Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 54
38 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
BJARNI! Rólegur! Rólegur! Hann stöðvast í lausa
snjónum neðst!
Andskotinn... hefurðu
séð sæta hamsturinn í
gæludýrabúðinni?
Svo að nú er Sara í fýlu
af því að ég fór í fýlu út
af Johnny Depp-
plakatinu hennar.
Þú hefðir átt að sjá
augnaráðið sem
hún sendi mér.
Ég þori ekki að
fara að skápnum.
Kannski ætti ég að
flytja dótið mitt í
annan skáp þar til
hún jafnar sig.
Það væri
kannski
málið... Ef augun þín væru aðeins
stærri gætirðu
verið stjarna í
eigin Disney-
mynd.
Hjálpið
okkur
Solla, viltu passa
Lóu á meðan ég
hleyp eftir
póstinum?
Hversu mikils
virði er það þér?
Kannastu við að hlutir
sem eru fyndnir í
sjónvarpinu eru bara
ekkert fyndnir þegar
þú segir þá heima?
Ég sá
það hjá
þér.
Ó, þú voldugi sfinx.
Ég er með
matarleiða...
Já...
En þú hefur
safnað nægum
vetrarforða!?!
... og nú er ég svo
þreyttur eftir alla
matarleitina.
Horfðu á björtu
hliðarnar
Hannes, okkur
langaði alltaf
að geta unnið
heima.
Þýsk rannsókn sem nýlega var gerð opinber hefur sýnt fram á að konur gráta lengur en karlar. Eflaust hefur
nokkrum milljónum verið eytt í að sanna
þetta og heimurinn verður eflaust samur.
Grátköst kvenna standa yfirleitt yfir
í sex mínútur og enda oftast í ekka-
sogum. Slíkt gerist hins vegar ekki
hjá körlum nema í sex pró-
sent tilvika og þá hljóta þeir að
vera verulega svekktir, sárir og
sorgmæddir. Fram kom í þess-
ari þýsku rannsókn að grátköst
karla standa yfirleitt yfir í tvær
til fjórar mínútur.
Sjálfur er ég mikill vælukjói,
konan mín vill kalla mig tilfinn-
ingaveru en ég verð oft pirraður
á því hversu auðvelt er að græta
mig. Ég tek það hins vegar skýrt
fram að ég fæ aldrei ekkasog. En
rétt eins og suma kitlar þá hættir mér til
að fella tár aðeins of oft. Og ég viðurkenni
það fúslega að mér líður stundum eins og
óttalegri kerlingu. Ef Extreme Makeover:
Home Edition er í gangi þá skipti ég um
stöð því þótt mér finnist þátturinn vera
ömurlegur þá get ég ekki annað en hrif-
ist af þeirri gleði sem brýst út hjá fólki
þegar það sér gamla hreysið vera orðið að
lúxusvillu og stundum brjótast fram
lítil tár eins og hjá forsetafrúnni um
árið þegar karlinn hennar datt af
hestbaki.
Ég vil hins vegar ekki vera stað-
inn að því að gráta yfir sjónvarp-
inu, síst yfir þessum þætti, fussa
því bara og sveia og set yfir á Stöð
2 Sport. Og horfi á póker enda getur
enginn heilvita maður grátið yfir
slíku sjónvarpsefni. Þá fyrst ætti
hann að leita til læknis.
Lengir gráturinn lífið?
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson