Ljósberinn - 01.06.1946, Qupperneq 20

Ljósberinn - 01.06.1946, Qupperneq 20
100 LJÓSBERINN „Þarna kemur hann pabbi!“ 6agði hann. Maður, bár vexti, kom brosandi til þeirra. „Hvað sé ég, Agnes, þú ert þegar kom- in“, sagði bann og heilsaði konunni með handabandi. „Eg hélt, að þú kæmir ekki fyrr en kl. 12,15. Og bvað er þetta, þú ert þegar komin í kunningsskap við Pétur?“ „Já, Henrik“, svaraði konan hlæjandi, „ég kom með hraðlestinni og liitti Pétur litla hérna á stöðvarpallinum. Ég liefi lof- að að vera regluleg mamrna lians. Hann er svo ákaflega hræddur við stjúpmóður, sem hann hefur heyrt eitthvað um, og þú ferð þó varla að gefa honum einhverja stjúpu, vænti ég?“ Hún deplaði augunum framan í föður Péturs og hann skildi merkið undir eins. „Nei, það geri ég auðvitað ekki“, sagði hann, „ég hefi sent stjúpuna í burtu aftur, því að þú átt að vera hin rétta móðir Péturs litla“. „Ó, má hún það?“ kallaði Pétur upp himinlifandi. „Já, það geturðu verið viss um“, sagði pabhi hans brosandi. „Þú ert þá orðin mamma mín núna“, sagði Pétur og réði sér ekki fyrir fögnuði. Hann rauk til og kyssti hana beint á munninn. Þegar þau gengu lieim frá brautarstöð- inni, sagði Pétur allt í einu: „Veiztu hvað ég held. Ég held að þú sért góð töfra- mær“. „Nei“, svaraði unga konan og þrýsti liendur þeirra beggja, Péturs og föður lians, „ég er bara mamma — mamma þín“. Geri aðrir betur Prestur nokkur við kirkju í Stratford, Englandi, er 87 ára og þjónar söfnuði sínum, en hefur þó að einhverju leyti aðstoðarprest. En hann messar einnig iðu- lega hjá öðrum söfnuðum. Fyrir nokkru bauðst hann til að lijóla á reiðhjóli sínu 50 mílur (um 80 km) til ákveðins staðar og flytja kvöldmessu strax er liann kæmi þar, ef einhver vildi lofa því að gefa 50 ensk pund til viðreisnar aðalstöð bind- indisráðs kirknanna, en hús þetta er í Westminster og hafði eyðilagst í einni flugvélaárás Þjóðverja á^ England. Lof- orðið var auðvitað ekki bindandi, nema hinn háaldraði klerkur leysti hlutverk sitt af hendi og hjólaði þessa 80 km og messaði samdægurs á áfangastaðnum. — Honum hefur verið lofað tvisvar 50 pund- um, og vafalaust er liann búinn að vinna til þeirra. Hann sagðist að minnsta kosti ekki kvíða útkomunni, en vildi láta þess getið um leið, að hann væri albindindis- maður á bæði áfengi og tóbak. Skyldu margir sígarettutottarar eða hófdrykkjumenn vilja keppa við þenn- an hrausta og háaldraða talsmann fag- urra hugsjóna — kristindóms — og bind- indis? „Eining“. Og þannig bar það til, að Pétur litli fékk reglulega mömmu, sem lék sér við hann, smokraði honum í bólið hans, söng fyrir hann og sagði lionum sögur, í staðinn fyrir „vondu“ stjúpuna. (Sj.).

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.