Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 44

Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 44
 15. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● sófar Hvað þarf helst að hafa við hönd- ina þegar búið er að koma sér fyrir uppi í sófa með góða bók? Einkum þrennt: Teppi, leslampa og borð. Á www.styleestate.com er að finna skemmtilega lausn sem felur í sér bæði hliðarborð og lampa. Lampinn gefur góða birtu yfir öxlina og borðið passar akk- úrat fyrir kaffibollann og kexið. Fyrir vikið er hægt að upplifa hina fullkomnu næðisstund án þess að hreyfa sig að ráði en til þess eru sófar einmitt gerðir. - ve Nauðsynjar við höndina Hliðarborð og lampi verða eitt. Barnafjölskyldur og gæludýraeig- endur þurfa yfirleitt að eyða meira púðri í að þrífa sófann sinn. Margar barnafjölskyldur velja leðursófa sem auðvelt er að þrífa og sófa með áklæði sem hægt er að taka af og setja í þvottavélina. Þá er ágætt að muna að þótt hægt sé að taka áklæðið af má ekki alltaf setja það í þvottavélina, oft verður að fara með það í hreinsun. Hvað umhirðu leðursófa varðar er gott að hafa í huga að láta ekki sól skína beint á sófann meirihluta dags þar sem hætt er við að leðrið upplitist. Einnig er gott að þurrka létt af því öðru hvoru með rökum klút og fyrir vandlega hreinsun er ryksugan góð til síns brúks. Hvað tausófa varðar, sem fá í sig vonda bletti, má benda fólki á að oft er hægt að leigja hreinsi- vél fyrir sófa í efnalaugum. Vélin bleytir þá sófann og þurrkar hann aftur. Á minni bletti fæst oft alls konar blettaeyðir í stórmörkuðum ætlaðir fyrir sófa. - jma Verndið leðrið fyrir sólinni Barnmargar fjölskyldur ættu að huga vel að efni og lit á sófanum sem valinn er á heimilið. Dekkri sófar eru til að mynda oft hentugri. Fátt er notalegra en að tipla um á hnausþykku teppi. Þungar og munstraðar gólfmottur á stofugólf hafa í seinni tíð vikið fyrir kókosteppum, kálfskinni eða berum fjöl- um. Þó að fyrrnefnd atriði séu óneitan- lega smart eiga þau lítið skylt við nota- legheit. Hvað sem öllum tískustraumum líður er fátt notalegra en að tipla um á hnaus- þykku teppi og sem betur fer er víða að finna fallegar lausnir sem passa jafnvel við allra fínustu sófasett. Einlitt teppi eins og sjá má á með- fylgjandi mynd myndi sóma sér vel í stíl- hreinu umhverfi og er langt frá því að vera lummó. - ve Hlýjar og mjúkar mottur undir kaldar iljarnar Haustveisla stendur frá 15 - 17 okt. HAUST VEISLA sérfræðingur frá DUX í Svíþjóð verður á staðnum Ármúla 10 | sími: 5689950 | duxiana.com 2 DUX 1001/Original/90x200cm/ Xtandard yfird 180x200cm/Ascot höfuðgafl og Mathilda rykfaldur. Tilboð aðeins Kr. 395.000 Gerog Jensen Damask sængurfatnaður 20% afsl DUX 8888 BESTA RÚM Í HEIMI ! 20% afsl Fire sófi 20% afsl aðeins Kr. 319.200

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.