Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 58
42 15. október 2009 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 15. október 2009 ➜ Töfrabrögð 20.00 Hið árlega Töfrakvöld HÍT haldið í Loftkastal- anum við Seljaveg. Sérstakur gestur verður breski töfra- maðurinn John Archer en einnig koma fram Jón Víðis, Lalli töfra- maður, Magnús Böðvarsson, Skúli Rafn, Gunnar Óli og Sirkustrúðurinn Wally. ➜ Tónleikar 20.00 Narfur, We went to Space, At Dodge City og NOLO troða upp á tón- leikum í Hinu húsinu við Pósthússtræti 3-5. Allir allsgáðir og eldri en 16 ára velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Gengið inn Austurstrætismegin í kjallarann. 20.30 Kammerkór Bodals frá Svíþjóð heldur tónleika ásamt kammerkórum Mosfellsbæjar og Akraness í Safnaðar- heimilinu Vinaminni á Akranesi. 20.30 Papar verða með tónleika á All- anum við Aðalgötu á Siglufirði. Sérstakir gestir verða Gylfi Ægisson og Bubbi Morthens. 21.00 Hljómsveit Hafdísar og Unison koma fram á tónleikum sem Jazzklúbb- urinn Múlinn stendur fyrir í kjallara Cafe Cultura við Hverfisgötu. 21.00 Thin Jim and the Castaways verða með tónleika á Rósenberg við Klapparstíg. 22.00 Dj Hreggó verður á Sjallanum við Geislagötu á Akureyri. 22.00 HEK spilar á Den danske kro við Ingólfsstræti 3. Enginn aðgangseyrir. ➜ Tónlistarhátíð 20.00 S.L.Á.T.U.R stendur fyrir tónlist- arhátíðinni Sláturtíð 15.-17. okt. Í kvöld verða tónleikar í Fríkirkjunni þar sem flutt verða verk eftir Þorkel Atlason, Jesper Pedersen, Áka Ásgeirsson, Hall- varð Ásgeirsson, Andre Vida og Matthew Shlomovitz. ➜ Pub Quiz 21.00 Annan hvern fimmtudag er haldin spurningakeppni á Live Pub við Frakkastíg 8. Keppnin samanstendur af almennum krossa- og myndaspurn- ingum ásamt hljóðdæmum. Sérstakur gestur í kvöld er Eyjólfur Kristjánsson. Aðgangur er ókeypis. Ath. breyttur tími. ➜ Sýningar Þorbjörg Þórðadóttir og Þórður Hall hafa opnað sýningu í Norræna húsinu við Sturlugötu á listvefnaði og málverk- um. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Julia Staples og Lana Vogestad hafa opnað sýningu í Lost Horse Gallery við Vitastíg 9a. Opið mið.-sun. kl. 13-19. Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 15 er nú til sýnis bókin „Flora Islandica“ sem inniheldur 271 teikningu Eggerts Péturssonar á háplöntum íslenskrar flóru. Einnig standa þar yfir sýningar á verkum Sigurður Gunnarssonar og Kristínar Elvu Rögn- valdsdóttir. Opið alla daga kl. 11-17. ➜ Málþing 15.00 Í Þjóðarbókhlöðinni við Arngrímsgötu verður sett málþing til heiðurs dr. Þorsteini Þorsteinssyni, hagfræðingi og esperantista. Erindi flytja: Jónas Haralz, Gylfi Zoëga, Kristján Eiríksson og Baldur Ragnarsson. Að loknu málþingi verður opnuð sýning tengd Þorsteini. ➜ Fyrirlestrar 12.00 Mark Weiner flytur erindi um uppruna og byggingu stjórnarskrár Bandaríkja Norður-Ameríku hjá Háskól- anum á Akureyri, Sólborg, (L201) við Norðurslóð. 12.15 Eva Dögg Þorgeirs- dóttir, fræðslufulltrúi Sorpu, flytur erindi um vistvænt heimilishald á hádegisfyrirlestri hjá Nor- ræna félaginu við Óðinsgötu 7. Léttar veitingar verða á borðum. Eng- inn aðgangseyrir. 