Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 74
58 15. október 2009 FIMMTUDAGUR Undankeppni HM: 1. riðill: Danmörk-Ungverjaland 0-1 Svíþjóð-Albanía 4-1 Olof Mellberg 2, Marcus Berg, Anders Svensson. Portúgal-Malta 4-0 Nani, Simao, Miguel Veloso, Arnaldo Edinho. LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Danmörk 10 6 3 1 16-5 21 Portúgal 10 5 4 1 17-5 19 Svíþjóð 10 5 3 2 13-5 18 2. riðill: Grikkland-Lúxemborg 2-1 Sviss-Ísrael 0-0 Lettland-Moldavía 3-2 LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Sviss 10 6 3 1 18-8 21 Grikkland 10 6 2 2 20-10 20 3. riðill: Tékkland-Norður-Írland 0-0 San Marinó-Slóvenía 0-3 Pólland-Slóvakía 0-1 LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Slóvakía 10 7 1 2 22-10 22 Slóvenía 10 6 2 2 18-4 20 4. riðill: Aserbaijan-Rússland 1-1 Liechtenstein-Wales 0-2 - David Vaughan, Aaron Ramsey. Þýskaland-Finnland 1-1 Lukas Podolski - Jonatan Johansson. LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Þýskaland 10 8 2 0 26-5 26 Rússland 10 7 1 2 19-6 22 5. riðill: Bosnía/Hersgóvína-Spánn 2-5 - Alvaro Sanchez Negredo 2, Gerard Pique, David Silva, Juan Garcia Mata. Eistland-Belgía 2-0 Tyrkland-Armenía 2-0 LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Spánn 10 10 0 0 28-5 30 Bosnía 10 6 1 3 25-13 19 6. riðill: Andorra-Úkraína 0-6 England-Hvíta-Rússland 3-0 Peter Crouch 2, Shaun-Wright Phillips. Kasakstan-Króatía 1-2 LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: England 10 9 0 1 34-6 27 Úkraína 10 6 3 1 21-6 21 Króatía 10 6 2 2 19-13 20 7. riðill: Litháen-Serbía 2-1 Frakkland-Austurríki 3-1 Karim Benzema, Thierry Henry (víti), Andre Pierre Gignac. Rúmenía-Færeyjar 3-1 LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Serbía 10 7 1 2 22-8 22 Frakkland 10 6 3 1 18-9 21 8. riðill: Búlgaría-Georgía 6-2 Ítalía-Kýpur 3-2 Alberto Gilardino 3. Írland-Svartfjallaland 0-0 LOKASTAÐA EFSTU LIÐA: Ítalía 10 7 3 0 18-7 24 Írland 10 4 6 0 12-8 18 ÚRSLIT N1-deild karla: Stjarnan-Fram 28-25 (18-12) Mörk Stjörnunnar (skot): Daníel Einarsson 6 (7), Sverrir Eyjólfsson 5 (5), Vilhjálmur Halldórsson 5 (9), Kristján Svan Kristjánsson 4 (9), Þórólfur Nielsen 3 (4), Jón Arnar Jónsson 3 (8), Eyþór Magnússon 2 (5) Roland Valur Eradze 0 (1) Varin skot: Roland Valur Eradze 17/1 (25/4, 40%) Hraðaupphlaup: 6 (Daníel 5, Kristján Svan) Fiskuð víti: 0 Utan vallar 10 mínútur Mörk Fram (skot): Haraldur Þorvarðarson 8 (10), Magnús Stefánsson 7 (14), Andri Stefan Haraldsson 4 (6/1), Halldór Jóhann sigfússon 4/4 (8/6), Stefán Baldvin Stefánsson 1 (3), Arnar Birkir Hálfdánarson 1 (5) Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 2 (9, 18%), Zoltan Majeri 3 (14, 18%), Sigurður Örm Anarson 4 (9, 31%) Hraðaupphlaup: 3 (Haraldur 2, Arnar Birkir) Fiskuð víti: 7 (Haraldur 4, Magnús 3) Utan vallar 4 mínútur ÚRSLIT Sími: 4 600 700 Glerárgötu 28 600 Akureyri www.asprent.is Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun! Hefst 02. nóv. nk. og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. 1. stig alm. hluta og er námskeiðsgjald kr. 24.000.- Skráning fyrir 26. okt. á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000. Nánari uppl. í síma 460-1467 og á vidar@isi.is Sjá einnig á www.isi.is HANDBOLTI „Eins og handbolti er nú oft á tíðum þá var þetta kafla- skipt en við lögðum grunninn að sigrinum með góðum leikkafla í fyrri hálfleik þar sem vörn og markvarsla voru góð og við feng- um auðveld mörk í kjölfarið. Við erum samt ekki komnir á neitt flug en það er mikilvægt að vinna og fá stig. Við erum með ungt lið og við þurfum að hafa virkilega mikið fyrir öllu en ef við gerum það þá getum við unnið fullt af leikjum í vetur,“ sagði Patrekur Jóhannes- son, þjálfari Stjörnunnar, eftir 28- 25 sigur liðs síns gegn Fram í N1- deild karla. Jafnræði var með liðunum fram- an af leik en Framarar virtust þó vera skrefinu á undan Stjörnu- mönnum. Það reyndist þó vera skammgóður vermir því í stöð- unni 8-9 hrundi leikur Framara algjörlega. Vörnin hjá Stjörnunni small saman og þá fylgdi að sjálf- sögðu góð markvarsla hjá Roland Val Eradze í kjölfarið. Stjörnumenn gengu á lagið og gerðu sér lítið fyrir og skoruðu hvorki fleiri né færri en níu mörk í röð. Framarar skoruðu ekki mark í rúmar ellefu mínútur. Í seinni hálfleik söxuðu Fram- arar jafnt og þétt á forskot heima- manna sem virkuðu