Ljósberinn - 01.10.1946, Blaðsíða 32
188
LJÓSBERINN
Mest í heimi
Mest í heimi aS mínum dómi,
misttunn Drottins er.
Það, sem sól er sumarblómi,
sonur Guós er mér.
Ég var ávalt ungur falinn
ástúó frelsarans;
og til traustrar verndar valinn
vináttunni hans.
B. J.
að ná í eins mikið og mögulegt er af pen-
ingum livers úr annars vasa.
Það er sagt án alls gamans, að tapi
maður úrinu sínu á markaði í Petticoat
Lane, geti farið svo, að manni takizt að
fá það aftur á uppboði á sama mark-
aðinum.
Þarna var ekki ósvipað umhorfs og á
austurlenzku sölutorgi. 011 verzlun fór
fram undir beru lofti eða í portdyrum.
Eins þétt saman og mögulegt var stóð
verzlunarfólkið með litlu liandvagnana
sína. Yfir vagnana voru strengd tjöld, til
þess að verja vörurnar fyrir sól og regni.
Aðalverzlunarvaran var gamall fatnaður.
Það var fátt um fóik í þessu hverfi, sem
þekkti þann munað að geta eignazt ný
föt. Nei, gömlu fötin voru notuð meðan
nokkur tuska var heil. Það voru stórir
hlaðar af notuðum fatnaði á markaðin-
um. Loftið var mettað af fruggukennd-
um óþef frá fatnaði, sem einu sinni hafði
þekkt betri daga. Á milli hlaðanna sat
Gyðingur með ósviknar silfurvörur —
eða hér um bil ósviknar. Hann hafði
einnig skartgripi ýmsa á boðstólum og
gimsteina, er glitruðu í öllum regnbog-
ans litum, enda höfðu hlutir þessir seg-
ulmögnuð áhrif á kvenþjóðina. Rétt hjá
skartgripasalanum seldi slátrari flegnar
kanínur, og skransali nokkur reyndi að
vekja athygli fólksins á gömlum mynd-
um, olíulömpum, strokjárnum, ýmsum
koparílátum og — já, hvað var það, sem
ekki var til lijá þessum manni. Það var
verzlað með gamla skó og nýja skó, göm-
ul húsgögn og liér um bil ný búsgögn,
járnrúm, barnavagna, liáa hatta og lága
hatta, ávexti, vín og margs konar kökur.
Engu var fleygt. Nei, allt virtist að lok-
um liafna í Petticoat Lane!
Þeir verzlunarmenn, sem ekki voru
komnir svo hátt í mannfélagsstiganum,
að þeir ættu vagn með tjaldi yfir, gátu
notazt við ávala kassa. Þeir seldu flibba-
linappa, eldspýtur, naglasköfur, göngu-
stafi, regnlilífar og ýmis konar glingur.
Einnig seldu þeir leikföng, smáskammta
og meðul, bursta og póstkort. Þeir hróp-
uðu og skræktu og reyndu að ná í sem
flesta viðskiptavini með því að lofsyngja
vörur sínar.
Hæst öskruðu þó uppboðssalarnir, sem
seldu ýmsar vörur til hæstbjóðanda. Þeir
néru höndunum saman í örvæntingu,
þrifu í hár sitt og skræktu:
„Á þessi dýrmæti vasi að fara fyrir
slíkt smánarboð? Það er hneyksli — en
takið hann þá. Sjáið þetta fagra málverk!
Komið nær, gott fólk, þið hafið áreiðan-
lega aldrei fyrr séð jafn dásamlega fallegt
sólarlag. Hvað viljið þið bjóða . . . ?“
F ramh.