20.15 Jóhann Björnsson flytur erindi um málefni flóttamanna frá sjónarhóli siðfræðinnar. Erindið fer fram í stofu HT 101 hjá Háskóla Íslands. ➜ Ráðstefna 12.00 Matvæla- og næringarfræðafé- lag Íslands heldur sinn árlega Matvæla- dag á Grand Hóteli við Sigtún. Nánari upplýsingar á www.mni.is. ➜ Síðustu forvöð Sýningu Halldórs Baldurssonar teikn- ara „Í fréttum var þetta helst... „ í Gerðubergi (Gerðuberg 3-5) lýkur á sunnudag. Þar sýnir Halldór pólitískar skopmyndir sem sýna það sem helst hefur þótt fréttnæmt síðustu þrjú árin. Opið virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16. Leiklist ★★ Lilja Eftir Jón Gunnar Þórðarson Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson. Leikmynd: Jón Gunnar og fleiri. Búningar: Rannveig Eva Karlsdótt- ir. Lýsing: Gunnar Sigurbjörnsson. Hin félagslega eymd margra landa Austur-Evrópu, Afríku norðanverðrar og landa Suður- og Mið-Ameríku hefur skilað bylgju eftir bylgju flóttafólks sem kom- ist hefur norðureftir til ríkari landa þar sem þetta fólk safn- ast til óþrifastarfa í borgum og sveitum sem innfæddir vilja ekki sinna lengur. Í mörgum dæmum eru þetta hefðbundin störf farand- verkamanna, í öðrum tilvikum er um hreint mansal að ræða, eink- um á kornungum stúlkum sem eru sviknar norður eftir með loforð- um um bærilegt líf og skárri kjör. Í sumum tilvikum kemst upp um glæpastarfsemina en uppljóstrun er þeim annmarka háð að fórnar- lambið, niðurbrotið og smánað, er sent heim. Í öðrum tilvikum ílend- ast starfskraftar kynlífsiðnaðar- ins en halda áfram að vera í jaðri samfélagsins. Fyrir nær tveimur áratugum átti ég samtal við pólska konu í Lond- on sem var starfandi á vinsælum kampavínsbar íslenska flugflotans rétt utan við Regent Street milli Mayfair og Soho. Hún var heldur hispurslaus í tali og sagðist verða í þessu starfi meðan hún gæti. Árin hennar voru orðin tíu þar á klúbbn um, hún var komin með þokkalega íbúð og átti ungan strák sem hún vildi koma til manns. Með henni í starfskynningu var sautján ára landa hennar sem var nýkomin í nýtt starf. Það var alveg skýrt í hvaða erindisrekstri þær voru. Örlög kvenna frá Eystrasalts- löndunum, Póllandi, Úkraínu, Moldavíu, Rússlandi og Balkan- löndunum gömlu hafa lengi lengi verið efniviður í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, misgrófum. Örlög Danguole frá Litháen urðu opinber þegar hún stökk fram af brú í Svíþjóð og Lukas Moodys- son nýtti þau í dæmisögu um hvert hlutskipti þessara kvenna eru í Sví- þjóð. Efnið kemur líka upp í loka- kafla þríleiks Stiegs Larsson sem er vinsælt skemmtiefni um þessar mundir hér á landi. Ég á erfitt með efni sem þetta orðið: innrás glæpagengja að aust- an er oft notuð sem skýring á þess- um smánarbletti vestrænna samfé- laga, en vændishverfin í evrópskum borgum hafa um aldir verið fyllt af öreigum úr sveitum álfunnar. Það er erfiðara að finna haldbær- ar skýringar á þörfinni sem þessi skepnuskapur sinnir; lengi töldu menn skort á almennilegum getn- aðarvörnum skýringu á því að karl- menn af öllum stigum sæktu sér kynferðislega fróun í hórukassa álf- unnar. En sú skýring er ekki hald- bær lengur. Víða er kynlífsiðnaður- inn inngróinn í borgarmenninguna og þrífst fyrir opnum augum stjórn- valda. Þannig er það hér. Sagan af litháísku stúlkunni sem kaus dauðann frekar en það ömur- lega líf sem hún bjó við er nú orðin uppspretta leiksýningar norður á Akureyri. Margt er þar faglega unnið, leikurinn eins og efni gefur til, útlit og leikmynd snoturlega leyst í Rýminu. Leikverkið er aftur harla þunnt í roðinu, sagan fyrir- sjáanleg: „Sástu myndina,“ mátti heyra á þriðju sýningu verksins á sunnudag. Og það verður eiginlega að gera meiri kröfur til verka sem rata hingað á svið en að „gleðja“ okkur með hinu fyrirsjáanlega, jafnvel þótt hér sé um innanhús- vanda að eiga í þjóðarbúinu eins og bent er í leikskrá; við látum þetta líðast hér og erum svo hræsnis- full að horfa upp á svívirðinguna á sviði frekar en stoppa hana af með aðgerðum. Þessar konur eru efna- hagslegir flóttamenn, rétt eins og hámenntaðir starfsmenn ræstinga- fyrirtækjanna sem hér starfa. Gernýting saklauss fólks, ævi þeirra og líkama, er virkur og verndaður hluti af efnahagskerfi heimsins, okkar heims. Menn geta sagt að sú saga sem Jón Gunnar reynir að segja þurfi sífellda upp- rifjun, en það er til marks um að við neitum staðreyndum, eins og okkur virðist henta mikið um þess- ar mundir. Og maður skammast sín. Það eru margar fínar hugmynd- ir í verki Jóns. Leikurinn er allur heldur yfirborðskenndur, enda fátt um djúpmið í textanum og lífi þess fólks sem hann reynir að lýsa. Og við erum engu nær um okkur sjálf og getuleysi okkar til að stöðva óhæfuna hér á landi. Það verður gaman að sjá allt þetta fólk takast á við bitameiri verk: Jönu Maríu, Maríu Þórðar sem er orðin prýð- is leikkona, Atla Þór og hinn unga og efnilega Ólaf Inga. Þráinn bætti snotru illmenni í sitt stóra gallerí. Ef þannig má að orði komast. En ég efast um erindið í þessu formi. Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Friðþæging? Félagslegt klám? Grunnfærið verk en ekki ósnot- urlega unnið. Mannhatur mestan part LEIKLIST Lilja í Rýminu á Akureyri. María Þórðardóttir og Jana María Guðmundsdóttir í hlutverkum sínum. MYND/GRÍMUR BJARNASON 13:30 Ráðstefnan sett Fundarstjóri Björg Thorarensen, prófessor og forseti lagadeildar HÍ 13:35 Mannréttindasáttmáli Evrópu Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra 13:45 Hlutverk Evrópuráðsþingsins á sviði mannréttinda: Frá orðum til athafna. Lilja Mósesdóttir, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins 14:00 Hlutverk ráðherranefndar Evrópuráðsins Hörður H. Bjarnason, sendiherra 14:15 Vandi Mannréttindadómstóls Evrópu: Fórnarlamb eigin velgengni Davíð Þór Björgvinsson, dómari Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu 14:45 Fyrirspurnir og umræður 15.00 Kaffihlé 15:30 CPT - Nefnd um varnir gegn pyndingum. Er þörf á eftirliti hér? Pétur Hauksson, fulltrúi Íslands í nefndinni og annar varaforseti 15:45 Baráttan gegn kynþáttamisrétti! Baldur Kristjánsson, B.A. Soc, Th. M., fulltrúi Íslands í sérfræðinganefnd Evrópuráðsins 16:00 Framlag Íslands í réttindamálum barna Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu 16:15 Að byggja lönd með lögum Hjörtur Torfason, fulltrúi Íslands í Feneyjarnefndinni 16:30 Fyrirspurnir og umræður 16:45 Ráðstefnu slitið Mannréttindi og lýðræði Framlag Evrópuráðsins til lýðræðis og mannréttinda í ríkjum Evrópu Í tilefni af 60 ára afmæli Evrópuráðsins og 50 ára afmæli Mannréttindadómstóls Evrópu munu Alþingi, Alþjóðamálastofnun og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands , dómsmála- og mannréttindaráðuneyti og utanríkisráðuneyti Íslands standa fyrir ráðstefnu þar sem ljósi verður varpað á stöðu mannréttinda, lýðræðis og þróun réttarríkisins í Evrópu og leiðandi hlutverk Evrópuráðsins á því sviði. Hvenær: Föstudaginn 16. október Hvar: í Öskju (sal 132) kl. 13.30 – 16.45 Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.