Fréttablaðið - 15.10.2009, Page 36
15. október 2009 FIMMTUDAGUR4
Alþjóðleg súkkulaðisýning hófst í
París í gær og stendur yfir til 18.
október. Þar koma saman yfir
hundrað súkkulaðigerðarmenn frá
öllum heimshornum og fjögur
hundruð aðrir sýnendur.
Á sýningunni verður ýmislegt
í boði á borð við súkku-
laðivinnustofu
barna, fyrir-
lestra og ekki
síst súkkulaði-
tískusýningar
eins og þá sem
hér sést í mynd-
um. Tískusýn-
ingin markaði
upphaf súkku-
laðihátíðarinnar
og var auk þess
haldin til styrktar
frönsku samtökunum
„La voix de l’enfant“ sem
miðar að því að vernda börn.
Leikkonan Carole Brana tók sig vel út
í indíánabúningi skreyttum súkkulaði-
molum.
Leikkonan Anne Richard var æði skrautleg í hvítum kjól með
súkkulaðiblómum.
Tveir súkkulaðisætir gæjar leiddu frönsku gamanleikkonuna
Julie Ferrier inn á sviðið. NORDICPHOTOS/AFP
Frakkar lifa í
súkkulaðidraumi
Um fimm hundruð sýnendur taka þátt í árlegri súkkulaðihátíð sem
fram fer nú í París.
Fyrirsætan
Laetitia Rey
tók sig vel út
með súkkulaði-
geislabaug.
Permanent á sér langa sögu. Talið er
að fyrsta greiðslan hafi verið gerð árið
1906. Þá þurftu konur að sitja í allt
að sex tíma í stólnum með fjöldann
allan af krullujárnum í hausnum. Hvert
járn gat vegið allt upp í kíló sem gerði
reynsluna þeim mun óþægilegri.
Heimild: Netið
Lindsay Lohan var ráðin listrænn ráðgjafi lúxus-
tískuhússins Ungaro í september síðastliðnum
en mörg tískuhús hafa að undanförnu ráðið til sín
frægt fólk til að gefa hugmyndir og ráð. Ráðning
Lohan hefur þó ekki borið tilætlaðan árangur og
féll hin nýja lína Ungaro alls ekki í kramið hjá þeim
sem lögðu leið sína á tískuvikuna í París.
Sterkir litir einkenndu línuna og þótti hún í
það heila hallærisleg. Þegar Lohan gekk út á
sýningarpallinn að sýningunni lokinni voru
augu hennar grátbólgin og talaði Los Angeles
Times um „skammargöngu“.
Tískuhús hafa í vaxandi mæli ráðið til sín
stjörnur til að selja vörur sínar í kreppunni.
Mörg hver hafa náð góðum árangri með stjörnur
á borð við Madonnu og Kate Moss í broddi fylking-
ar, en Lohan virðist ekki hafa náð að fóta sig í hlut-
verkinu.
Tískuspekúlantar hafa í ljósi þess bent á að
varasamt geti verið að treysta um of á ráð stjarn-
anna enda séu þær ekki fagmenn. Sérstaklega
megi ekki falla í þá gryfju á meðan kreppan
gengur yfir því það geti kastað rýrð á tískuiðn-
aðinn. - ve
Lohan stígur
feilspor
Tískumeð-
vitund
Lindsay
Lohan
hefur ef til
vill verið
ofmetin.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sérverslun með
FÁKAFENI 9
(við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18
& laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
GLÆSILEGAR
HAUSTYFIRHAFNIR
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
System kr. 33.900,-
Flex Max kr. 27.900,-
Flex kr. 22.900,-
FLOTT
Í VETUR...