Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 2
2 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Guðmundur Jónsson,
fyrrverandi forstöðumaður Byrg-
isins, hefur verið ákærður fyrir
milljónafjárdrátt, þar á meðal af
tveimur söfnunarreikningum til
styrktar Byrginu. Þá hefur Guð-
mundur, ásamt Jóni Arnari Einars-
syni, fyrrverandi stjórnarmanni
í Byrginu, verið ákærður fyrir
meiri háttar brot gegn skattalög-
um og lögum um bókhald.
Guðmundi er gefið að sök að
hafa dregið sér ríflega 3,3 milljón-
ir króna þegar hann notaði kredit-
kort Eignarhaldsfélagsins Byrgis-
ins og greiddi persónuleg útgjöld í
209 skipti á árunum 2005 og 2006.
Þá er honum gefið að sök að hafa
á ofangreindum árum dregið sér
rúmar 1,6 milljónir frá eignar-
haldsfélaginu Byrginu og líknar-
félaginu Byrginu þegar hann lét
félögin greiða kreditkortareikn-
inga sína í 109 skipti.
Guðmundur
er einnig ákærð-
ur fyrir að hafa
dregið sér 96.500
krónur með tólf
millifærslum af
söfnunarreikn-
ingi aðstandenda
Hauks F reys
Ágústssonar til
styrktar Byrginu.
Einnig að hafa
dregið sér 4,3 milljónir af söfnun-
arreikningi sem Svavar Dalmann
safnaði í þágu Byrgisins líknarfé-
lags. Guðmundur bæði millifærði
og tók út af söfnunarreikningun-
um. Samtals nemur fjárdrátturinn
ríflega 9,3 milljónum króna.
Þá eru Guðmundur og Jón Arnar
ákærðir fyrir vantaldar launa-
greiðslur að upphæð 9,6 milljónir
króna og vangoldna staðgreiðslu
opinberra gjalda að upphæð 3,6
milljónir. Guðmundur er svo
ákærður fyrir að telja ekki fram á
skattskýrslu bifreiðahlunnindi sín
árin 2004 og 2005, að upphæð 1,5
milljónir og hafa með því komið
sér undan því að greiða tekjuskatt
og útsvar upp á tæpar 600 þúsund
krónur.
Jón Arnar er ákærður fyrir að
hafa komið sér undan greiðslu
tekjuskatts og útsvars að upphæð
1,4 milljónir með vantalningu á
skattaframtali sínu.
Þá eru báðir ákærðir fyrir
meiri háttar bókhaldsbrot í störf-
um sínum fyrir Byrgið með því að
varðveita ekki fylgiskjöl með full-
nægjandi hætti.
Guðmundur afplánar nú tveggja
og hálfs árs fangelsisdóm á Litla-
Hrauni. Hann var dæmdur fyrir
kynferðisbrot gegn skjólstæðing-
um sínum í Byrginu.
jss@frettabladid.is
GUÐMUNDUR
JÓNSSON
LITLA-HRAUN Saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hefur ákært Guðmund Jónsson, fyrrum forstöðumann í Byrg-
inu, fyrir stórfelldan fjárdrátt og meiri háttar brot á skattalögum og lögum um bókhald. Guðmundur afplánar dóm á Litla-Hrauni.
Milljónafjárdráttur
af söfnunarreikningi
Guðmundur Jónsson, fyrrum forstöðumaður í Byrginu, er ákærður fyrir að
hafa dregið sér milljónir frá Byrginu, meðal annars af söfnunarreikningum
sem stofnaðir voru til styrktar því. Fyrrum stjórnarmaður er einnig ákærður.
12
daga
geymslu
-
þol
Meiri þægindi og
aukið geymsluþol
Nú er MS rjóminn
í ½ l umbúðum
með tappa.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
–
0
4
8
7
HEILBRIGÐISMÁL Átján einstakling-
ar lágu á Landspítala síðdegis í
gær af völdum svínaflensunn-
ar. Þrír voru á gjörgæslu, hinir
sömu og legið hafa þar undan-
farna daga.
