiðin valin eign-
ast ríkið Íslandsbanka að fullu en
bankinn mun gefa út þrjú skulda-
bréf stíluð á kröfuhafa. Fyrsta
skuldabréfið er upp á 52 milljarða
króna. Hin tvö eru árangurstengd
og geta aldrei orðið hærri en átta-
tíu milljarðar króna. Ásamt því fá
kröfuhafar kauprétt á níutíu pró-
senta hlut í bankanum.
Verði fyrri leiðin valin mun skila-
nefnd Glitnis taka yfir stjórn bank-
ans fyrir hönd kröfuhafa og setja
fjóra menn í bankaráð til móts við
einn sem ríkið tilnefnir.
„Við erum að fara í gegnum loka-
atriðin,“ segir Árni Tómasson, for-
maður skilanefndar Glitnis, og
bætir við að enn sé ekki vitað hverj-
ir kröfuhafar Glitnis eru. Hann
vísar til þess að líflegur markaður
hafi verið með kröfur bankans frá
því hann féll fyrir rúmu ári. Sama
máli gegnir um kröfur Kaupþings.
Kröfulýsingafresti í bú Glitnis
lýkur 26. nóvember næstkomandi
en 30. desember í bú Kaupþings. Á
þeim degi mun koma í ljós hverjir
eigendur bankans eru. - jab
Ríkið eða kröfuhafar munu
ákveða afskriftir starfsfólks
Eigendaskipti verða á Íslandsbanka í dag. Ákvörðun um afdrif kúlulána til starfsmanna hefur meðvitað
verið látin liggja milli hluta fram yfir skiptin. Kaupþing hefur ekki afskrifað nein starfsmannalán.
Opið til 21
nýtt kortatímabilEndurgjaldslaus lögfræðiaðstoð
fi mmtudaga
milli 19:30 – 22:00
í síma 551-1012.
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
ORKUMÁL Fjármögnun vegna stækkunar Hellis-
heiðarvirkjunar hefur verið rædd á milli Orku-
veitu Reykjavíkur og lífeyrissjóða síðustu daga.
Orkuveitan hefur ráðist í tíu milljarða króna
skuldabréfaútboð vegna aðkallandi verkefna.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, segir skulda-
bréfaútboðið hugsað til fjármögnunar á hluta af
stækkun Hellisheiðarvirkjunar en einnig veitu-
framkvæmda á Vesturlandi. Um er að ræða fimm
milljarða framkvæmd sem ekki hefur tekist að
fjármagna með erlendum lánum, eins og upphaf-
lega var ætlunin.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá bíða for-
svarsmenn Orkuveitunnar svars frá Evrópska
fjárfestingarbankanum um þrjátíu milljarða króna
lán til uppbyggingar á Hellisheiði. Hjörleifur segir
að skuldabréfaútgáfan tengist evrópska láninu
ekkert. - shá / sjá síðu 6
Orkuveita Reykjavíkur ræðir við forsvarsmenn lífeyrissjóða um fjármögnun:
Tíu milljarða skuldabréfaútboð
VINDASAMT Í dag verða suðvest-
an 5-15 m/s, hvassast á Vestfjörð-
um og með norðurströndinni.
Léttskýjað eystra annars smáskúrir
framan af degi en síðan úrkomu-
lítið og bjart með köflum.
VEÐUR 4
10
8
7
10
10
BRETLAND, AP Benito Mussolini
þáði laun hjá bresku leyniþjónust-
unni árið 1917.
Þetta kemur
fram í gögnum
sem breskur
leyniþjónustu-
maður skildi
eftir sig og
sagnfræðingur-
inn Peter Mart-
land uppgötvaði
nýverið.
Mussolini
þáði 100 pund
á viku, 6.000 pund að núvirði,
frá Bretum. Skyldur hans fólust
meðal annars í því að ráðast að
mótmælendum sem safnast höfðu
saman til að mótmæla stríðs-
rekstrinum. Bretum var mjög í
mun að Ítalir drægju sig ekki úr
styrjöldinni, þar sem þar voru
reknar mikilvægar hergagnaverk-
smiðjur. Mussolini, sem síðar varð
fasískur einræðisherra landsins,
var á þessum árum ritstjóri. - kóp
Fyrri heimsstyrjöldin:
Bretar borguðu
Mussolini laun
BENITO MUSSOLINI
VEISLAN HAFIN Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves var sett í ellefta sinn í gær. Alls koma 220 hljómsveitir fram á hátíðinni sem
stendur fram á sunnudag, 160 innlendar og 55 erlendar. Hljómsveitin Me, the Slumbering Napoleon gaf tóninn á Nasa í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Heimska og dirfska
Þorsteinn Gunnar
Jónsson frumsýnir
fyrstu kvikmynd sína í
fullri lengd, grín-
myndina Jóhannes.
KVIKMYNDIR 46
Undankeppni
lokið
Riðlakeppni HM lauk
í gær þegar barist
var í fjórum riðlum
af átta um sæti á
HM eða í umspili
keppninnar.
ÍÞRÓTTIR 58