Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 72
56 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Grindvíkingurinn Jósef
Kristinn Jósefsson mun að öllum
líkindum fara aftur til Malmö í
Svíþjóð í næsta mánuði þar sem
forráðamenn Malmö FF vilja
skoða hann nánar.
Hann fór til félagsins í síðasta
mánuði og stóð sig vel. „Mér leist
mjög vel á félagið. Það er gríð-
arlega góð umgjörð í kringum
liðið og mér leist mjög vel á allar
aðstæður,“ sagði Jósef.
Hann skoraði annað marka
Íslands í 2-1 sigri á Norður-
Írlandi í fyrrakvöld í heimabæ
sínum og hefur verið fastamað-
ur í liði Grindavíkur undanfarin
þrjú tímabil. - esá
Jósef Kristinn Jósefsson:
Aftur til Malmö
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson, yfir-
maður knattspyrnumála hjá KR,
segir yfirgnæfandi líkur á því
að félagið muni ganga frá sölu
á markverðinum Stefáni Loga
Magnússyni nú um helgina.
Stefán Logi hefur verið í láni
hjá norska úrvalsdeildarfélaginu
Lilleström síðan í sumar og þótt
standa sig mjög vel.
„Þeir hafa mikinn áhuga á að
fá Stefán Loga en það var vitað að
þeir myndu taka sér góðan tíma
til að skoða hann. Mér skilst þó
að það sé stutt í að það verði hægt
að ganga endanlega frá þessu,“
sagði Rúnar við Fréttablaðið.
Enn er óvíst hvort Andre Hans-
en verði seldur frá Lilleström til
KR. Sjálfur hefur hann þó lýst
yfir áhuga á að vera áfram í her-
búðum félagsins.
Lilleström er í ellefta sæti
norsku úrvalsdeildarinnar. - esá
Stefán Logi Magnússon:
Salan kláruð á
næstu dögum
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason hélt
í gær til Belgíu þar sem hann
mun æfa og spila með úrvals-
deildarfélaginu Genk næstu tíu
dagana. Frá þessu var greint á
fótbolti.net.
Alfreð var kjörinn efnilegasti
leikmaður Pepsi-deildar karla í
sumar en hann var þriðji marka-
hæsti leikmaður deildarinnar.
Alls skoraði hann þrettán mörk
í átján leikjum með Breiðabliki
í sumar. Hann skoraði auk þess
bæði mörk Blika í bikarúrslita-
leiknum gegn Fram á dögunum.
- esá
Alfreð Finnbogason:
Æfir og spilar
með Genk
ALFREÐ Gæti verið á leið í atvinnu-
mennskuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Pétur Georg Markan
hefur ákveðið að ganga aftur til
liðs við Fjölni. Hann lék með Val
í sumar en með Fjölni frá 2005 til
2008. Hann gerir nú tveggja ára
samning við Fjölni.
„Eftir að hafa skoðað þá kosti
sem mér stóðu til boða stóð hug-
urinn þangað. Mér finnst spenn-
andi að fara aftur upp í Grafar-
voginn og taka þátt í þeim
metnaðarfullu verkefnum sem
eru fram undan þar.“ - esá
Pétur Georg Markan:
Aftur í Fjölni
HANDBOLTI Haukar og Akureyri
skildu jöfn, 24-24, í æsispennandi
leik á Ásvöllum í gær. Leikur-
inn var í járnum allan tímann og
jafntefli líklega sanngjörn niður-
staða.
Akureyri var skrefi á undan
allan fyrri hálfleikinn en Haukar
komust yfir undir lokin. Liðin
skiptust á að hafa forystuna í þeim
seinni. Lokamínútan var æsispenn-
andi. Birkir Ívar varði tvö skot í
röð frá Akureyri og sá til þess að
sitt lið fékk lokasóknina.
Það kom í hlut Sigurbergs að
taka lokaskot leiksins en Hafþór
varði það. Meistararnir urðu því
að sætta sig við eitt stig á heima-
velli í gær. Þeir rétt mörðu slakt lið
Stjörnunnar í fyrsta leik og skor-
uðu svo aðeins 24 mörk gegn Akur-
eyri sem var án tveggja af sínum
bestu varnarmönnum. Sigurberg-
ur á enn nokkuð í land og Björg-
vin ekki eins tilbúinn og búist var
við. Nýliðar á borð við Tjörva Þor-
geirsson virðast síðan ekki tilbún-
ir í slaginn.
Birkir Ívar dró Haukaliðið inn í
leikinn í gær er þeir voru að tapa
honum og Haukar geta þakkað
honum fyrir stigið. Pétur Pálsson
var einnig firnasterkur á línunni
en sóknarleikinn þarf liðið að laga
hið fyrsta.
Akureyringar spiluðu hörku-
vörn lengstum í gær og þurftu
ekki sömu markvörslu og Haukar
þó svo Hafþór hafi varið ágætlega
á köflum. Heimir Örn var geysi-
lega drjúgur á lokakaflanum en
slíkt hið sama verður ekki sagt um
Árna Þór sem átti skelfilegan leik.
Oddur var flottur og Hafþór ágæt-
ur í markinu.
„Fyrirfram hefði maður verið
sáttur við stig en eftir þennan leik
hefði maður viljað meira. Við feng-
um færi til þess að klára leikinn og
slíta okkur frá þeim en við nýttum
þau ekki,“ sagði Jónatan Magnús-
son, leikmaður Akureyrar.
Ekki náðist í þjálfara né leik-
menn Hauka sem létu sig hverfa
hið fyrsta inn í klefa, líklega á
krísufund.
henry@frettabladid.is
Vandræðagangur á Haukum
Íslandsmeistarar Hauka fara ákaflega hægt af stað á Íslandsmótinu í ár og
nokkur vandræðagangur í leik liðsins og þá aðallega sóknarleiknum. Væng-
brotið lið Akureyrar sótti gott stig á Ásvelli í gærkvöld.
SEIGUR Heimir Örn Árnason var drjúgur í liði Akureyrar á Ásvöllum í gær. Hann skor-
aði sex mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
N1-deild karla:
Haukar-Akureyri 24-24 (13-12)
Mörk Hauka (skot): Sigurbergur Sveinsson 7/3
(16/3), Björgvin Hólmgeirsson 5 (14), Pétur
Pálsson 5 (5), Einar Örn Jónsson 2 (2), Tjörvi
Þorgeirsson 1 (3), Elías Már Halldórsson 1 (4),
Guðmundur Árni Ólafsson 1 (1), Heimir Óli
Heimisson 1 (1), Stefán Rafn Sigurmannsson
1 (3).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 16 (32/3)
50%, Aron Rafn Eðvarðsson 7 (15) 47%.
Hraðaupphlaup: 3 (Elías, Heimir, Stefán).
Fiskuð víti: 3 (Pétur, Einar, Björgvin).
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Akureyri (skot): Oddur Grétarsson 7/3
(10/3), Heimir Örn Árnason 6 (12), Árni Þór
Sigtryggsson 3 (12), Guðmundur Hólmar
Helgason 3 (7), Jónatan Magnússon 2 (5), Heiðar
Aðalsteinsson 1 (2), Halldór Logi Árnason 1 (2),
Hreinn Hauksson 1 (1).
Varin skot: Hafþór Einarsson 13 (32/2) 41%.
Hraðaupphlaup: 5 (Árni 2, Oddur 2, Hreinn).
Fiskuð víti: 3 (Árni, Jónatan, Halldór).
Utan vallar: 6 mín.