Ljósberinn - 01.06.1946, Blaðsíða 10

Ljósberinn - 01.06.1946, Blaðsíða 10
90 LJÓSBERINN var með fangamarki prestsins og hin mesta gersemi. Það var leitað að silfurskeiðinni hátt og lágt, úti og inni, en hún fannst hvergi. Prestskonan f<5r að fjargviðrast út af þessu óbærilega tjóni, en presturinn bað hana, elskuna sína, að gera ekki svona mikla rekistefnu út af þessu, „og tjáir ekki að sakast um orðinn hlut“, sagði hann. I þessum svifum kom Þórkatla inn og kvaðst þurfa að tala við prestskonuna einslega. Þær fóru fram í búr og Þór- katla setti strokk fyrir hurðina að inn- anverðu, svo að enginn gæti komið inn að þeim óvörmn. „Ykkur hefði verið nær að trúa mér fyrr“, sagði Þórkatla gamla í hálfiun hljóðum. „Eg er svo sem oft búin að vara ykkur við lienni Katrínu“. „Dettur þér í hug, að hún liafi tekið silfurskeiðina?“ spurði prestskonan efa- blandin. „Katrín er það og engin önnur, sem hefur tekið silfurskeiðina“, sagði Þór- katla gamla hróðug. „Ég sá að hún var að fægja liana í morgun. Og hafi hún ekki tekið hana, þá hefur hún að minnsta kosti fleygt lienni á glámbekk, svo að 'sökin bitnar á henni“. Prestskonan var lengi treg til að trúa þessu, en þangað til var Þórkatla að telja um fyrir henni, að hún var ekki í nein- um vafa lengur. Hún sagði manni sín- mn frá þessu, og voru þau nú bæði mjög sorgbitin. Þau létu Katrínu koma inn í svefnlier- bergið sitt um kvöldið og spurðu hana, hvort það væri satt, að hún hefði tekið silfurskeiðina. „Guð veit að ég er saklaus“, sagði Kat- rín og fór að gráta. I sama vetfangi kom Þórkatla gamla inn. Hún hafði staðið á hleri og vildi nú ekki sitja sig úr færi að spilla fyrir Katrínu. „Það er ekki til neins fyrir þig að vera að malda í móinn, ókindin þín“, sagði hún og gaf Katrínu olnbogaskot. „Þú hefur tekið silfurskeiðina. Ég sá, að þú varst að fægja liana í morgun. Von er nú blessuð prestshjónin séu reið við þig, að þú skulir ekki launa þeim upp- eldið betur en svona. Þú ættir að snáfa burt sem fyrst, svo að þau þurfi ekki að liafa meiri skapraun af þér“. Kalrín vildi ekki gera henni Þórkötlu gömlu það til eftirlætis, að fara að munn- liöggvast við hana. Hún kvaddi prests- hjónin og allt lieimilisfólkið með sárum trega, og fór alfarin burt af prestsetrinu þetta sama kvöld. Stóridalur er næsti bær fyrir sunnan Hof, og þangað stefndi Katrín för sinni. Þegar hún var komin suður fyrir tún- gax-ðinn á Hofi, varð henni litið upp í alstirndan himininn. Það var glaða tungls- Ijós og allur dalurinn var fannhvítur með gljáandi svellum hér og hvar. Stjörnurnar brostu svo blítt við Katiúnu, eins og þær vildu segja: „Við vitum að þú ert sak- laus“. „Ó, livað það er gott, að hafa hreina samvizku“, hugsaði Katrín. „Ég vona að sakleysi mitt komi einhverntíma í ljós“. Nii fékk hún að reyna hverfulleik ham- ingjunnar, en htin var ekkert kvíðafull, því að hún treysti því, að góður Guð mundi lijálpa sér, þegar lians tími væri kominn. Henni fannst hún vera mnkringd af ósýnilegum englxun.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.