Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 15. október 2009 49
Bandaríski söngvarinn Al Martino, sem
lék Johnny Fontane í Guðföðurmyndun-
um, lést á heimili sínu í Fíladelfíu, 82
ára gamall. Hann vann sér það einn-
ig til frægðar að hafa átt fyrsta lagið
sem komst í efsta sæti breska vinsælda-
listans. Lagið Here In My Heart náði
toppsætinu þegar NME kynnti vin-
sældalista sinn í fyrsta sinn árið 1952.
Hélt Martino sætinu í heilar níu vikur.
Á meðal annarra vinsælla laga hans
voru Spanish Eyes, Can‘t Help Falling
in Love og Volare. Martino tók einnig
upp titillag The Godfather og söng það
í brúðkaupsatriði fyrstu myndarinnar.
Persónan Johnny Fontane var guðsonur
Don Vito Corleone, sem Marlon Brando
lék á eftirminnilegan hátt. Talið er að
söngvarinn Frank Sinatra hafi verið
fyrirmynd Fontanes.
Al Martino látinn
AL MARTINO Johnny Fontane
úr Guðföðurmyndunum er
látinn, 82 ára. NORDICPHOTOS/GETTY
„Ég er rosalega spennt fyrir báðum
tónleikunum. Hljómsveitirnar spila
gjörólíka tónlist og það verður
gaman að syngja með þeim báðum,“
segir söngkonan Rakel Mjöll Leifs-
dóttir, sem syngur með hljómsveit-
unum Sykri og Útúrdúr sem báðar
verða á tónlistarhátíðinni Airwa-
ves í ár.
Rakel Mjöll hefur sungið í kór í
nokkur ár auk þess sem hún keppti
tvisvar fyrir hönd Kvennaskólans
í Söngkeppni framhaldsskólanna,
þaðan sem hún útskrifaðist í vor.
Nú stundar hún nám í kvikmynda-
fræði við Háskóla Íslands og lærir
djasssöng við FÍH ásamt því að
syngja með tveimur hljómsveitum.
„Mér finnst gaman að gera margt
í einu og hingað til hefur það geng-
ið fullkomlega upp. Tónleikar Syk-
urs og Útúrdúrs eru sjaldan á sama
tíma þótt það sé stundum stutt á
milli.“
Rakel Mjöll segir það mikilvægt
að hún skipti um karakter þegar
hún er á sviði með hljómsveitunum
því tónlistin sé ólík og stemning
tónleikagesta eftir því. „Ég reyni að
vera sitthvor karakterinn til þess að
skapa rétta stemningu á tónleikum.
Tónlistin er svo ólík og hjá Sykri er
þetta til dæmis meiri dans og stuð.
Útúrdúr er tólf manna hljómsveit
sem spilar hálfgerða sígaunatónlist
og á ýmis hljóðfæri. Stundum hefur
verið þröngt að koma okkur öllum
fyrir á sviði þar sem við erum svo
mörg, en ég hef engar áhyggjur af
því fyrir Airwaves-tónleikana, við
verðum bara að sitja þétt,“ segir
Rakel Mjöll.
Fyrsta plata Sykurs kom út í
vikunni og plata er væntanleg frá
hljómsveitinni Útúrdúr seinna í
vetur. Sykur spilar á Batteríinu í
kvöld klukkan 23.20. - sm
Best að hafa nóg fyrir stafni
UNG OG EFNILEG Rakel Mjöll Leifsdóttir
segist hafa gaman af því að hafa nóg
fyrir stafni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hótelerfinginn Paris Hilton hefur
bæst í hóp þeirra stjarna sem
hafa keypt sér smásvín sem gælu-
dýr. Smásvínin eru ræktuð í Bret-
landi og fullvaxta eru þau á stærð
við meðalstóran hund, eitt svín
kostar um eitt þúsund dollara.
Paris festi kaup á einu smásvíni
sem hún kallar Miss Piglette, eða
Fröken Svínka. Fröken Svínka
kostaði þó heldur meira en önnur
smásvín því París greiddi fjögur
þúsund dollara fyrir grísinn.
„Paris er afskap-
lega ánægð með
gæludýrið. Hún
elskar dýr og
hún hlakkar
mikið til að fá
grísinn sinn til
sín,“ sagði tals-
maður fröken
Hilton.
Kaupir sér
rándýrt svín
LIFÐU VEL!
Ferskur
Floridana
í nýjum
umbúðum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Spaugstofan er vinsælasti
sjónvarpsþáttur landsins
eins og undanfarin ár. Þátt-
urinn hefur smám saman
tekið breytingum; gömlu
grínararnir eru farnir að
notast við nýjustu tækni
til að fríska upp á sjóið. Að
baki sýndarheimi Spaug-
stofunnar eru þau Ólöf Erla
Einarsdóttir og Sigurður
Bragason.
„Ég er búinn að vinna með Spaug-
stofunni í fimm ár og það hefur
aldrei verið eins mikið af grafík
og síðustu tvö ár,“ segir hönnuð-
urinn Ólöf Erla Einarsdóttir.
Ólöf Erla og Sigurður Bragason
hanna sýndarheim Spaugstofunn-
ar sem virðist stækka með hverju
árinu. Í síðasta þætti voru grín-
istarnir til að mynda sendir út í
geim þar sem risavaxið geimskip
gleypti þá með húð og hári. Þætt-
irnir eru unnir frá miðvikudegi
til föstudags og Ólöf segir að það
sé gríðarleg keyrsla. „En þetta
er rosalega gaman og við gerum
aldrei það sama,“ segir hún. „Við
höfum gert heilu teiknimyndirn-
ar á einum degi. En þetta reddast
alltaf og við náum alltaf að klára
þetta á góðum tíma.“
Spaugarinn Karl Ágúst Úlfs-
son staðfestir að sýndarheim-
ur Spaugstofunnar stækki með
hverri þáttaröðinni. „Eftir því
sem tækninni fleygir fram verð-
ur auðveldara að gera þetta,“
segir hann og bætir við að
vinnslutími Spaugstofunnar hafi
alltaf verið knappur. „Við gerum
ýtrustu kröfur til allra deilda.
Það eru allir að vinna ofur-
mannlegt starf í hverri viku, en
nú erum við komnir með þekk-
ingu og tækni til að gera flóknari
hluti á þessum skamma tíma. Það
hefur þróast þannig að kröfurnar
halda áfram að vera miklar. Við
ráðum við flóknari hluti á þess-
um stutta tíma.“
atlifannar@frettabladid.is
Fólkið sem skapar sýndar-
heim Spaugstofunnar
SKAPARAR Ólöf Erla og Sigurður hanna heiminn utan um Spaugstofuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FYRIR OG EFTIR Séð frá stjórnarráð-
inu fyrir og eftir meðferð frá Ólöfu og
Sigurði.