Ljósberinn - 01.12.1949, Qupperneq 16
192
LJÓSBERINN
Bjarni Thorarensen
orkti, er hann varð fimmtugur:
Lof sé þér, Guft, fyrir liðna ævi
léfía mótlætið eins og gæfu,
sem í fimmtíu aldursár
úthlutaði mér hönd þín klár.
Aldur veralda allra stendur
eins og mannsins í þinni hendi.
Mitt hið ókomna áratal
allt þíniun vilja falið skal.
Árin hrúkaði’ eg ei sem skyldi
og ei svo vel sem þó eg vildi:
gef þú eg betur brúki hér
burtfarar til það eftir er.
Oft hinar liðnu aldir sáu
að oft þú verkar stórt með smáu.
Gef þú mér, Drottinn Guð, eg bið
til góðs eg sé þitt verkfærið.
Varðveit þú. laðir, mig og mína,
á miskunn Guðs fel eg alla þína.
Gef oss lastvart að lifa hér
og loks í dýrð hjá sjálfum þér.
Mótlætið var þín miskunn bezta,
meðlætið einskær náðin mesta;
hvorstveggja þörf í heimi er,
hvorttveggja og þú veittir mér.
Minnstu þess, Dróttinn, miskunn í,
mennirnir fáir sinna því.
Lát mig vel þínu stjórna standi
til styrktar mínu föðurlandi.