Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 4
4 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
ALÞINGI Ríkið þarf ekki að ganga
jafnlangt í skattahækkunum og
ráðgert var í fjárlagafrumvarp-
inu. Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra greindi frá því
á Alþingi í gær að „aðlögunar-
þörf ríkissjóðs“ yrði 52 millj-
arðar króna á næsta ári en ekki
72 milljarðar eins og áætlað
var. Dregið verður úr áformum
um skattahækkanir sem þessu
nemur.
„Við erum enn með aðilum
vinnumarkaðarins að reyna að
ná sátt um þá skattlagningu sem
verður bæði á fyrirtækin og ein-
staklingana,“ sagði Jóhanna.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi
ríkisstjórnina fyrir ómarkvissa
stjórn efnahagsmála og fyrir
að reyna ekki að ná sátt um rík-
isfjármálin næsta ár. Stöðug-
leikasáttmálinn væri í uppnámi.
Stefnuleysi ríkisstjórnarinnar
yki á óvissu og óöryggi sem festi
stöðnun og hnignun í sessi og
dýpkaði og lengdi kreppuna.
„Staðreyndin er sú að við erum
að sjá sterkar vísbendingar um
jákvæða þróun og að við getum
unnið okkur tiltölulega hratt út úr
kreppunni,“ sagði Jóhanna. Besta
leiðin sé að halda í megin atriðum
við gerðar áætlanir, sem byggja
á samstarfi við AGS. „Allar vís-
bendingar benda til að séum á
réttri leið, þótt það sé erfiður
vetur fram undan.“ -pg
FOSSHÁLS 27 - 110 REYKJAVÍK | GATAN FYRIR OFAN NÝBYGGINGUNA
HJÁ ÖLGERÐINNI | HOFDABILAR@HOFDABILAR.IS | S: 577-4747
BMW M5 E60 INDIVIDUAL
Innfl uttur nýr 7/2007 ek 33 þ.km, V10 bensín 507hp SMG sjálfskipting. Sjálfskiptur
og beinskiptur, 7 gíra skipting. Comfort-sæti, head-up display, hiti og kæling í sætum,
voice-command kerfi . lyklalaust aðgengi, bluethooth, rúskin í topp, leður- mælaborð,
ofl .ofl . 19” sumar og vetrardekk á felgum. Verð 11.900þ Rnr.126283
Skoðar skipti á ýmsum atvinnutækjum sem og öðrum bílum.
Í Fréttablaðinu í gær var ranghermt
að Sigurður Bollason sætti rannsókn
skattrannsóknastjóra vegna erlendra
greiðslukorta. Þá er rangt sem hermt
var að Sigurður eigi sæti í varastjórn
Imons. Sigurður Bollason hætti við-
skiptum með Magnúsi Ármann í apríl
2006. Beðist er afsökunar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTTING
VIÐSKIPTI Lögmannsstofan Logos
vann fyrir félag tengt Baugi,
hinn 23. september, á sama tíma
og lögmaður hjá Logos sá um
uppgjör þrotabús Baugs.
Umrætt verkefni mun hafa snú-
ist um að senda út tilkynningu
um breytingu á framkvæmda-
stjórn JMS Partners, þegar Jón
Ásgeir Jóhannesson varð fram-
kvæmdastjóri þar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Logos gerði stofan mistök með
því að taka þetta að sér. Skrif-
stofa Logos í Reykjavík hafi ekki
áttað sig á því hverjir áttu JMS,
en verkið hafi verið skráð á skrif-
stofu Logos í Lundúnum. „Okkur
þykir þetta miður,“ segir í til-
kynningu. Framkvæmdastjóri
Logos vill ekki ræða málið. - kóþ
Lögmannsstofan Logos:
Baugsvinna
fyrir mistök
Prófkjör á Nesinu
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Sel-
tjarnarnesi fer fram í dag, laugardag-
inn 7. nóvember, milli klukkan tíu og
sex. Fimmtán manns gefa kost á sér
í prófkjörinu, en það fer fram í sal
flokksins á Seltjarnarnesi, að Austur-
strönd 3 á þriðju hæð.
