Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 6
6 15. október 2009 FIMMTUDAGUR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ eftir Max Frisch Hringdu í síma 551 1200 eða smelltu þér á leikhusid.is „Ég lánaði þeim eldspýtur. Og hvað með það? Það lánuðu allir eldspýtur, næstum hver einasti maður! Annars væri borgin varla brunnin til grunna.” Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir sem valin var leikstjóri ársins á síðustu Grímuverðlaunahátíð. Með aðalhlutverk fara Eggert Þorleifsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Björn Thors og Magnús Jónsson. Magnað verk um hugleysi og græðgi - fullt af eldfimum húmor Frumsýning á föstudaginn ORKUMÁL Stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur og forsvarsmenn stórra lífeyrissjóða hafa rætt aðkomu sjóðanna að fjármögn- un við stækkun Hellisheiðar- virkjunar. Orkuveitan þarf að fjármagna fimm milljarða veitu- framkvæmdir á Vesturlandi. Hjörleifur Kvaran, for- stjóri Orkuveit- unnar, segir að fyrirtækið sé með skulda- bréfaútboð í gangi á inn- lendum mark- aði sem meðal a n n a r r a s é verið að kynna lífeyrissjóð- unum. Útboðið er tíu milljarð- ar króna og er ætlað til fjár- mögnunar á hluta af stækk- un Hellisheið- arvirkjunar auk annarra aðkall- andi verkefna. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá bíða forsvarsmenn Orkuveitunnar svars frá Evr- ópska fjárfestingarbankanum um þrjátíu milljarða króna lán til uppbyggingar á Hellisheiði. Hjör- leifur segir að skuldabréfaútgáf- an tengist evrópska láninu ekk- ert og ekki sé um varaáætlun að ræða, bregðist sú lántaka. Fjár- mögnun innanlands með útgáfu skuldabréfa yrði haldið áfram þó að evrópska lánið skilaði sér. „Við stöndum í miklum fram- kvæmdum annars staðar en á Hellisheiði. Við erum með fimm milljarða veituframkvæmdir á Vesturlandi sem eftir er að fjár- magna. Við gerðum ráð fyrir að fjármagna þær með erlendri lán- töku sem ekki tókst og því var ákveðið að fjármagna það hér innanlands,“ segir Hjörleifur. Hann segir að fyrirtækið hafi að undanförnu þurft að fjármagna sig með skammtímalánum. Skuldabréfaútboðið sé því einn- ig hugsað til endurfjármögnunar þeirra lána til lengri tíma. Arnar Sigurmundsson, for- maður Landssamtaka lífeyris- sjóða, segir að viðræðurnar hafi átt sér stað að undanförnu og að þeim hafi komið nokkrir stórir lífeyrissjóðir. Hann nafngreinir þá ekki en áréttar að viðræðurn- ar séu ekki samanburðarhæfar við hugsanlega þátttöku sjóðanna í fjármögnun Búðarhálsvirkjun- ar. „Sú framkvæmd tengist stöð- ugleikasáttmálanum beint en viðræður lífeyrissjóða og Orku- veitunnar eru hefðbundnar sam- ræður um fjárfestingartæki- færi,“ segir Arnar. svavar@frettabladid.is OR og lífeyrissjóðir ræða um Hellisheiði Orkuveita Reykjavíkur hefur ráðist í tíu milljarða króna skuldabréfaútboð til að mæta fjármagnsþörf fyrirtækisins fyrir aðkallandi framkvæmdir. Erlend lán- taka vegna fimm milljarða króna veituframkvæmda á Vesturlandi brást. HJÖRLEIFUR KVARAN ARNAR SIGUR- MUNDSSON HELLISHEIÐARVIRKJUN Eftir er að ljúka fjármögnun lokaáfanga Hellisheiðarvirkjunar sem nú er rædd milli OR og lífeyrissjóða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BELGÍA, AP Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusam- bandsins, segir að Makedónía uppfylli nú öll skil- yrði sem þarf til þess að aðildarviðræður geti haf- ist. Makedónía sótti um aðild árið 2004 en aðildar- viðræður hafa ekki getað hafist vegna deilna við Grikkland, sem