Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 4
4 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Niðurstöður rannsóknarnefnd-
ar Alþingis, sem rannsakar nú aðdraganda
bankahrunsins, verða ekki tilbúnar til birt-
ingar fyrr en um miðjan janúar í fyrsta lagi.
Nefndin mun fá frest til 1. febrúar næstkom-
andi til að skila skýrslu sinni.
Páll Hreinsson, formaður nefndarinn-
ar, sagði á fundi með fjölmiðlafólki í gær að
nokkrar ástæður væru fyrir því að farið hefði
verið fram á lengri frest.
Þannig voru gögn sem nefndin aflaði sér
frá bönkunum viðameiri en reiknað var með
og talsverðan tíma tók að koma þeim á form
sem hentaði til samanburðar, segir Páll. Þá
séu gögn raunar enn að berast, til dæmis frá
útibúum og dótturfélögum bankanna erlendis.
„Þegar farið var að skoða þessi gögn fóru
að koma í ljós ýmis flókin og yfirgripsmikil
viðskipti sem við höfum þurft að skoða nánar
og fara yfir,“ segir Tryggvi Gunnarsson, einn
nefndarmanna. „Þetta hefur því tekið lengri
tíma og orðið flóknara en við höfðum vænt-
ingar um.“
Þar með hafi nefndin staðið frammi fyrir
tveimur kostum; að skila verra verki en til
hafi staðið, eða óska eftir því að fá lengri
frest til að skila skýrslunni, sem þegar er
orðin yfir 1.000 síður að lengd.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti
Alþingis, sagði við upphaf þingfundar í gær
að til standi að breyta lögum um nefndina til
að veita henni umbeðinn frest.
Til greina kom að skila áfangaskýrslu, og
ákveðnir kaflar skýrslunnar eru raunar til-
búnir, segir Sigríður Benediktsdóttir, einn
nefndarmanna. Fallið hafi verið frá því þar
sem erfitt sé að aðskilja mál hvert frá öðru og
birta verði niðurstöður í samhengi.
Ekki stendur til að gera þau gögn sem
liggja að baki skýrslu nefndarinnar aðgengi-
leg almenningi um leið og skýrslan sjálf
verður gerð opinber, segir Páll. Gögnin fari
til Alþingis, sem verði að taka afstöðu til
þess hvort, og þá hvernig, fræðimönnum eða
öðrum verði veittur aðgangur að gögnunum.
Í skýrslu nefndarinnar verða þó án efa
birtar upplýsingar sem hingað til hafa fall-
ið undir bankaleynd, segir Páll. Það verði
þó aðeins gert þegar nauðsynlegt sé að birta
slíkar upplýsingar til að rökstyðja álit nefnd-
arinnar.
„Til að geta útskýrt söguna verðum við
einfaldlega að geta sagt frá hvernig hlutirn-
ir gerðust, þar með talið fjallað um stærstu
félögin sem voru í viðskiptum, og áttu jafnvel
bankana,“ segir Páll. brjann@frettabladid.is
Jóhann Ólafsson & Co
SJÁÐU HEIMINN Í
NÝJU LJÓSI með
OSRAM
Friðarsúla Yoko Ono í Viðey er
samansett úr níu 7000 W OSRAM XBO
perum sem mynda sterka ljóssúlu til
himins. Auk þess eru sex 2000 W
OSRAM XBO perur sem lýsa lárétt inn
göng sem vísa að ljósbrunninum
sjálfum og er endurkastað upp á við
með speglum innan í brunninum.
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
- umboðsaðili OSRAM á Íslandi frá árinu 1948
o
n
Rannsóknarnefnd frestar
birtingu á hrunskýrslunni
Skýrsla rannsóknarnefndar sem fjallað hefur um bankahrunið verður birt í síðasta lagi 1. febrúar. Viðfangs-
efnið reyndist vera viðameira og flóknara en ráð var fyrir gert. Skýrslan verður yfir 1.000 blaðsíður að lengd.
Rannsóknarnefnd Alþingis hefur tekið formlegar
skýrslur af 105 einstaklingum, en nefndarmenn
vildu ekki upplýsa Fréttablaðið um hverjir hafa
gefið skýrslu.
Að auki hefur nefndin rætt við yfir 300 manns
á fundum og í viðtölum til að afla nánari skýringa
og upplýsinga.
Lengsta skýrslutakan tók 24 klukkustundir, og
dreifðist á þrjá vinnudaga, að því er fram kom á
fundi með fjölmiðlum í gær.
„Við eigum enn þá eftir að kalla inn nokkuð
marga, og getum ekki látið það standa út af,“ segir
Sigríður Benediktsdóttir, einn nefndarmanna.
Ekki fékkst upp gefið hversu marga einstaklinga
í viðbót nefndarmenn hyggist boða til skýrslutöku
á næstunni.
HAFA RÆTT VIÐ YFIR 400 EINSTAKLINGA
RANNSÓKN Ekkert verður upplýst um efnislegar niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis fyrr en skýrsla nefnd-
arinnar verður birt. Nefndarmenn telja mögulegt að skýrslan verði tilbúin um miðjan janúar, en í síðasta lagi 1.
febrúar næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMGÖNGUR Leiðin á milli Bolung-
arvíkur og Reykjavíkur styttist
um 42 kílómetra þegar Djúpvegur
um Arnkötludal var opnaður við
hátíðlega athöfn í gær. Þá er nú
komið bundið slitlag alla leiðina.
