Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 20
20 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Kristján Möller
skrifar um sveitar-
stjórnarmál
Þau ánægjulegu tíðindi
bárust nú nýlega að
Ísland er komið í fyrsta
sæti þegar kemur að
jafnrétti kynjanna.
Þetta er niðurstaða í
skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins
(World Econonic Forum) sem fram-
kvæmir slíkar mælingar árlega
meðal 134 landa, en vinaþjóðir
okkar Noregur, Finnland og Sví-
þjóð verma sætin á eftir okkur.
Tvennt tel ég að hafi skipt máli
hvað varðar þessi tímamót en það
er annars vegar sú staðreynd að
þingkonum fjölgaði úr 33% í 43%
við síðustu Alþingiskosningar,
þökk sé marvissum jafnréttisá-
herslum stjórnmálaflokkanna,
ekki síst þeirra sem nú sitja í ríkis-
stjórn. Hins vegar sú staðreynd að
jafnræði kynjanna ríkir nú í ríkis-
stjórn Íslands í fyrsta skipti í sögu
þjóðarinnar.
En þessi árangur kemur ekki
af sjálfu sér heldur er hann endur-
speglun á þeim pólitísku áherslum
sem ríkja hér á landi. Með þeim
er lögð áhersla á þá staðreynd að
mikil verðmæti og ávinningur fel-
ast í jafnri stöðu kvenna og karla,
að jöfn tækifæri í samfélaginu og
þátttaka allra sé verðmæti í sjálfu
sér. Ríkisstjórnin er einhuga um
þessi markmið og kemur sú áhersla
glöggt fram í samstarfsyfirlýsingu
hennar.
Ég hef sem sveitarstjórnarráð-
herra fylgt þessari stefnumörkun
fast eftir og í vor skipaði ég starfs-
hóp sem fékk það hlutverk að móta
tillögur um aðgerðir til að jafna
betur stöðu kynjanna í sveitar-
stjórnum.
Því miður er það
svo, þrátt fyrir góðan
jafnréttisárangur á
ýmsum sviðum, að hlut-
fall kvenna í sveitar-
stjórnum er aðeins 36%
sveitarstjórnarfulltrúa
meðan hlutur karla er
64%. Þá eru karlar í
meirihluta í 66 sveitar-
félögum af 77 og í fimm
sveitarfélögum voru
einungis karlar full-
trúar í sveitarstjórn. Þetta er alls
ekki góð staða, við getum sem þjóð
ekki sætt okkur við það að þátttaka
kvenna sé ekki betri en þetta og á
því þarf að ráða bót. Okkur gefst
tækifæri til þess eftir sex mán-
uði, en þá verða haldnar almenn-
ar sveitarstjórnarkosningar.
Margar áhugaverðar tillögur
er að finna í greinargerð starfs-
hópsins, sem var skipaður full-
trúum allra stjórnmálaflokka sem
sæti eiga á Alþingi auk embættis-
manna. Meðal tillagna hópsins eru
eftirfarandi:
• Að samgöngu- og sveitar-
stjórnar ráðuneytið skipuleggi
kynningarstarf og hvatningar átak
fyrir því að konur til jafns við
karla taki þátt í störfum sveitar-
stjórna.
• Að ráðuneytið boði til sam-
ráðs með forystufólki úr stjórn-
málaflokkunum til að hvetja til
jafnræðis meðal kynjanna í efstu
sætum framboðslista.
• Haldin verði námskeið á
vegum ráðuneytisins fyrir konur
um þátttöku í sveitarstjórnar-
starfi.
• Að ráðuneytið kanni starfsum-
hverfi og starfskjör kjörinna full-
trúa og meti með hliðsjón af jafn-
réttissjónarmiðum.
Þá bendir starfhópurinn á þann
möguleika að ekki verði heimilt
að setja fram framboðslista nema
jafnt hlutfall sé milli kynja.
Þetta eru allt áhugaverðar hug-
myndir og hef ég þegar ákveðið að
hefja í samstarfi við önnur ráðu-
neyti, Jafnréttisstofu og Samband
íslenskra sveitarfélaga vinnu við
að hrinda þessum tillögum í fram-
kvæmd eða skapa vettvang fyrir
frekari umræðu. Mikilvægt er að
allir stjórnmálaflokkar og pólitísk
samtök komi að þessu mikilvæga
verkefni því reynslan sýnir að það
eru fyrst og fremst þeir, eða öllu
heldur þær leikreglur sem unnið
er eftir innan þeirra, sem hafa
úrslitaþýðingu á það hvort okkur
tekst að ná árangri á þessu sviði
eða ekki. Ég hef þegar óskað eftir
fundi með formönnum og fram-
kvæmdastjórum stjórnmála-
flokkanna um þessi málefni og
mun þar kalla eftir samstöðu um
þær aðgerðir sem við teljum nauð-
synlegar til að ná árangri á sviði
jafnréttismála við næstu sveitar-
stjórnarkosningar. Það mun, ásamt
öðrum góðum jafnréttisáherslum,
tryggja okkur fyrsta sætið á jafn-
réttislista Alþjóðaefnahagsráðsins
næstu árin.
