Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 41

Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 41
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2009 sófar ● fréttablaðið ● Íslendingar sækjast í aukn- um mæli eftir því að kaupa þægilega sófa, að sögn Bjargar Guðmundsdóttur, eiganda verslunarinnar Ego Dekor. Tauáklæði eru afar vinsæl. „Sófar með ofnu áklæði hafa verið að sækja í sig veðrið að undan- förnu og fólk virðist óhræddara en áður við að kaupa sófa með tau- áklæði. Microfiber-efni sem voru vinsæl hérna áður fyrr eru frekar á undanhaldi, en ýmiss konar ofin efni mjög vinsæl,“ segir Björg. „Úr mörgum litum er að velja en við pöntum þó mest í svörtu, gráu og jarðarlitunum. Íslendingar eru bara ekkert rosalega litaglöð þjóð og virðast helst vera gefnir fyrir svart, grátt og jafnvel út í brúnt enda passar það við velflest.“ Nýju efnin þarf að þurrhreinsa og þá er venjulega hægt að taka áklæðið af öllum bak- og setpúð- um að sögn Bjargar. „Góð regla er að nota textílvörn, úða sem varn- ar því að blettir festist í og við erum einmitt að selja textílvörn og hreinsiefni fyrir sófana hérna í versluninni okkar.“ Þá segir Björg leðursófa ávallt eftirsótta. „Þeir standa líka alltaf fyrir sínu, eru flottir og auðveldir í þrifum. Við erum bæði með klass- íska og nýtískulega leðursófa og í leðrinu fer mest af svörtu, en brún- ir litir eru líka alltaf vinsælir. Hvers konar gerðir af sófum falla best í kramið? „Tungusófar, bæði í áklæði og leðri, hafa verið mjög vinsælir síðustu ár og ekkert lát virðist ætla að verða á,“ segir Björg. „Einnig eru margir tautungusóf- arnir með færanlegri tungu og það hefur heldur betur slegið í gegn; sem og sófar með mörgum bakpúð- um í staðinn fyrir hefðbundna bak- púða, það gefur sófunum ákveðna mýkt og þægindi.“ Björg segir að svo virðist sem fólk sæki í aukn- um mæli eftir þægilegum sófum fyrir framan sjónvarpið sem er bæði hægt að liggja í og sitja. „Þar kemur fólk ekki að tómum kofun- um í Ego Dekor,“ bætir hún svo við. „Síðan erum við til dæmis með mjög gott úrval af munstruðum púðum í öllum mögulegum litum sem passa vel í sófana, íslenska hönnun sem er aðeins fáanleg hjá okkur.“ Þá bendir Björg á að viðskipta- vinir geti alltaf leitað til starfsfólks verslunarinnar með fyrirspurnir, það sé hafsjór af fróðleik sem geti leiðbeint við val og kaup á sófum og öðrum innanhússmunum. Tauið heitt en leðrið sígilt Björg segir leðursófa alltaf standa fyrir sínu, en þeir fást í góðu úrvali í búðinni. Danskir húsgagnahönnuðir hönn- uðu nokkra af þekktustu sófum heims í kringum miðja 20. öld- ina og komu danskri hönnun á heimskortið. Hér eru nokkrir af þeim frægustu. - jma Þessir dönsku klassísku Sófi þessi er hluti af sófaseríu Arne Jacobsen sem ber heitið 3300 en þessi til- tekni sófi kallast „model 3302“. Sófann hannaði Arne árið 1956 en Fritz Hansen hefur framleitt sófann eins og fleiri vörur Arne Jacobsen. Poeten kallast einn fallegasti sófi Finn Juhl frá árinu 1941. Sófann teiknaði Juhl upphaflega fyrir sjálfan sig. Børge Mog- ensen var afkastamikill hús- gagnahönnuður og margir sófa hans eru þekktir í dag. Spoke Back-sofa er einna þekktastur frá 1945. Annar ekki síður þekktur sófi úr smiðju Børge Mogensen kallast einfaldlega 2213, leðursófi, sem Mogensen hannaði fyrir eigið heimili árið 1962. Arne Jacobsen hann- aði svana-sófann upphaflega fyrir Royal Hotel í Kaupmannahöfn árið 1958. Sófann var að finna í svítum hótelsins og setustofum. Nú er hægt að fá hann í nokkrum útgáfum. Leðurtungusófi Stærðin: 285X165 Verð: 289.000,- Tungusófi með tauáklæði og færanlegri tungu. Stærð: 267cmX165cm Verð: 198.000,- Sicily Tungusófi með tauáklæði og færanlegri tungu. Einnig fylgja honum armborð úr stáli. Stærð: 320X165 Þessi sófi er núna á tilboði hjá okkur. Verð: 199.750,- Fatcat Romeo

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.