Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 10
 15. október 2009 FIMMTUDAGUR 668 kr.á mánuði Vefhysing_ Pantaðu núna á www.1984.is ISLENSK VEFHYSING = MEIRI HRADI >> MEIRA ÖRYGGI >> MUN ODYRARI Sími 546 1984 ::: info@1984.is með ánægju Iceland Express auglýsir eftir svæðisstjóra í Banda- ríkjunum. Svæðisstjóra er ætlað að sjá um markaðs- og sölumál félagsins í Bandaríkjunum og halda utan um samskipti og þjónustu við söluaðila Iceland Express þar. Svæðisstjóri þarf einnig að fylgjast vel með nýjum sölutækifærum og bregðast við þeim. Umsækjendur þurfa að búa í Bandaríkjunum eða vera tilbúnir að flytja þangað. Svæðisstjóri vinnur náið með tekjustýringu og markaðsdeild Iceland Express á Íslandi. Hæfniskröfur svæðisstjóra: • Þarf að tala reiprennandi ensku. • Háskólamenntun, helst í viðskiptum eða ferðamálum. • Góð þekking á íslenskri ferðaþjónustu. • Reynsla af vinnu á Bandaríkjamarkaði. • Mikil þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Umsóknir sendist í tölvupósti á job@icelandexpress.is. fyrir 22. október. Nánari upplýsingar er að finna á www.icelandexpress.is/jobs. F í t o n / S Í A F I 0 3 0 3 9 1 Svæðisstjóri í Bandaríkjunum * M .v . 1 5 0 þ ús un d kr . i nn le nd a ve rs lu n á m án uð i, þ. a. 1 /3 h já s am st ar fs að ilu m . / S já n án ar á w w w .a uk ak ro nu r.i s. 1 kaffivél á ári fyrir Aukakrónur Þú getur keypt þér 1 Solis espresso kaffivél hjá Ormsson fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða fengið þér eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. * AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000 Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is N BI h f. (L an ds ba nk in n) , k t. 47 10 0 8 -2 0 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 3 2 2 STJÓRNMÁL Þingflokkur sjálfstæð- ismanna hefur lagt fram þings- ályktunartillögu um nauðsynleg- ar bráðaaðgerðir vegna ástands efnahagsmála. Lagt er til að hagrætt verði í rík- isrekstrinum með fimm prósent sparnaði í heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfinu og tíu pró- senta sparnaði á öðrum sviðum. Ekki verði skorið niður flatt held- ur forgangsraðað á þann hátt að mikilvæg grundvallarþjónusta skerðist sem minnst. Miðað við fjárlög þessa árs myndi þetta leiða til sparnaðar í ríkisútgjöld- um upp á 35-40 milljarða króna. Ekki verði skorin niður útgjöld til framkvæmda. Skattahækkunum er hafnað enda hamli þær fjárfestingu og ráðningu nýrra starfsmanna hjá einkafyrirtækjum. Ljóst megi vera að það fólk sem missir vinn- una hjá ríkinu vegna niðurskurðar og hagræðingar þurfi að fá störf hjá einkafyrirtækjum. Skattur á inngreiðslur Í stað skattahækkana leggja sjálf- stæðismenn til að tekjur ríkissjóðs verði auknar með skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði í stað útgreiðslna. Við það gætu tekjur aukist um 35-40 milljarða. Einnig sé athugandi að afnema frestun á skattlagningu séreignarsparnað- ar sem myndi skila um 115 millj- arða eingreiðslu í ríkissjóð á næsta ári og um 13 milljörðum á ári eftir það. Nýlegum ákvörðunum ríkis- stjórnarinnar varðandi Helgu- vík og Bakka og áform um orku- umhverfis- og auðlindaskatt er mótmælt enda valdi þær atvinnu- lífinu stórskaða. Skattgrunnar stækki verði horfið frá þeim ráð- stöfunum öllum. Lagt er til að skattaafsláttur til hlutabréfakaupa verði endurvak- inn, veiðiheimildir auknar og sér- stökum strandveiðum hætt. Lán verði lánalínur Í tillögunum segir að leita verði allra leiða til að afnema gjaldeyris- höftin. Við það muni tiltrú á krón- una styrkjast sem aftur dregur úr hættu á að innlendir aðilar skipti sparnaði sínum í erlenda mynt og liðki fyrir erlendri fjárfestingu. Breyta