Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 26

Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 26
26 15. október 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Um miðja 19. öld voru Íslending-ar 60.000 að tölu. Aðeins rösk- lega helmingur barna náði fimm ára aldri, hin dóu. Ísland var þá á þennan kvarða eins og fátækustu lönd Afríku eru nú. Mannfjöld- inn náði 70.000 árið 1870 og hafði þá aðeins ríflega tvöfaldazt frá 930, þegar landið þótti fullnumið. 1870 hófust skipulegar vesturferð- ir Íslendinga til Bandaríkjanna og Kanada. Áður höfðu nokkrir Íslendingar farið til Júta í Banda- ríkjunum og til Brasilíu. Vestur- ferðirnar drógu úr mannfjölg- un, og fólkinu fækkaði sum árin. Mannfjöldinn 1890 var enn 70.000. Tveggja áratuga fólksfjölgun hafði farið forgörðum. Amma mín var þá á fermingaraldri. Alls fóru um 15.000 manns vestur um haf í leit að betra lífi 1870-1914, röskur fimmtungur allra Íslendinga 1870, og er þá frá talið fólkið, sem sneri aftur heim. Til samanburðar flutt- ist um fjórðungur Svía vestur um haf, ein milljón af fjórum. Þetta voru erfið ár af völdum eldgosa, hallæris og þrúgandi fátæktar. Vesturferðirnar vöktu heitar ástríður og deilur. Ýmsum þeirra, sem eftir sátu, þóttu fólks- flutningarnir draga þrótt úr land- inu. En Íslendingabyggðirnar vest- an hafs efldu og stækkuðu Ísland að ýmsu leyti. Íslenzk menning skaut djúpum rótum einkum í Kanada. Vikublaðið Heimskringla var stofnað í Winnipeg 1886 og Lögberg 1888. Þeim var sleg- ið saman 1959. Lögberg-Heims- kringla kemur enn út, hálfsmán- aðarlega, á ensku, elzt íslenzkra blaða. Líkneski Einars Jónssonar af Jóni Sigurðssyni forseta stend- ur við þinghúsið í Winnipeg líkt og á Austurvelli. Vestur-Íslendingar skipta nú hundruðum þúsunda. Orðasmiður Frægastur þeirra allra var bóndinn og skáldið Stephan G. Stephansson. Hann var um tvítugt, þegar hann fluttist með bláfátækri fjölskyldu sinni úr Bárðardal fyrst til Bandaríkjanna 1873 og síðan til Kanada 1889, þar sem hann reisti sér býli við rætur Klettafjalla og bjó til æviloka 1927. Hann stritaði á daginn og orti á kvöldin og hafði mynd af Jóni forseta yfir skrif- borði sínu. Húsið hans og Helgu konu hans nálægt bænum Marker- ville í Albertu er nú safn og opið almenningi á sumrin. Kvæði Stephans G. eru mikil að vöxtum og skipa honum í sveit með hinum tveim höfuðskáld- um Íslands á fyrstu áratugum 20. aldar, séra Matthíasi Jochums- syni og Einari Benediktssyni. Stephan G. orti öðrum þræði til að bæta og fegra heiminn af svip- aðri ástríðu og Einar Benedikts- son. Hann var jafnaðarmaður líkt og Einar og Þorsteinn Erlingsson, svo sem kvæði þeirra bera með sér. Hann var lýðræðissinni og bjó til orðið lýðræði. Hann vildi bæði virkja fossa eins og Einar og vernda þá eins og Þorsteinn, taldi hvort tveggja kleift í senn, væri rétt að farið. Hann var hlynntur frjálsum viðskiptum líkt og Jón forseti. Hann lagði jafna rækt við hagkvæmni og réttlæti, svo sem hann lýsir í drögum til ævisögu sinnar 1922 líkt og nútímamað- ur haldi á penna: „„Lýðræði“, sem er hreint og beint, hefir þann kost yfir annað fyrirkomulag, að það er eins konar alþýðuskóli mannanna í að búa saman sem sanngjarnast og hagfelldast. Gerir auðvitað glappa- skot, og þau kannske grimmileg, en getur ekki slengt skuldinni af sér á „æðri völd“. Verður sjálft að duga eða drepast á eigin ábyrgð.“ Hann skrifar vini sínum Jóni Jónssyni frá Sleðbrjót 1915 um íslenzk stjórnmál: „Þessi heimsku- leynd með það, sem hvern mann í landinu varðar og enginn hefir því einkarétt til að geyma, er heims- siður, en stjórnarbölvun og leið- ir frá lýðræði lengra en nokkuð annað, þar sem þjóðræði á að heita í orði kveðnu. Mig furðar, ef sæmi- legir menn, sem með lands síns erindi fara, sjá þetta ekki, því þögn um þjóðvandamál er enginn dreng- skapur.“ Að elska lönd Stephan G. Stephansson unni báðum ættarlöndum sín, föð- urlandinu og fósturlandinu, og mærði þau bæði í kvæðum sínum og ræðum. Hann stóðst erf- iða áskorun. Ást hans á Íslandi byrgði honum ekki sýn á kosti nýrra heimkynna. Vaxandi fjöldi nútímafólks stendur frammi fyrir áþekkri áskorun, þar er það eyðir hluta ævinnar fjarri föðurlandinu, ýmist af fúsum, glöðum og frjáls- um vilja eða illri nauðsyn, svo sem nú blasir við mörgum Íslendingum í kreppunni. Mannfjöldi Íslands minnkaði lítils háttar 2009 í fyrsta skipti frá 1889. Þeir, sem hyggjast nú leggja nýtt land undir fót, mega gjarnan hugleiða lífsskoðun Step- hans G. Stephanssonar. Nýleg ævi- saga hans eftir Viðar Hreinsson bókmenntafræðing er til í tveim bindum, Landneminn mikli (2002) og Andvökuskáld (2003). Áður hafði Sigurður Nordal prófessor skrifað bókarlangan formála að úrvali úr kvæðasafni Stephans G. Andvökum 1939. Föðurlönd og fósturlönd Í DAG | Fólksflutningar fyrr og nú ÞORVALDUR GYLFASON UMRÆÐAN Magnús Orri Schram skrifar um heil- brigðismál Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stefna að byggingu nýrra hjúkrunarheimila með 361 rými á árunum 2010 til 2012. Verkefnið kemur á góðum tíma fyrir byggingariðnað á krepputíma og hefur í för með sér verulega breytingu á aðstæðum aldraðra. Á næstu vikum verða lögð fram laga- frumvörp sem annars vegar heimila Íbúðalánasjóði að lána til þessara framkvæmda og hins vegar fram- kvæmdasjóði aldraðra að taka þátt í rekstrar- og leigukostnaði heimilanna þangað til ríkið getur tekið á sig þær skuldbindingar árið 2014. Þannig verði ráð- ist í framkvæmdir, án aukinna skuldbindinga fyrir stjórnvöld á viðkvæmasta tímanum fyrir ríkissjóð, þ.e. til 2014. Ráðist verður í byggingu hjúkrunarheimila á eft- irtöldum stöðum: Akureyri, Borgarbyggð, Fljótsdals- héraði, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjanes- bæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Alls verða byggð 361 rými, 200 þeirra munu leysa af hólmi tvíbýlis- rými, svo að hrein fjölgun er upp á 161 rými. Næstu skref félags- og tryggingamálaráð- herra eru að leita samninga við sveitarfélög með það að markmiði að framkvæmdir við nýbyggingar geti hafist sem fyrst. Hér er á ferð enn eitt merkið um jákvæða þróun mála hér á landi síðustu misserin. Samningar um tilhögun bankastarfsemi, betri endurheimtur úr þrotabúi Landsbank- ans, minni vöxtur atvinnuleysis en áður var spáð og fjölmörg áhugaverð verkefni einka- aðila, sýnir að margt er að falla með okkur um þessar mundir. Auk þess er uppbygg- ing háskólasjúkrahúss og Búðarhálsvirkjun í góðum farvegi hjá lífeyrissjóðunum og stjórnkerfi. Þessi tillaga ráðherra um ellefu milljarða innspýtingu í byggingargeirann, sem léttir á atvinnuleysi meðal iðnaðarmanna og fjölgar hjúkrunarrýmum umtals- vert, er gott skref í rétta átt. Það eru erfiðir tímar og vissulega mætti margt betur fara á ýmsum sviðum. Að því leyti eru stjórnvöld ekki stikkfrí né hafin yfir gagnrýni. En látum hins vegar ekki bölmóðinn ná tökum á umræðunni, heldur tökumst á við verkefn- in með jákvæðni að vopni. Þannig náum við miklu lengra. Höfundur er alþingismaður. 11 milljarðar í ný hjúkrunarheimili MAGNÚS ORRI SCHRAM Rúðuþurrkur NeoForm. Ný þurrkublöð frá Trico NÝ ÚTGÁFA af rúðuþurrkum frá E nda þótt ár sé liðið fer því víðs fjarri að áhrifin af til- hæfulausri árás Bretastjórnar á Íslendinga séu farin að minnka. Því fer líka fjarri að upplýst hafi verið til fulls hverjar ástæður Bretastjórn notaði sem yfirskin til þessara aðgerða. Síst af öllu kemur til mála að Íslend- ingar gleymi þessu tilræði. Þvert á móti eigum við að hafa þetta fólskubragð vel hugfast. Árás Bretastjórnar var í raun fjórföld. Í fyrsta lagi var ráðist á Landsbanka Íslands og útibú hans. Í öðru lagi var ráðist á aðra íslenska banka. Í þriðja lagi var lagt til atlögu við breska banka og fjármálafyrirtæki í eigu íslenskra fyrirtækja, hvort sem þau tengdust Landsbankanum eða öðrum. Í fjórða lagi réðst Breta- stjórn einnig á íslenska fjármálaráðuneytið og þar með beinlínis á Lýðveldið Ísland. Árásin á Lýðveldið Ísland og íslensku þjóðina er sérstakur þáttur þessa máls og nær langt út yfir allt það sem rakið verður til Landsbankans eða gremju Bretastjórnar vegna Icesave. Hafi Bretastjórn með þessu tiltæki ætlað að veita eigin fjármálaeftir- liti tímabæra aðvörun, verður að segja að ofurdramb og fanta- skapur breskra ráðamanna er með ólíkindum. Sú ákvörðun Bretastjórnar að notast við lög um varnir gegn hryðjuverkum er annar ósóminn í þessu skammarlega máli. Hafi Bretastjórn með þessu ráðslagi ætlað að auka vinsældir sínar heima fyrir, verður að segja að slíkt er aumkunarvert. Fyrir þetta er verðugt að breska forsætisráðherranum verði reist níðstöng. Enn er engan veginn upplýst um áhrifin sem þetta fjandskapar- bragð bresku stjórnarinnar hafði á hrun íslenska fjármálakerfis- ins. Margt bendir til þess að árásin hafi beinlínis haft úrslitaáhrif á það að breyta erfiðleikum og hruni fjármálafyrirtækja í alls- herjarhrun í íslensku fjármálakerfi með skelfilegum afleiðingum fyrir lífskjör almennings hérlendis. Þeir sem gera lítið úr áhrif- um árásarinnar telja að minnsta kosti ljóst að hún hafi komið á versta tíma og magnað og margfaldað þau vandræði sem við var að fást í fyrrahaust. Ekki hefur heldur verið upplýst hver voru tildrög eða ástæð- ur, uppdiktaðar og aðrar, fyrir árásinni. Mjög mikilvægt er að nákvæm rannsókn verði gerð á þessu. Þjóðin á kröfu á því að íslensk stjórnvöld leggi þunga áherslu á að efna til slíkrar rann- sóknar og að láta birta niðurstöður hennar opinberlega. Litlu skiptir að slík rannsókn kunni að leiða í ljós óþægilegar upplýs- ingar um framkomu eða athafnir íslenskra manna. Íslendingar vilja ekki fara fram með rökleysur eða innihaldslausar ásakanir. Þeim mun mikilvægara er að greina frá öllum staðreyndum. En Íslendingar mega ekki beina réttlátri reiði sinni gegn bresk- um almenningi eða þeim sem lagt höfðu fé til vörslu í íslensku bönkunum. Jafnvel þótt þetta fólk hafi hlaupið fram í blindri græðgi eftir gylliboðum bankanna verður það ekki sakað um tilræði ríkisstjórnarinnar í Lundúnum. En þáttur breska forsæt- isráðherrans og fjármálaráðherrans á ekki að gleymast á Íslandi. Þeir eiga áfram að vera alræmdir og fordæmdir sem hryðju- verkamenn. Ár liðið frá fjandskaparbragði: Árás Bretastjórnar JÓN SIGURÐSSON SKRIFAR Kostur í Kópavogi Nú hillir undir opnun lágvöruverðs- verslunar Jóns Geralds Sullenberger á Dalvegi í Kópavogi. Enn hefur nafn búðarinnar ekki verið gefið upp. Framan af stefndi í að verslunin myndi heita Smartkaup en frá því var horfið. Fréttablaðið hefur hins vegar heyrt því fleygt að búðin komi til með að heita Kostur. Það kemur væntanlega í ljós áður en langt um líður. Staðladagurinn Alþjóðlegi staðladagurinn var í gær. Fyrir þá sem ekki vita er á Íslandi starfrækt sérstakt Staðlaráð. Á heima- síðu þess, stadlar.is, má meðal ann- ars lesa um helstu hlutverk Staðla- ráðs. Þau eru meðal annars: „Að aðhæfa og staðfesta þá staðla sem skylt er vegna aðildar Staðlaráðs að erlendum staðlasamtökum. Að greiða fyrir því að íslenskum stöðlum verði beitt í opinberri stjórnsýslu og hjá einkaaðil- um. Og að starfrækja miðstöð stöðlunarstarfs á Íslandi sem þjónustar stofnanir, fyrirtæki, einstaklinga og samtök sem vilja nýta sér staðla.“ Þar höfum við það. Ættjarðarástin hverfur ekki Peter Dyrberg, formaður Evrópurétt- arstofnunar Háskólans í Reykjavík, bendir á að Íslendingum myndi halda áfram að líða eins og Íslend- ingum þótt Ísland gengi í Evrópu- sambandið. Það ætti að róa þá Íslendinga sem óttast að hætta að líða eins og Íslendingum gangi Ísland í Evrópusambandið. Öðru máli gegnir um þá sem líður ekkert sérstaklega vel með að líða eins og Íslendingum og vonuðust til að hætta því ef Ísland gengi í Evrópu- sambandið. Þeir sitja eftir með sárt ennið. bergsteinn@ frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.