Vegurinn er mikil samgöngubót
og tengir norðanverða Vestfirði
við hringveginn með bundnu slit-
lagi. Kári var í jötunmóð þegar
vegurinn var opnaður og í stað
þess að strengja borða yfir veginn
var brugðið á það ráð að bregða
honum um stein við veginn. Rokið
lét borðann í friði þar og athöfnin
fór fram eftir settum reglum. - kóp
Opna veg um Arnkötludal:
Styttri leið til
Bolungarvíkur
AFHJÚPA MINNISMERKI Kristján Möller
samgönguráðherra og Hreinn Haralds-
son vegamálastjóri afhjúpuðu merki um
að bundið slitlag er komið á veginn.
DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur
hafnað kröfu Magnúsar Ármann,
Kevins Stanford og eignarhaldsfé-
lagsins Materia Invest um að mál
Nýja Kaupþings á hendur þeim
verði fellt niður. .
Nýja Kaupþing vill að Magnús
og Kevin standi skil á 370 millj-
óna króna láni, sem veitt var Mat-
eria Invest á sínum tíma. Telur
Nýja Kaupþing að þeir Magnús og
Kevin séu í ábyrgðum fyrir lánið.
Materia Invest var um tíma meðal
stærstu eigenda FL Group.
Málið var einnig höfðað á hend-
ur Þorsteini M. Jónssyni, en hann
hefur samið um lausn þess fyrir
sitt leyti. - sh
Kaupþing vill innheimta lán:
Kröfu um frá-
vísun hafnað
GENGIÐ 14.10.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,7422
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,32 123,90
196,94 197,90
183,56 184,58
24,656 24,800
22,151 22,281
17,817 17,921
1,3801 1,3881
196,30 197,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Sigurbjörn Sigurðsson, veitingamaður
á Kaffi Duus í Keflavík, vill taka fram
að staður hans er ekki sá sem for-
maður Matvís hefur sakað um að fara
ekki að lögum í rekstri sínum. Kaffi
Duus sást á loftmynd af Keflavík sem
birtist í Fréttablaðinu á þriðjudag.
ÁRÉTTING
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
Mótmæla hernaðarumsvifum
Samtök hernaðarandstæðinga
mótmæla fyrirhuguðum hugmyndum
um hergagnageymslu og æfinga-
svæði fyrir Nató á Keflavíkurflugvelli.
Í ályktun segir að enginn munur sé
á því að þjónusta herþotur og þjálfa
herflugmenn eða varpa sprengjum í
fjarlægum löndum með sömu vélum.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
21°
13°
5°
4°
11°
13°
8°
8°
9°
7°
24°
15°
9°
32°
10°
14°
18°
8°
Á MORGUN
5-13 m/s hvassast norð-
vestan til
LAUGARDAGUR
3-8 m/s
8
15
15
15 8
13
6
14
6
10
13
10
10
10
8
10
8
78
8
9
4
10
10
8
8
8
108
11
7
7
BEST EYSTRA
Horft á daginn í dag og
morgundaginn verður
áberandi besta veðrið
austan til á landinu,
en þar verður vindur
sæmilega hægur og
bjart. Á morgun kemur
norðausturlandið inn
einnig með ágætt
veður. Annars staðar
verður fremur vinda-
samt, einkum vestast á
landinu ásamt úrkomu.
Á hinn bóginn dregur úr
úrkomu á landinu þegar
líður á daginn og rofar
nokkuð til. Hlýtt verður
í veðri.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
LÖGREGLUMÁL Rannsóknarteymi
bresku efnahagsbrotaskrifstof-
unnar (Serious Fraud Office, SFO)
er með íslenskan banka til skoðun-
ar, og bráðlega verður ljóst hvort
formleg rannsókn á mögulegum
lögbrotum verður hafin.
Þriggja manna hópur frá SFO
hefur skipst á upplýsingum og
gögnum um bankana við starfs-
menn embættis sérstaks saksókn-
ara frá því á mánudag.
„Með því að deila gögnum höfum
við hraðað rannsókn okkar umtals-
vert, og ég er viss um að hið sama
má segja um embætti sérstaks sak-
sóknara. Við höfum í raun unnið
margra vikna verk á þeim þremur
dögum sem við höfum eytt hér á
landi,“ segir Polly Sprenger, sem
fer fyrir hópnum frá SFO.
Sprenger er vongóð um að ein-
hver af þeim atriðum sem nú séu í
skoðun og tengjast íslenska bank-
anum komist á það stig að hægt
verði að hefja rannsókn, og í fram-
haldinu sækja grunaða til saka.
SFO hóf óformlega skoðun á
öllum íslensku bönkunum sem
höfðu starfsstöðvar í Bretlandi
í vor, en þá voru ekki næg sönn-
unargögn til að hefja formlega
rannsókn. Skoðun SFO nú bein-
ist að einum af viðskiptabönkun-
um þremur, en Sprenger vill ekki
upplýsa hvaða hver sá er. - bj
Breskir rannsakendur skiptast á gögnum um bankana við sérstakan saksóknara:
Með íslenskan banka í sigtinu
RANNSÓKN Polly Sprenger segir
starfsmenn sérstaks saksóknara vinna
gríðarlega gott starf, og afkasta mjög
miklu miðað við fjölda starfsmanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON