Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 8
8 15. október 2009 FIMMTUDAGUR 1. Hvað heitir fyrirtækið sem býður nú upp á svokölluð SMS- lán á háum vöxtum? 2. Hvaða írska drengjasveit er á leið til landsins að taka upp myndband? 3. Hver skoraði sigurmark Íslands í fótboltaleiknum gegn Suður-Afríku á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöld? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62 VERÐLAUN Hugvitskonan Guðrún Guðrúnardóttir hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir gifstappa sína frá Samtökum evrópskra hugvits- kvenna, (European women invent- ors and innovators network, EUWI- IN). Auk Guðrúnar voru sex aðrar íslenskar konur verðlaunaðar fyrir nýsköpun sína við hátíðlega athöfn í Helsinki. Það voru þær Herdís Egilsdóttir, sem hlaut verðlaun fyrir ævistarf sitt, óvenjulega mikla sköpunar- gáfu og kennsluaðferðina Land- námsaðferðin – samþætting náms- greina í grunnskóla, Margrét Pála Ólafsdóttir sem fékk viðurkenn- ingu fyrir Hjallastefnuna, Rósa Helgadóttir fyrir hönnun og endur- nýtingu, Alexandra Argunova fyrir nýsköpun í menningartengslum, Hulda Sveinsdóttir fyrir hönnun á heilsukoddanum Keili og Ágúst- ína Ingvarsdóttir fyrir nýsköpun í sjálfshjálparaðferð. - sbt Sjö íslenskar konur verðlaunaðar fyrir nýsköpun: Fékk silfurverðlaun fyrir gifstappaSJÁVARÚTVEGSMÁL Inge Halsten-sen, stjórnarformaður Samtaka norskra útvegsmanna, sendir Evrópusambandinu tóninn í frétt á vef norska ríkisútvarpsins og segir sambandið „ótraustan samningsaðila“. ESB vísaði þrjátíu norskum makrílveiðiskipum út af svæði undan Hjaltlandseyjum í fyrri viku, þar sem þau töldu sig stunda veiðar í trausti tvíhliða samkomulags ESB og Noregs. Hún telur að Norðmenn þurfi að grípa til þess að hindra aðgang ESB-skipa að norskum veiði- svæðum í Norðursjó og Barents- hafi. Norskir útvegsmenn telja að þeir muni verða af aflaverðmæti sem svarar til tuttugu milljarða íslenskra króna standi ákvörðun ESB í málinu óhögguð. - shá Fiskveiðideila Noregs og ESB: Vænir ESB um samningsbrot Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga sér um úthlutun hvíta stafsins. Upplýsingar og fróðleik um hvíta stafinn og umferli má finna á www.midstod.is DAGUR HVÍTA STAFSINS 15. október Hvíti stafurinn er bæði tákn og tæki. Stafurinn hjálpar notandanum að skynja umhverfið um leið og hann sýnir vegfarendum að þar er blindur eða sjónskertur á ferð. ÍS L E N S K A S IA .I S S JO 4 76 31 1 0/ 09 JARÐIR Félagið Heiðarlax hyggur á fiskirækt í Geithellnadal í Álfta- firði og hefur í því skyni fest kaup á öllum jörðum sem falar hafa reynst í dalnum. Svisslendingurinn Rudolf Lam- precht, eigandi Heiðarlax, er umsvifamikill í fiskeldi víða um heim. Hann hefur ræktað fiski- stofna í Heiðarvatni og í Vatnsá ofan við Vík í Mýrdal og hefur keypt fjölda jarða og jarðaparta þar og á nú mest allt svæðið. Hann virðist ætla sér það sama í Geit- hellnadal. Nokkrir landeigendur hafa þó gefið Lamprecht afsvar. Sérstakri yfirlýsingu frá Heið- arlaxi var þinglýst hjá sýslumann- inum á Eskifirði þegar félagið keypti jarðirnar Kambsel og Geit- hella II. Kom fram að Heiðarlax teldi sér skylt að gefa yfirlýsing- una þar sem eigandi félagsins væri svissneskur ríkisborgari. „Kaup á viðkomandi fasteign eru nauðsynlegur þáttur í áfram- haldandi starfsemi félagsins og