ragir á köflum og leikmenn liðsins skorti kjark til þess að taka af skarið og klára dæmið líkt og þeir gerðu í fyrri hálfleik. Staðan var orðin 24-22 þegar um fimm mínútur voru eftir af leik og Framarar náðu í tvígang eftir það að minnka muninn niður í eitt mark. Vilhjálmur Halldórsson inn- siglaði hins vegar sigurinn þegar hann kom Stjörnunni í 27-25 þegar um hálf mínúta var eftir. Framarar fóru í sóknina og töp- uðu boltanum og Stjarnan laumaði inn marki í lokin og lokatölur urðu því 28-25 og Stjörnumenn komnir á blað í deildinni. Framarar sitja hins vegar eftir með tvo tapleiki gegn liðunum sem var spáð falli í árlegri spá fyrir tímabilið. Viggó Sigurðsson, þjálfari Fram, vildi ekki veita Fréttablaðinu viðtal í leikslok. - óþ Stjarnan komin á blað í N1-deildinni eftir sigur á Fram í Mýrinni í gær: Ófarir Framara halda áfram SLAKIR Magnús Stefánsson og félagar í Fram hafa nákvæmlega ekkert getað í upp- hafi tímabilsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR HANDBOLTI Tveir leikir fóru fram í þýska handboltanum í gær. Aron Pálmarsson tók þátt í sínum fyrsta nágrannaslag er Kiel heimsótti Flensburg. Heima- menn áttu ekkert í meistara Kiel sem unnu öruggan sigur, 33-41. Aron komst ekki á blað hjá Kiel en Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Flensburg. Rhein-Neckar Löwen vann einnig útisigur er liðið sótti Hannover Burgdorf heim. Loka- tölur þar 24-34. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur hjá Löwen með 8 mörk, Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tvö mörk úr víti og Ólaf- ur Stefánsson lét sér eitt mark nægja að þessu sinni. Hannes Jón Jónsson komst ekki á blað hjá Burgdorf. - hbg Þýski handboltinn: Sigrar hjá Kiel og Löwen SNORRI STEINN Kominn í þýska boltann með Löwen. NORDIC PHOTOS/BONGARTS FÓTBOLTI Það var mikil spenna í gærkvöldi þegar lokaumferðin í undankeppni HM fór fram. Barist var í fjórum riðlum af átta. Möguleikar Svía á að komast í umspil runnu endanlega út í sand- inn er Portúgal valtaði yfir Möltu, 4-0, án Ronaldo. Svíar gerðu sitt á sama tíma er þeir lögðu Albaníu, 4-1, en það dugði ekki til. Danmörk vann riðilinn þrátt fyrir tap gegn Ungverjum en Portúgalar tókum umspilssætið. Sigur Portúgal gerði það einnig að verkum að Noregur komst ekki í umspil en liðið náði öðru sæti í riðli Íslands. Grikkir rétt mörðu Lúxemborg, 2-1, og það dugði til að koma liðinu í umspil. Ísrael sat eftir með sárt ennið en Sviss vann riðilinn þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Ísrael. Sviss því aftur komið á HM og fyrrverandi Evrópumeistarar Grikkja halda lífi í vonum sínum. Tékkar ollu gríðarlegum von- brigðum með frammistöðu sinni í undankeppninni og þeir luku und- ankeppninni ekki einu sinni með sóma er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Norður-Írlandi á heimavelli. Slóvakar unnu riðilinn afar óvænt er þeir náðu frábærum útisigri á Póllandi í gær. Slóvenía tók umspilssætið eftir 3-0 útisigur á slöku liði San Marínó. Úkraína átti ekki í nokkrum vandræðum með að tryggja sér umspilssæti með 6-0 sigri á And- orra. Sigurinn gegn Englandi um síðustu helgi var þó lykillinn að umspilssætinu. Króatar sátu því eftir í þessum riðli sem England vann örugglega. Englendingar kláruðu sitt dæmi með sóma í gær er liðið vann sigur á Hvíta-Rúss- landi, 3-0. Peter Crouch í fínu formi og skoraði tvö mörk í fjar- veru Waynes Rooney. Alberto Gilardino tryggði Ítöl- um ævintýralegan sigur á Kýp- verjum í gær. Allt stefndi í niður- lægingu Ítala á heimavelli en liðið var 0-2 undir þegar aðeins 12 mín- útur voru eftir. Þá tók Gilardino til sinna ráða og skoraði þrjú mörk á mettíma og þar af sigurmarkið á 90. mínútu. henry@frettabladid.is Portúgal slapp í umspil Portúgal komst í umspil í gær en bæði Svíþjóð og Noregur eru úr leik í bar- áttunni um HM-sæti eftir lokaleikina í undankeppni HM. Alberto Gilardino tryggði Ítalíu ævintýralegan sigur og England kláraði riðilinn með stæl. ÆVINTÝRI Alberto Gilardino fagnar einu af mörkum sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY KÁTUR Skeggjaður David Beckham fékk að spila í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÖGNUÐUR Simao Sabrosa og félagar í portúgalska landsliðinu gátu leyft sér að brosa eftir að liðið tryggði sér sæti í umspili HM í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.