STJÓRNMÁL
Í Fréttablaðinu í gær var vitnað í
Valdimar Árnason, sem hyggst opna
farfuglaheimili á Selfossi í vor. Hann
sagði „ …ekkert farfuglaheimili hér
í kring, nema á Eyrarbakka.“ Annað
farfuglaheimili er starfrækt í Gaul-
verjaskóla í Flóahreppi.
ÁRÉTTING
Aðlögunarþörf ríkisins tuttugu milljörðum minni en talið hafði verið:
Ekki sama þörf á skattahækkunum
BJARNI
BENEDIKTSSON
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
EFNAHAGSMÁL „Það hefur ekkert upp
á sig að hlaða upp gjaldeyrisforða
þegar vel árar ef fólk heykist á að
nota hann á úrslitastundu. Hið opin-
bera getur haft lengri sjóndeildar-
hring en einkageirinn og því getur
hann tekið stöðu með eða á móti
eigin gjaldmiðli, jafnað sveiflur
og grætt á öllu saman,“ segir Már
Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már var aðalræðumaður á
morgunverðarfundi Viðskipta-
ráðs Íslands í gær. Hann ræddi um
stöðu efnahagsmála, þar á meðal
gjaldeyrishöft í skugga fjármála-
hrunsins. Hann benti á að einn af
lærdómum fjármálakreppunnar
sé að rétt beiting gjaldeyrisforða
geti skipt sköpum hvað snerti varð-
veislu peningalegs og fjármálalegs
stöðug leika við erfiðar aðstæður.
Hann benti á að Ástralar hefðu
nýtt gjaldeyrisvaraforða sinn með
árangursríkum hætti.
Þá benti Már á að ekki mætti
verja gengið gegnum þykkt og
þunnt. Inngrip Seðlabankans á
gjaldeyrismarkað um þessar mund-
ir miðuðu að því að draga úr óstöð-
ugleika gengisins og koma í veg
fyrir „spírala gengislækkunar“.
Hann sagði mjög hafa dregið úr
inngripum bankans á gjaldeyris-
markaði. Bankinn hafi fram til
þessa notað átta milljónir evra,
jafnvirði tæpra fimmtán milljarða
króna á gengi gærdagsins.
Krónan féll nokkuð fram eftir
degi í gær. Gengisvísitalan rauf 240
stiga múrinn og hafði krónan ekki
verið veikari á árinu. Hagfræði-
deild Landsbankans bendir á að
Seðlabankinn hafi gripið í taumana
og selt þrjár milljónir evra, tæpar
560 milljónir króna, fyrir krón-
Gjaldeyrisforða má
nota í gróðaskyni
Seðlabankastjóri segir inngrip á gjaldeyrismarkað miða að því að koma í veg
fyrir lækkunarspíral. Aðalhagfræðingur bankans segir breytingu bankans á
stýrivöxtum hafa mátt vera skýrari.
„Ég viðurkenni það að þetta var
ekki gegnsætt,“ segir Þórarinn G.
Pétursson, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans. Hann sagði vaxtaákvörðun
bankans á fimmtudag hafa verið
lítils háttar slökun á peningalegu
aðhaldi.
Samhliða því að lækka stýrivexti
um eitt prósentustig niður í ellefu
prósent og innlánsvexti í níu
prósent ákvað bankinn að gefa út
innistæðubréf með 10,25 prósenta
vöxtum. Bankinn hefur áður gefið út
að markmið með útgáfu innistæðu-
bréfa sé að soga fjármagn úr banka-
kerfinu. Á þarsíðasta vaxtaákvörð-
unarfundi sagði seðlabankastjóri
bankana tútna út af peningum, sem
enginn vilji taka að láni. Því verði
að gefa bönkunum kost á að ávaxta
féð með einhverjum hætti. Þetta
hefur verið gagnrýnt mjög enda
ólíklegt að féð leiti út á markaðinn
og knýi efnahagslífið af stað þar
sem Seðlabankinn bjóði betri vexti.
„Það var vissulega ekki ætlunin
að dulbúa eitthvað. Við vorum að
laga vaxtaganginn svo við getum
hreyft hann hvort heldur er upp eða
niður,“ segir Þórarinn.