mun fela í sér talsverða atvinnu- sköpun á svæðinu ásamt því að fyrirhugað er að sinna þjónustu í tengslum við veiðiréttindi er fram líða stundir,“ segir í yfirlýs- ingunni. Lamprecht hefur einmitt opnað fyrir veiðileyfasölu í Vatnsá eftir uppræktunarstarf. Bæði lax og silungur er í Geithellnaá. Fram til þessa hefur veiðin verið nýtt af jarðeigendum sjálfum. Einnig er arður af hreindýrum. Auk fyrrgreindra jarða í Geit- hellnadal hefur Lamprecht hefur þegar keypt jörðina Múla III, hálfa jörðina Múla II og jörðina Virk- ishólasel. Ekki hafa fengist upp- lýsingar um þær fjárhæðir sem Lamprecht greiddi fyrir jarðirn- ar í Geithellnadal. Þess má geta að málaferli urðu eftir að þáverandi landbúnaðarráðherra, Guðmund- ur Bjarnason, seldi ríkisjörðina Kambsel til þeirra Atla Árnason- ar og Helga Jenssonar skömmu áður en hann lét af af embætti á árinu 1998. Söluverðið var þá 750 þúsund krónur. Kambsel var seld án auglýsingar til þeirra Atla og Helga sem áttu fyrir Geithella II. Þeir sem kærðu söluna töpuðu málinu. „Almennt séð ætla ég ekki að fordæma menn fyrirfram þó að þeir séu að sölsa undir sig jarðir, og ef slík jarðakaup að einhverju leyti viðhalda starfsemi sem hefur verið þar eða setur í gang eitthvað sem fjölgar útsvarsgreiðendum og eykur tekjur sveitarfélags- ins þá myndi ég almennt að segja að menn myndu að því leytinu til fagna þessu heldur en hitt,“ segir Hafþór Guðmundsson, sveitar- stjóri Djúpavogshrepps. Lamprecht vill eiga allan Geithellnadal Rudolf Lamprecht frá Sviss hefur keypt fimm jarðir í Geithellnadal í Álftafirði. Hann á mikið land ofan við Vík í Mýrdal og stundar þar fiskirækt. Það vill hann einnig gera í Geithellnadal og selja veiðileyfi. RUDOLF LAMPRECHT FRÉTTABLAÐIÐ 16. APRÍL 2007 Fyrir tveimur og hálfu ári sagði Fréttablaðið frá umsvifum Rudolfs Lamprecht við Heiðar- vatn í Mýrdal. Svissneski auðmað- urinn Rudolf Lamprecht hefur á undanförnum árum keypt allar jarðir sem liggja að Heiðarvatni í Mýrdal og silungs- og laxveiðiánni Vatnsá sem rennur úr vatninu í Kerlingadalsá, þar sem hann hefur einnig tryggt sér land og veiðirétt að hluta. Fjárfesting Lamprechts nemur um 500 milljónum króna. Hann stendur fyrir umfangsmikl- um seiðasleppingum í ána og vatn- ið og hyggst hefja trjárækt í stór- um stíl í sumar. Skiptar skoðanir eru á umsvifum auðmannsins í sveitinni og stangveiðimenn sem ekki komast lengur til veiða á vatnasvæðinu eru sárreiðir. Rudolf Lamprecht á eitt stærsta fiskeldisfyrirtæki heims með starfsstöðvar víða um heim, meðal annars í Indónesíu og Hondúras. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins dreymir Lamprecht um að skapa umhverfisparadís á landi sínu. Hann verður í sumar með hóp af fólki við landgræðslu og trjárækt. Hann hefur einnig stað- ið fyrir rannsóknum í Heiðarvatni í samvinnu við Suðurlandsdeild Veiðimálastofnunar og hefur unnið með Landgræðslu Íslands. Lamprecht hefur ekki selt veiði- leyfi að neinu marki í Heiðarvatni og Vatnsá síðan hann hóf að kaupa land og hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort af því verður í framtíð- inni. Stangveiðifélag Keflavíkur hefur byggt upp aðstöðu við Heiðarvatn á undanförnum árum en hyggst nú flytja tvö veiðihús af landinu vegna kaupa Lamprechts. Gunnar J. Óskarsson er formaður félagsins. „Þarna kom fjölskyldu- fólk í hundraðavís á hverju ári til að njóta lífsins. Þannig var það í tvo áratugi en er nú liðin tíð. Hann gerði allt til að koma okkur í burtu og það var ekki staðið við neitt sem lofað hafði verið.