Ég vil að lokum lýsa mig sam-
mála starfshópnum þegar hann
segir, að mikilvæg forsenda lýð-
ræðis sé sú að karlar og konur taki
jafnan þátt í mótun sam félagsins.
Ákvarðanir sveitarstjórna hafa
mikil áhrif og þær móta allt okkar
daglegt líf. Færa má rök fyrir
því að það halli á lýðræðið ef við
gætum þess ekki að hafa jafnt
hlutfall karla og kvenna í sveitar-
stjórnum.
Við höfum sameiginlega verk
að vinna á þessum vettvangi og
náum meiri árangri ef við leggj-
um saman kraftana. Við höfum öll
hugmyndir og þess vegna getum
við aukið hlut kvenna í sveitar-
stjórnum á Íslandi.
Höfundur er samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra.
Við getum aukið hlut kvenna
KRISTJÁN MÖLLER
UMRÆÐAN
Arnheiður Elísa
Ingjaldsdóttir skrifar
um nýsköpun
Nýsköpun er óað-skiljanlegur hluti
af vexti, velgengni
og auði fyrirtækja og
þjóða. Í þjóðfélaginu
hefur mikið verið talað
um nýsköpun sprota-
fyrirtækja en ekki má gleyma því
mikilvæga hlutverki sem starf-
andi fyrirtæki gegna hvað varðar
nýsköpunarvinnu og að skapa
menningu sem ýtir undir nýjar
hugmyndir. Þegar herðir að er
nýsköpun innan starfandi fyrir-
tækja oft sett í aftursætið en það
er einmitt nýsköpunin sem fær
hjólin til að snúast.
Áhrif kreppu á nýsköpun
Skýrsla Innobarometer 2009, sem
fjallar um stefnu nýsköpunar
2006-2008, sýnir að hagsveiflur
hafa áhrif á nýsköpun. Skýrslan
tekur til þeirra atvinnugreina sem
jafnan hafa verið þekktar fyrir
nýsköpun sem eru m.a. geim- og
orkutækni, byggingariðnaðurinn,
fjármálaþjónusta og upplýsinga-
tækni. Skýrslan sýnir að efnahags-
þrengingarnar í heiminum hafa
orðið til þess að nýsköpun hefur
minnkað í þessum atvinnugreinum
og færri fyrirtæki en áður telja að
þau muni fjárfesta í nýsköpun.
Þriðjungur sker niður
Skýrslan tekur saman svör ríf-
lega 5.000 nýsköpunarfyrirtækja
víðs vegar um Evrópu. Meira en
þriðjungur þessara fyrirtækja
jók fjárfestingu sína
í nýsköpun á árunum
2006-2008. Nú hefur
samsvarandi fjöldi
skorið niður fjárfest-
ingu sína í nýsköpun eða
hefur í hyggju að gera
það vegna efnahags-
ástandsins. Einungis
um 10% af fyrirtækjun-
um hafa langtímamark-
mið þar sem fjárfesting
í nýsköpun skipar sess.
Engu að síður sýnir
skýrsla Innobarometer 2009 að
fyrirtæki í Evrópu eru í meira
mæli að setja sér markmið tengd
þekkingu, nýsköpun og alþjóða-
væðingu. Samkvæmt skýrslunni
spila atriði eins og regluverk,
opinber innkaup og staðlar líka
inn í þegar kemur að möguleikum
fyrirtækjanna til nýsköpunar.
Fyrirtækjamenning
Rannsóknir sýna að þau fyrir-
tæki sem starfa við nýsköpun eiga
eitt sameiginlegt þótt þau séu í
mismunandi löndum og menn-
ingarsamfélögum. Margir hafa
reynt að finna út hvað það er
sem stýrir aukningu nýsköpunar
innan fyrir tækja og ábatans sem
fylgir. Svarið er nýsköpunarhvetj-
andi fyrirtækjamenning. Auðvitað
verður regluverkið að styðja við
nýsköpun, aðgangur að hæfu fólki
þarf að vera fyrir hendi sem og
aðgangur að fjármagni svo eitt-
hvað sé nefnt en fyrirtækjamenn-
ingin er þó sterkasti stuðullinn í
jöfnunni. Þess vegna er mikilvægt
að íslensk fyrirtæki séu meðvituð
um þeirra hlutverk þegar kemur
að nýsköpun, nefnilega að skapa
menningu sem fær starfsfólk til
að hugsa út fyrir boxið.
Eflum nýsköpun
fyrirtækja
ARNHEIÐUR ELÍSA
INGJALDSDÓTTIR
Hengjum
okkur ekki í
smáatriði!
Vinátta – alveg
óháð kerfi.