EKKI DULBÚIN STÝRIVAXTAHÆKKUN
ur með þeim árangri að veikingin
gekk að hluta til baka. Gengið end-
aði þó í rúmum 237 stigum, sem er
með því veikara á árinu.
Í nýrri spá Seðlabankans er gert
ráð fyrir að gengi evrunnar liggi
nálægt núverandi gengi. Ein evra
kostaði í gær 186 krónur. Horft er
til þess að gengið styrkist á næstu
þremur árum og kunni evran að
lækka við það niður í 170 krónur.
jonab@frettabladid.is
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SEÐLABANKASTJÓRI Íslending-
ar þurfa gjaldeyrisvaraforða til
að geta staðið við afborganir
erlendra lána til ríkissjóðs
og stundað hófleg inngrip á
gjaldeyrismarkaði.
EFNAHAGSMÁL Helstu lykil tölur
um efnahagsmál í ríkjum
Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar OECD sýna
að flest sé nú á uppleið eftir
kreppuna djúpu.
Stofnunin spáir nú hagvexti
á Ítalíu, í Frakklandi, Bretlandi
og Kína auk þess sem hún segir
að greina megi uppsveiflu í
Kanada og Þýskalandi. Greini-
legur bati er einnig sagður
sjáan legur í Bandaríkjunum,
Japan og öðrum aðildarríkjum
stofnunarinnar.
Stofnunin segir þó að þessi
batamerki verði að taka með
varúð. - gb
Batamerki víða um heim:
Hagvöxtur að
komast á skrið
LÖGREGLA Yfirheyrslum hjá efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjóra vegna notkunar á erlendum
greiðslukortum miðar vel, segir
Helgi Magnús Gunnarsson, yfir-
maður deildarinnar. Búið er að
yfirheyra allflesta þeirra nítján,
sem boðaðir hafa verið í skýrslu-
tökur.
Grunur leikur á að kortin hafi
verið notuð til að koma í umferð
tekjum sem skotið hafði verið
undan skatti. - jss
Erlendu greiðslukortin:
Yfirheyrslurnar
langt komnar
SJÁVARÚTVEGSMÁL Aflaverðmæti
smábáta á síðastliðnu fiskveiði-
ári var 16,6 milljarðar króna, að
sögn Arnars Pálssonar, formanns
Landssambands smábátaeigenda.
Þetta eru meiri verðmæti en
komið hefur verið með að landi
frá upphafi. Útflutningsverðmæti
þessa afla er 33 milljarðar.
Heildaraflinn á bak við verð-
mætin er 73.421 tonn. Þorskur,
ýsa og steinbítur voru 87 prósent
af heildaraflanum og þegar ufsa
er bætt við fer hlutdeild þessara
fjögurra tegunda í tæp 92 prósent.
Alls veiddu smábátar 36.014
tonn af þorski sem er 21,4 prósent
heildarþorskaflans og 21.697 tonn
af ýsu sem er 24,3 prósent heildar-
aflans. - shá
Mestu verðmæti í sögunni:
Afli smábáta
gaf 33 milljarða
Í REYKJAVÍKURHÖFN Hlutdeild smábáta
í útflutningsverðmætum sjávarafla eykst
ár frá ári.
GENGIÐ 06.11.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
238,878
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,67 125,27
206,84 207,84
185,59 186,63
24,935 25,081
22,033 22,163
17,876 17,98
1,3759 1,3839
198,81 199,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
8°
7°
9°
11°
8°
4°
9°
9°
24°
10°
24°
11°
27°
5°
11°
17°
8°
Á MORGUN
Hægt vaxandi SA-átt síð-
degis og þykknar upp.
MÁNUDAGUR
Stíf sunnanátt allra
austast, annars hægari.
6
5
4
3
4
5
5
6
7
8 5
4
5
5
5
5
5
5
5
5
5
6
3
2
5
7
8
8
6
6 5
FER AÐ HVESSA
Á MORGUN
Síðdegis á morgun
fer að hvessa af
suðaustri sunnan-
og vestanlands
og þykknar upp.
Annað kvöld verður
vindur á bilinu 13-
18 m/s sunnan og
vestanlands. Strax
á mánudag lægir
vestantil, en þá
verður fremur stífur
vindur austanlands
fram á síðdegið.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður