Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 52
36 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
SARAH FERGUSON (1959) FÆDDIST
ÞENNAN DAG.
„Þetta var hræðilegur tími.
Þeir reyndu að loka lítinn
rauðhaus inni í búri.“
Sarah Ferguson hertogaynja af
York var gift Andrési prins, næst-
elsta syni Elísabetar Bretadrottn-
ingar, en þau skildu 1996. Sarah
var um skeið eitt algengasta við-
fangsefni bresku slúðurblaðanna.
„Í esperanto eru miklar menningarlegar auðlindir auk þess
sem það einfaldar ferðalög um heiminn,“ segir Hannes Högni
Vilhjálmsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, en hann stýr-
ir málþingi um esperanto sem hefst í fundarsal Þjóðarbók-
hlöðunnar í dag klukkan 15.30. Að því loknu verður sýningin
Eitt tungumál fyrir allan heiminn opnuð í anddyri safnsins
og verður hún gestum þess aðgengileg í nóvember.
Tilefni málþingsins og sýningarinnar er að í ár eru hundr-
að ár liðin frá því að fyrsta íslenska kennslubókin í esperanto
kom út. Bókina skrifaði dr. Þorsteinn Þorsteinsson, hagfræð-
ingur og fyrsti forstöðumaður Hagstofu Íslands, og lagði
hún grunn að fjölbreyttu íslensku esperantostarfi. Hannes
er barnabarnabarn Þorsteins og segir hann áhuga langafa
síns á málinu hafa kviknað þegar hann var á unglingsaldri
og síðar hafi hann unnið af dugnaði að því að fræða fólk um
gildi tungumálsins.
„Það eru nokkrir hlutir sem gera þetta mál einkar að-
laðandi,“ segir Hannes og útskýrir því næst að í samtök-
um esper antista sé fólk um allan heim sem bjóði annað fólk
sem talar málið velkomið til að dvelja hjá sér til lengri eða
skemmri tíma. „Þetta gefur því ótal möguleika til spennandi
ferðalaga og dregur mikið af ungu og ævintýragjörnu fólki
til sín,“ segir Hannes. Hann bendir því næst á að margir
heillist af þeim jafnréttisgrundvelli sem esperanto veitir.
Þar að auki veiti esperanto fólki aðgang að svo gríðarlega
miklu magni af upplýsingum um allan heim. „Ef maður gerir
eitthvað á esperanto er maður sjálfkrafa kominn á alþjóðleg-
an markað,“ segir Hannes og bendir á að fyrr í vikunni hafi
hann hlustað á ungan Ítala flytja ljóð um Esjuna. Ljóðið hafi
hann svo sett á vefsíðu og þar skoði esperantistar heimsins
ljóð Ítalans um íslenska fjallið Esjuna á sameiginlegu tungu-
máli. Alþjóðlegri geti ljóðlist vart orðið. Af þeim sökum sé
auðvelt að vekja athygli á sér á þessu tungumáli og efni ann-
arra málheima verði manni aðgengilegra. karen@frettabladid.is
ESPERANTO: 100 ÁRA KENNSLUBÓK
ESPERANTO
OPNAR DYR
GLUGGAÐ Í GAMLA LEYNDARDÓMA Hannes Högni, lektor við Háskól-
ann í Reykjavík, gluggar hér í gögn langafa síns, Þorsteins Þorsteins-
sonar hagstofustjóra, sem lagði grunn að fjölbreyttu esperantostarfi
hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Sigríður Guðbjörnsdóttir
Eyjabakka 12, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 10. október. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 16. október
kl. 13.00.
Steinn Gunnarsson
Kristbjörg Áslaugsdóttir
Friðbjörn Steinsson Halldís Hallsdóttir
Björgvin Steinsson Sigrún Anný Jónasdóttir
Svana Steinsdóttir Sigurður Guðmundsson
barnabörn, langömmubarn og bræður.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Svanhildar Guðnadóttur
Hörgshlíð 6, Reykjavík.
Guðrún Þ. Þórðardóttir Þorvaldur K. Þorsteinsson
Svanhildur Þorvaldsdóttir Þór Tryggvason
Margrét Á. Þorvaldsdóttir Georg Garðarsson
og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Hinriksdóttir (Gígja)
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 13. október sl.