Guðrún Sigmundsdóttir, yfir-
læknir á sóttvarnasviði land-
læknisembættisins, sagði að einn
sjúklingur hefði verið útskrifaður
og sex nýir bæst við.
„Flensan er á hraðri uppleið á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir hún.
„Það er ekki hægt að segja til um
það nú hvenær hún muni ná toppi.
Þróunin hefur verið heldur hæg-
ari á landsbyggðinni en flensu-
tilfellum fjölgaði þó um og upp
úr síðustu helgi. Ég hef frétt af
einum einstaklingi sem lagður
var inn á spítala á Akureyri og
öðrum á sjúkrahúsinu á Egils-
stöðum.“
Hvað skólana varðar segir Guð-
rún að í sumum þeirra virðist
veikindin stinga sér niður og til-
fellum þá fjölga hratt, en annars
staðar sé heilsufar í lagi.
Guðrún segir vonir standa til
þess að bóluefnið sem kemur til
landsins dragi úr faraldrinum.
Þeir sem lagðir hafa verið inn á
spítala af völdum svínaflensunn-
ar eru á aldrinum eins árs til 73
ára og eru flestir með undirliggj-
andi áhættuþætti. - jss
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ Aflar og heldur
utan um upplýsingar um svínaflensuna.
Flensufaraldurinn enn á hraðri uppleið á höfuðborgarsvæðinu:
Átján á spítala vegna svínaflensu
STJÓRNMÁL Til álita kemur að fresta fyrirhuguðu
stjórnlagaþingi til ársins 2011. Fram til þessa hefur
ríkisstjórnin stefnt að því að halda slíkt þing á
næsta ári.
Stjórnlagaþingi er ætlað að vera ráðgefandi við
endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Stjórnlagaþing hefur verið eitt af höfuðmálum
ríkisstjórnarinnar frá því að hún tók við völdum 1.
febrúar. Fjallað var um það í verkefnaskrá minni-
hlutastjórnarinnar og aftur í samstarfsyfirlýsing-
unni eftir kosningarnar í apríl. Í henni segir að
kjósa eigi til þingsins í síðasta lagi samhliða sveitar-
stjórnarkosningunum 2010. Mælti Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra fyrir frumvarpi þar um í
júlí en það fékkst ekki rætt.
Í þingmálaskrá vetrarins segir að frumvarp um
stjórnlagaþing verði lagt fram en ekki er getið um
hvenær það verði haldið.
Ekki er vikið orði að stjórnlagaþingi í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs. Í frumvarpi sumarsins kom
fram að kostnaður vegna þinghaldsins gæti numið
á bilinu 362-442 milljónir króna. Var áætlað að það
stæði í 8-11 mánuði.
Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu
er nú til skoðunar hvort unnt sé að stytta starfstíma
þess, auk þess að fresta því til ársins 2011. - bþs
Ekki er gert ráð fyrir fjárveitingum til stjórnlagaþings í fjárlagafrumvarpi næsta árs:
Stjórnlagaþingið verði 2011
ODDVITARNIR Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNIR Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri í Hveragerði,
vill auka öryggiseftirlit í bænum
með því að „kann-
aðir verði mögu-
leikar á rafrænni
vöktun á inn-
keyrslum Hvera-
gerðisbæjar með
það fyrir augum
að auka öryggis-
kennd bæjarbúa
og fækka afbrot-
um í Hveragerði
og enn fremur að
markaður verði farvegur fyrir
öfluga nágrannagæslu í bæjarfé-
laginu“.
Bæjarráð fól Aldísi að leita til-
boða í eftirlitsmyndavélakerfi við
innkeyrslur bæjarins og ræða við
tryggingafélag bæjarins, Securit-
as og Öryggismiðstöðina varð-
andi aðkomu að nágrannagæslu í
bænum. - gar
Öryggismál í Hveragerði:
Aðkeyrsla að
bænum vöktuð
ALDÍS HAF-
STEINSDÓTTIR
STJÓRNMÁL Rætt verður um
„möguleg lán frá Norðmönn-
um óháð AGS“ utan dagskrár á
Alþingi í dag.
Málshefjandi er Höskuldur
Þórhallsson, Framsóknarflokki.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra verður til svara.
„Ég vil ræða þetta á málefna-
legum nótum og vonandi verður
um leið hægt að leiðrétta ýmsar
rangfærslur sem komið hafa
fram,“ segir Höskuldur.
Í dag hyggjast framsóknar-
menn jafnframt kynna betur þær
leiðir til lántöku sem þeir telja
færar en forsenda þeirra er, að
sögn Höskuldar, að fram komi
formleg beiðni þar um. - bþs
Noregslán utan dagskrár:
Vil ræða þetta
málefnalega
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt karlmann
í átján mánaða fangelsi fyrir
nauðgun, með því að hafa sam-
ræði við konu sem svaf ölvun-
arsvefni. Hann var jafnframt
dæmdur til að greiða henni sex
hundruð þúsund krónur í skaða-
bætur.
Konan og maðurinn þekktust.
Hún kvaðst hafa farið með honum
heim eftir dansleik í júlí á síðasta
ári, lagst upp í rúm og sofnað í
öllum fötum. Hún hefði vaknað
við að maðurinn hefði verið búinn
að færa sig úr fötunum og verið
farinn að hafa við sig samfarir.
Maðurinn neitaði í fyrstu að
hafa haft samræði við konuna
en sagði svo það hafa verið með
hennar samþykki.
Átján mánaða fangelsi:
Nauðgaði konu
í ölvunarsvefni
Guðmundur Freyr, ætlarðu að
stilla til friðar í heiminum?
„Ja, að minnsta kosti fá jarðarbúa til
að slá á létta strengi.“
Íslenska gítarstillingarforritið Tunerific er
nú selt í 134 löndum. Það varð til upp
úr meistaraverkefni Guðmundar Freys
Jónassonar sem rekur nú fyrirtækið
Hugvakann í samstarfi við leiðbeinanda
sinn Jóhann P. Malmquist.
EFNAHAGSMÁL Rússar höfnuðu því
að veita Íslendingum gjaldeyris-
lán í gær, þar sem mikill halli sé á
rússneska ríkisrekstrinum.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra
hitti aðstoðar-
utanríkisráð-
herra Rúss-
lands á aðalfundi
Alþjóðagjald eyr-
issjóðsins á dög-
unum og ámálg-
aði lánið við
hann, en óform-
legar viðræður
höfðu átt sér stað
síðan í haust. Rætt var um taka
allt að 500 milljóna Bandaríkja-
dali að láni.
Steingrímur sagði í samtali við
RÚV í gær að ákvörðun Rússa
hefði ekki komið á óvart. Engin
vonbrigði séu með ákvörðunina,
þar sem verið er að endurmeta
lánsþörf Íslendinga. - kóp
Rússar hafna aðstoð:
Ekkert lán frá
Rússunum
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VERSLUN Farþegar skemmtiferða-
skipsins Emerald Princess, sem
hafði dagsviðkomu í Reykjavík í
byrjun mánaðarins, keyptu vörur
fyrir um 30 milljónir króna.
Frá þessu er greint á vef Faxa-
flóahafna.
Um 3.000 farþegar voru um
borð. Versluðu um 1.250 þeirra
fyrir 4.000 krónur eða meira og
fengu því virðisaukaskatt endur-
greiddan, samkvæmt upplýsing-
um umsýslufyrirtækja.
Farþegarnir voru bandarískir
ellilífeyrisþegar. Fóru um 2.100
þeirra í skipulagðar skoðunar-
ferðir ferðaskrifstofa í Íslands-
dvölinni. - bþs
Skipsfarþegar í dagsdvöl:
Keyptu fyrir 30
milljónir króna
SPURNING DAGSINS