“ Gunnar segir að Lamprecht hafi gengið hart fram í því að eignast landið og furðar sig á því að sveitarstjórn Mýrdalshrepps hafi látið landa- kaupin viðgangast. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, segir að skiptar skoðanir séu um jarðakaup Lamprechts. „Mönnum finnst ekki gott að torsóttara er orðið að kom- ast til að veiða í vatninu. Ég hef annars ekki gert neinar athuga- semdir við þetta meðan ekki eru vandamál með aðgengi almenn- ings að landinu. Veiðiréttur geng- ur kaupum og sölum og það á við þetta svæði sem önnur.“ Auðmaður eignast veiðiparadís við Vík Svissneskur auðmaður hefur fest kaup á öllum jörðum u mhverfis Heiðarvatn og Vatnsá í Mýrdal. Fjárfesting hans nemur nú þegar um hálfum milljarði. Skiptar skoðanir eru um umsvifin og veiðimenn eru sár reiðir vegna kaupanna. ALDRAÐIR Ekki er gert gert ráð fyrir neinum heimildum í fjár- lagafrumvarpi 2010 til dag- gjalda vegna fjölgunar hjúkrun- arrýma. Skýringin er sú að þótt 154 ný hjúkrunarrými verði tekin í notkun í Reykjavík og Kópavogi næsta vor mun rýmum ekki fjölga þegar allt er talið. „Þetta verður leyst með tilflutningi innan kerf- is og úreldingu annarra rýma,“ sagði Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður félags- og trygg- ingamálaráðherra. Þau rými sem hætt verður að nota eru ýmist tví- býlisherbergi eða herbergi sem standast ekki nútímakröfur að öðru leyti. Framkvæmdir eru langt komn- ar við byggingu hjúkrunarheimilis fyrir 44 aldraða við Boðaþing í Kópavogi og fyrir 110 aldr- aða við Suð- urlandsbraut í Reykjavík. Bæði verða tekin í notkun á fyrri hluta næsta árs. Hrafnista mun reka heim- ilið í Kópavogi en ekki er búið að bjóða út rekstur heimilisins við Suðurlandsbraut. Eins og Fréttablaðið sagði frá í gær er félags- og tryggingamála- ráðherra að undirbúa átak í bygg- ingu hjúkrunarheimila á árun- um 2010-2012. Af 361 rými sem þá á að byggja eru 160 viðbótar- rými en jafnframt verða um 200 rými tekin úr notkun, þar sem þau standast ekki þær kröfur sem nú eru gerðar. Anna Sigrún segir að gangi þetta eftir muni flestir sem nú eru á biðlistum fá rými. Eins muni það heyra sögunni til að aldraðir þurfi að flytjast milli byggðarlaga til að komast á hjúkrunarheimili eða búa við aðstæður sem ekki stand- ist nútímakröfur. - pg Engar fjárheimildir til rekstrar 154 nýrra hjúkrunarrýma í fjárlögum 2010: Tvíbýli úrelt í stað nýrra rýma ANNA SIGRÚN BALDURSDÓTTIR VIÐSKIPTI Engar eignir fundust í þrotabúi Iceland Energy Group upp í kröfur upp á rúmar 125 milljónir króna. Samþykktar for- gangskröfur námu rétt rúmum sjö milljónum króna. Iceland Energy Group var tekið til gjaldþrotaskipta með dóms- úrskurði í apríl, en skiptum var lokið annan þessa mánaðar. Fyrir- tækið hafði á árinu 2007 gert samstarfssamning við Serbneska lýðveldið um uppbyggingu vatns- aflsvirkjana, en fyrirtækið átti að sjá um sölu og dreifingu orkunn- ar. Á þeim tíma hafði fyrirtækið miklar fyrirætlanir um þátttöku í orkugeira Austur-Evrópu. - óká Iceland Energy Group: Ekkert fékkst upp í kröfur KONUR Í NÝSKÖPUN Guðrún Guðrún- ardóttir hugvitskona og Elínóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.