Útförin auglýst síðar.
Gunnar Örn Hámundarson
Hrafnhildur Hámundardóttir Erlingur Þ. Jóhannsson
Kolbrún Hámundardóttir Jón Guðnason
og fjölskyldur.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
Sigrún Helgadóttir
Borgarheiði 41, Hveragerði,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 8. október. Jarðsungið verður frá
Hveragerðiskirkju föstudaginn 16. október kl. 14.00.
Guðmundur Valgeir Ingvarsson
Lilja Guðmundsdóttir Símon A. Pálsson
Guðrún Guðmundsdóttir Össur E. Friðgeirsson
Björn Guðmundsson Sigríður Magnúsdóttir
Jóna Helgadóttir Drake Ken Drake
Árni Helgason Elísa Símonardóttir
Sigurbjörn Helgason Fríða S. Haraldsdóttir
Jón Helgason Þorgerður Þorvaldsdóttir
Eiríkur Gylfi Helgason Gerður Janusdóttir
Sigrún, Dagrún Ösp, Íris Alma, Katrín Eik, Magnús Geir
og Helgi.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Soffía Felixdóttir
Þórðarsveig 1, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut,
1. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Felix Sigurðsson Svanhildur Hauksdóttir
Sigurður Freyr Sigurðarson Sóley Helga Björgvinsdóttir
Jón Þór Sigurðarson Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Magnússon
rafvirkjameistari, Skólavörðustíg 16a,
lést á Landspítalanum 3. október sl. Útförin fer fram
frá Laugarneskirkju föstudaginn 16. október kl. 13.00.
Unnur Pálsdóttir
Magnús Sigurðsson Kristín Michelsen
Anna Guðrún Sigurðardóttir Ólafur Bjarni Guðnason
Sigríður Sigurðardóttir
Halldór S. Sigurðsson Maria Lorena R. Tolo
Esther Sigurðardóttir
Sigurður Fjalar Sigurðarson Sigrún Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Árni Grétar Finnsson
hæstaréttarlögmaður, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 11.
október. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 21. október kl. 15.00.
Sigríður Oliversdóttir
Lovísa Árnadóttir Viðar Pétursson
Finnur Árnason Anna María Urbancic
Ingibjörg Árnadóttir Jónas Þór Guðmundsson
Sigríður Erla, Pétur, Davíð, Finnur Árni, Árni Grétar,
Ebba Katrín, Oliver Páll, Viktor Pétur, Guðmundur Már,
Lovísa Margrét og Stefán Árni.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
ástvinur,
Hjalti Gestsson
ráðunautur og fyrrverandi framkvæmda-
stjóri, Reynivöllum 10 Selfossi,
sem lést 6. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju, laugardaginn 17. október kl. 13.30.
Margrét Hjaltadóttir Kristján H. Guðmundsson
Ólafur Hjaltason Steinunn Ingvarsdóttir
Unnur Hjaltadóttir Friðrik Páll Jónsson
Gestur Hjaltason Sólveig R. Kristinsdóttir
Ástríður H. Andersen
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
Ólafur á Heygum
Magnússon
Bræðratungu 13,
lést að heimili sínu föstudaginn 9. október.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn
16. október kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heimahlynningu Landspítalans í síma 543-1159.
Jóhanna S. Kjartansdóttir
Sigrún á H. Ólafsdóttir Halldór Ingólfsson
Hrafndís Hanna Halldórsdóttir
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
Svanhvít Kristjánsdóttir
lést laugardaginn 10. október á Dvalar- og hjúkrun-
arheimilinu Grund Reykjavík. Útför hennar fer fram
frá Fossvogskapellu föstudaginn 16. október kl. 11.00.
Innilegar þakkir til starfsfólks á Dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund.
Þórólfur Pálsson
Eydís María Þórólfsdóttir
Dóra Kristín Þórólfsdóttir Sigurður Ómar Ásgrímsson
Inga Þórólfsdóttir Einar Baldvin Axelsson
Kristján Máni, Eva Kristín, Svanhvít Þóra,
María Björk, Hildur Herdís og Axel Þór.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.