Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 43
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2009 sófar ● fréttablaðið ● Verslunin ILVA á Korputorgi kappkostar að hafa nýjungar á boðstólum og býður meðal annars viðskiptavinum að sníða sína eigin sófa. Tungu- sófarnir njóta mikilla vinsælda. „Rúmgóðir og notalegir sófar eru einna vinsælastir hjá okkur. Það virðast allir vera æstir í að geta kúrt uppi í sófa, helst með allri fjölskyldunni, og haft það nota- legt,“ segir Carolyn Linda Jeans, svæðisstjóri sófa-, svefnherberg- is- og borðstofudeildar hjá hús- gagna- og gjafavöruversluninni ILVA á Korputorgi. Að sögn Carolyn njóta sófar frá vörumerkinu Kingston einna mestra vinsælda í versluninni. „Þessir sófar eru mjög þægilegir og einnig bjóðum við upp á hæg- indastóla frá sama merki. Hinir svonefndu tungusófar eru afar vinsælir og hafa selst mjög vel á þessu eina ári sem verslunin hefur verið starfandi. Tungusófarnir seljast líka eins og heitar lummur um Norðurlöndin öll.“ Carolyn segir leðursófa einnig njóta mikilla vinsælda. „En þá erum við komin út í dýrari gerð- ir. Við kappkostum raunar að hafa margar tegundir af sófum á boð- stólum. Við leggjum mikið upp úr skemmtilegri hönnun, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ ILVA var opnuð á Korputorgi hinn 4. október 2008. Auk sófa í flestum stærðum og gerðum býður verslunin upp á mikið úrval annarra húsgagna og gjafavöru á verði sem kemur skemmtilega á óvart. Í vefverslun ILVA býðst við- skiptavinum að versla allan sólar- hringinn og fá svo vöruna senda heim, hvort sem þeir eru á höfuð- borgarsvæðinu eða landsbyggð- inni. Útstillingarhönnuður ILVA veit- ir ókeypis ráðgjöf við val á hús- gögnum og húsbúnaði. Hann getur einnig komið heim til viðskipta- vina, sé þess óskað. ILVA leggur einnig mikið upp úr nýjungum. Liður í því er að bjóða viðskiptavinum að sníða sína eigin sófa. „Við erum með um þrjú hundruð mismunandi efni á valda sófa, leður og tauáklæði, og einn- ig gott úrval af fótum. Þessi leið er kjörin fyrir þá sem vilja vanda valið og sníða sófa eftir eigin höfði,“ segir Carolyn. Rúmgóðir og notalegir sófar eru vinsælastir Carolyn Linda Jeans, svæðisstjóri sófadeildar ILVA, segir tungusófana svonefndu hafa notið mestra vinsælda á því eina ári sem verslunin hefur starfað á Korputorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Dívan er hvílubekkur eða legu- bekkur með upphækkuðu höfða- lagi sem á rætur að rekja til hins forna Tyrkjaveldis. Heitið er til- komið vegna þess að í Austurlönd- um var þessi legubekkur algeng- ur í herbergjum með hægindi í dóm sölum sem kölluðust dívan á persnesku. Dívan varð síðan vinsæll sem hálfgerður sófi í Englandi upp úr 18. öld og sem slíkur náði hann út- breiddum vinsældum um Evrópu fram eftir öldinni. Sérstaklega varð dívaninn síðar eftirsóttur í Evrópu um miðja 19. öld. Hann varð þá gjarnan stofu- stáss í glæsiherbergjum kvenna og eins algengur á kaffihúsum þess tíma. Á rætur að rekja til Tyrkjaveldis til forna Le Divan Rouge kallast þetta málverk, en þessi tegund af legubekk hefur verið vin- sælt viðfangsefni meðal málara. ● HAYON HANNAR Þessi hægindastóll er úr smiðju spænska hönnuðarins Jamie Hayon. Hann var á sínum tíma ráðinn til að innrétta á nýjan leik verslunarhúsnæði Camp- er Together í Barcelona til að gera það enn glæsilegra. Í þeim tilgangi hannaði Hayon meðal annars inn í búðina út- skorin borð, lampa og fleiri húsgögn, þar á meðal stólinn, þar sem rauði liturinn var alls- ráðandi. Nánari upplýsingar á www.hayonstudio.com. Sófi. Slitsterkt röndótt áklæði, Vanity Stripe. 42% pólýester, 48% viskos. Armar með 5 hæðastillingum. L D 3ja sæta 282 cm 95 cm 179.900,- Amara Sófi m/hægri legubekk. Semianilin leður. Svampur í sessum, dúnn í efsta lagi á sessum og baki. Stillanlegir hnakkpúðar. Hægt að fá sófann með vinstri legubekk. Einnig til hvítur. L D 2½ sæta 310 cm 165 cm 489.900,- Sófalína. Slitsterkt áklæði. 50% pólýester, 44% akrýl og 6% ull. Svampur m/trefjafyllingu í sessum. L. D. 2½ sæta m/legubekk. 271 cm. 161 cm. 279.900,- 3ja sæta. 232 cm. 113 cm. 249.900,- 2½ sæta. 198 cm. 113 cm. 199.900,- Hægindastóll 136 cm. 113 cm. 149.900,- Skemill 94 cm. 73 cm. 59.900,- Kingston Burdiso
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.