vill að Makedónía breyti um nafn. Rehn vonast til þess að frekari viðræður um lausn á þeirri deilu skili brátt árangri. Aðildarviðræður við Króatíu eru hins vegar langt komnar, en Króatía þarf engu að síður að hraða ýmsum umbótum eigi viðræðum að geta lokið um mitt næsta ár, eins og að er stefnt. Önnur ríki á Balkanskaga, sem óska eftir aðild, þurfa að bíða lengur og vinna að umbótum í stjórn- sýslu og mannréttindamálum. Tyrkland þarf sömuleiðis að hraða endurbótum, einkum á sviði mannréttinda, til að eiga möguleika á aðild. Aðildarviðræður Tyrklands og Evrópusam- bandsins hófust árið 2005, en hefur lítið miðað áleið- is. Egemin Bagis, aðalsamningafulltrúi Tyrklands gagnvart ESB, segist fagna skýrslunni, sem hann segir fjalla bæði um þann árangur sem náðst hefur og það sem enn er óunnið. Bagis sakar stjórnarand- stöðuna í Tyrklandi um að tefja fyrir sumum helstu umbótamálunum. - gb Evrópusambandið segir Tyrki þurfa að tryggja betur mannréttindi til að fá aðild: Makedónía tilbúin í viðræður OLLI REHN Stækkunarstjóri Evrópusambandsins kynnti stöðu aðildarviðræðna við Tyrkland og Balkanskagaríkin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRETLAND Jóhanna Sigurðardótt- ir forsætisráðherra er í 48. sæti á lista tímaritsins New Statesman yfir fimmtíu áhrifamestu einstakl- inga veraldar þessa dagana. Í fyrsta sæti listans er Obama- fjölskyldan í Bandaríkjunum, en í öðru sæti er Murdoch-fjölskyldan, það er fjölskylda fjölmiðlajöfurs- ins Ruperts Murdoch sem á nokkra helstu fjölmiðla veraldar. Í þriðja sæti er svo Marwan Barghouti, Palestínumaður sem hefur verið fangi Ísraelsmanna síðan 2004 en er talinn hugsanlegur framtíðar- leiðtogi Palestínumanna. Jóhanna er í tímaritinu nefnd Ísdrottningin, en henni er talið til tekna að vera fyrsti kvenkyns for- sætisráðherra Íslands ásamt því að vera fyrsti samkynhneigði þjóðar- leiðtogi heims, sem ekki fer í felur með það. Starfsbróðir Jóhönnu í Bret- landi, Gordon Brown, er í 29. sæti listans. Hann er sagður hafa verið fremstur í röð vestrænna leiðtoga í baráttu þeirra gegn heimskrepp- unni. Einungis fáir þjóðarleiðtogar eru á þessum lista, sem birtur var í lok september. Vladimír Pútín, for- sætisráðherra Rússlands, er í sjö- unda sæti en næstur honum kemur Osama bin Laden í áttunda. Næst á undan Jóhönnu, í 47. sæti, eru poppgoðin Jay-Z og Beyoncé, en í neðsta sæti listans er samsær- ishöfundurinn Dan Brown. - gb Tímaritið New Statesman gefur út lista yfir áhrifamestu einstaklinga heims: Jóhanna talin áhrifamikil ÍSDROTTNINGIN Jóhanna Sigurðardóttir er ein fárra þjóðarleiðtoga sem komast á listann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BRETLAND, AP Bretar ætla að senda 500 hermenn til Afganistans til viðbótar þeim níu þúsund sem þar eru fyrir. Gordon Brown forsætisráð- herra skýrði frá þessu á þingi í gær. Einnig las hann upp nöfn þeirra 37 bresku hermanna sem fallið hafa í Afganistan síðan þingið gerði hlé á störfum sínum í júlí. Breska herliðið í Afganistan er það næstfjölmennasta, á eftir bandaríska herliðinu. Yfirmað- ur fjölþjóðaherliðs Bandaríkj- anna og NATO í Afganistan hefur lagt áherslu á að fjölga þurfi her- mönnum til þess að árangur geti náðst. - gb Forsætisráðherra Breta: Fleiri hermenn til Afganistans Munt þú láta bólusetja þig gegn svínaflensu hafir þú kost á því? JÁ 58,9% NEI 41,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Lest þú blogg vikulega eða oftar? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.