ber erlendum krónueign- um í langtímaskuldabréf en við það minnki þrýstingurinn á krón- una og veiti svigrúm til vaxta- lækkana. Þá er lagt til að útflæði gjaldeyris verði stöðvað með upp- boðum fremur en höftum. Sjálfstæðismenn segja að í fram- haldinu minnki þörfin fyrir gjald- eyrisvarasjóð og um leið þörfin fyrir lán frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum (AGS) og Norðurlöndun- um. „Sennilega nægja lánin frá Norðurlöndunum, Færeyjum og Póllandi til að mynda gjaldeyr- isvarasjóð eftir að þrýstingur á gengið hefur verið minnkaður. Öllu máli skiptir að sýna á trúverðugan hátt fram á að hægt verði að mæta stórum afborgunum af erlendum lánum ríkisins árið 2011. Til að halda vaxtakostnaði í lágmarki er hér lagt til að lán frá Norðurlönd- unum verði á formi lánalína. Jafn- framt verði lánin frá AGS ekki tekin nema þau bjóðist sem lána- línur,“ segir í greinargerð tillög- unnar. Með því að breyta lánum í lána- línur minnkar vaxtakostnaður um marga milljarða á ári. Í grein- argerðinni segir allt benda til að hreinn vaxtakostnaður vegna lána frá AGS og Norðurlöndunum á næsta ári verði 12,5 milljarðar. „Ef hins vegar væri hægt að tak- marka þörfina eftir lánum við lán Norðurlandanna og að þau væru á formi lánalína með 0,5 prósenta álagi mætti lækka vaxtakostnað- inn í um 1,6 milljarða á ári.“ Heimilin Til að fjalla um skuldavanda heim- ilanna leggja sjálfstæðismenn til að stjórnvöld kalli til ráðagerða fulltrúa allra þingflokka og helstu hagsmunaaðila til að ná þverpólit- ískri sátt um aðgerðir. Markmiðið væri að finna viðunandi lausn sem kæmi til framkvæmda eigi síðar en um næstu áramót. Þá er lagt til að stimpilgjöld verði afnumin til að auðvelda fólki að njóta bestu kjara við endurfjár- mögnun lána. Um skuldavanda fyrirtækja segja sjálfstæðismenn að hrað- virkast, ódýrast og skynsamleg- ast sé að stjórnvöld leggi línur um lausn sem bankarnir útfæri. bjorn@frettabladid.is Telja AGS-lán óþarft Sjálfstæðisflokkurinn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum sem skila ríkissjóði bata upp á um 123 milljarða króna. Draga á úr ríkisútgjöldum, breyta skattlagn- ingu lífeyrisgreiðslna, liðka fyrir fjárfestingum og lækka vaxtakostnað. FRAMKVÆMT Sjálfstæðismenn telja efnahagstillögur sínar vel fallnar til þess að koma hjólum atvinnulífsins á snúning á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Illugi Gunnarsson, formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins, kveðst bjartsýnn á að tillögur flokksins nái eyrum stjórn- arliða á þingi. „Þetta er þannig verkefni að stjórn- málamenn verða að horfa yfir flokkslínur.“ Hann segir Ísland eiga góð tækifæri til að vinna sig hratt út úr vandanum en þá verði að grípa til réttra aðgerða. Niðurskurðaraðgerðir eru ekki útfærðar í tillög- unum. Illugi segir það ekki á færi stjórnarandstöðu að skila frá sér frágengnu fjárlagafrumvarpi en mikilvægt sé að ekki verði skorið niður flatt heldur með markvissum og skynsamlegum hætti. Skoða verði hvert ráðuneyti og hverja stofnun fyrir sig. Um lánamál segir Illugi dæmin sanna að hættulegt sé að ráðast í risavaxnar lántökur til að halda uppi gengi gjald- miðils. Affarasælla sé að fá aðgang að lánalínum. Við það lækki vaxtabyrði og ásamt með öðrum aðgerðum skapist skilyrði til vaxtalækkana. Illugi segir gengi gjaldmiðla ráðast af trausti á efnahag þjóða og með nýtingu auðlinda, mannauðs og öflugri framleiðslu skapist slíkt traust. Ráð- ast þurfi í þær framkvæmdir sem þegar séu á teikniborðinu og hverfa frá áformum um skattahækkanir á atvinnulífið. MIKILVÆGT AÐ HORFA YFIR FLOKKSLÍNUR ILLUGI GUNNARSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.