Ljósberinn - 01.06.1946, Síða 6

Ljósberinn - 01.06.1946, Síða 6
86 LJÓSliERINN upp í sig vatni með lófanum, því að hún var svo dauðþyrst. I sama bili lieyrði hún hófadyn og hrökk við, því að henni datt í hug, að Arnljótur á Svartagili væri kominn að veita sér eftirför. Hiin leit við með liálf- um liuga, og var þá sem þungum steini væri létt af hjarta hennar, þegar hún sá bjartleitan og hrokkinhærðan dreng, sem kom ríðandi á gráum hesti og rak marga hesta á undan sér. Drengurinn stökk af baki og heilsaði Katrínu vingjarnlega. Katrín tók kveðju hans glaðlega og hugsaði með sér: „En livað ég er heppin, að þessi drengur skyldi koma í flasið á mér. Hann getur sagt mér hvar himnaríki er“. „Hvað lieitir þú?“ spurði drengurinn. „Ég heiti Katrín“. „Og livar áttu heima?“ „Ég á hvergi heima“. „Og hvert ætlar þú?“ „Ég ætla að fara til hennar mömmu minnar. Það eru allir svo vondir við mig á Svartagili“. „Hvar á liún mamma þín heima?“ „Hún er komin til himnaríkis og ég ætla þangað líka“. Drengurinn gat ekki komið upp einu einasta orði fyrir lilátri. „Þú ert Ijótur strákur að vera að hlæja að mér“, sagði Katrín með grátstafinn í kverkunum. „Ég, sem er á leiðinni til himnaríkis og ætlaði einmitt að biðja þig að vísa mér til vegar“. „Það er nú ekki mikill vandi“, sagði drengurinn og setti upp spekingssvip. „Sérðu ekki stóra bæinn hérna uppi undir fjallinu?“

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.